Lið Menntaskólans á Akureyri keppir við lið Verzlunarskóla Íslands í Íþróttahöllinni á Akureyri annað kvöld, föstudagskvöld. Keppnin verður sýnd beint í Sjónvarpinu. Höllin verður opin klukkan 19.30 – 20.00, en þá verður skellt í lás því á því andartaki hefst útsending, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Meenntaskólans.
Þar kemur einnig fram að mikill hugur sé í Menntaskólanemum og þeir muni flykkjast að og styðja lið sitt. Takmarkið sé vissulega að halda hljóðnemanum heima enda fari hann mjög vel í anddyri Hóla. Að sunnan kemur fylking Verzlunarskólanema til að styðja sitt lið, og það má því búast við fjöri og fagnaðarlátum í Höllinni, segir ennfremur í fréttinni. Nýja Gettu betur-liðið í MA er skipað þeim Örnu Hjörleifsdóttur, Svölu Lind Birnudóttur og Konráð Guðjónssyni. Myndina af þeim, sem fengin er af MA-vefnum, tók Vilhelm Ernir Ívarsson.



