Boðað er til kynningarfundar um nám á hraðlínu almennrar bóknámsbrautar í Menntaskólanum á Akureyri fyrir nemendur sem koma úr 9. bekk fimmtudaginn 10. janúar kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn í
Kvos Menntaskólans á Akureyri, gengið inn frá Þórunnarstræti.
Menntaskólinn hóf kennslu á þessari braut haustið 2005 en þá fór af stað fjögurra ára þróunarverkefni sem miðar að því að koma til móts við nemendur sem hafa áhuga og getu til að flýta námi sínu til stúdentsprófs um eitt ár. Á brautinni er áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti og námsmat og reynt er eftir megni að miða námið að þörfum hvers og eins. Fyrstu tvö árin lofa mjög góðu, nemendur hafa aðlagast vel í skólanum og náð afbragðs árangri, og þriðji hópurinn, sem byrjaði nú í haust, lofar afar góðu. Þessi tilraun hefur spurst út víða og nú þegar hafa að minnsta kosti tveir framhaldsskólar í Reykjavík fylgt fordæmi MA og taka inn nemendur strax eftir 9. bekk grunnskóla.
Á almennri námsbraut, hraðlínu, taka nemendur sömu áfanga og kenndir eru á fyrsta ári í MA, auk þess að ljúka viðfangsefnum 10. bekkjar. Miðað er veið að bekkir séu litlir, 15-20 nemendur. Áhersla er lögð á góða samvinnu við foreldra, öfluga umsjón með nemendum, góð vinnubrögð og að tengja saman námsefni grunn- og framhaldsskóla. Að loknu þessu fyrsta ári geta nemendur sest í 2. bekk í MA.
Við inntöku á hraðlínuna er litið til þriggja þátta; einkunna, umsagnar frá grunnskóla og viðtala við nemendur og foreldra. Reynslan sýnir þegar að þessi námsleið hentar vel dugmiklum nemendum sem hafa áhuga á bóklegu námi. Reynslan sýnir enn fremur að nemendur á hraðlínu hafa lagast mjög vel að skólalífinu og tekið þátt í félagsstarfi fullkomlega á við aðra nemendur fyrsta bekkjar í Menntaskólanum á Akureyri, segir í fréttatilkynningu.



