Útskrift frá Menntaskólanum fer fram í Íþróttahöllinni kl. 10 í dag 17. júní. Jón Már Héðinsson skólameistari Menntaskólans á Akureyri mun brautskrá 166 stúdenta að þessu sinni. Útskrift MA laðar að fjöldann allan af fólki til Akureyrar en Skólahátið MA fer fram 16. júní þar sem afmælisárgangar fagna. Að kvöldi útskriftardags fagna svo nýstúdentar ásamt fjölskyldum sínum og vinum með Hátíðarfagnaði nýstúdenta. Akureyri.net vill óska nýstúdentum og öllum MA-ingum gleðilegrar hátíðar.
Framhaldsskólar
166 brautskráðir stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri
Skrifað 17. júní 2011 klukkan 01:37 | Jóhann Jónsson | Framhaldsskólar, Fréttir, Skólar |LMA frumsýnir söngleikinn Drama Lama – Dalai Lama
Skrifað 30. mars 2011 klukkan 22:23 | Stefán Erlingsson | Framhaldsskólar, Menning, Skólar, Sýningar |„Það er gríðarleg spenna í hópnum. Þetta er búið að vera erfitt en það er gott að erfiðið er að fara að skila sér núna á föstudaginn“, sagði Silja Björk Björnsdóttir, formaður Leikfélags Menntaskólans á Akureyri, LMA. Næstkomandi föstudag mun LMA frumsýna söngleikinn Drama Lama – Dalai Lama í Rýminu.
Strangar æfingar hafa staðið yfir upp á síðkastið en að sögn Silju hefur allt gengið vel og er hún ánægð með hópinn. „Ég er búin að vera í leikfélaginu í 3 ár og þetta er besti hópur sem hefur verið í leikfélaginu. Allir mjög fagmannlegir og hlýða því sem þeim er sagt að gera og koma með nýjar hugmyndir. Mjög heilsteyptur og flottur hópur“ Nánar »
MA-ingar í óvissunámsferð til Þýskalands og Frakklands
Skrifað 22. mars 2011 klukkan 00:32 | Stefán Erlingsson | Framhaldsskólar, Skólar |Á miðvikudaginn var lögðu nokkrir nemendur Menntaskólans á Akureyri upp í óvissuferð til Þýskalands og Frakklands. Hópurinn er skipaður 19 nemendum 4. bekkjar í ferðamálafræði og gengur ferðin út á að skoða heiminn og vinna svo verkefni þegar heim er komið. Nemendunum var skipt upp í 5 hópa og hver hópur fékk eina borg til að skoða og fjalla um. Tveir hópar fóru til Þýskalands, annar til Koblenz og hinn til Wiesbaden. Þrír fóru svo til Frakklands, til Rennes, Reims og Orleans, einn til hverrar borgar. Nemendurnir komu svo til baka á sunnudagsmorgunn.
Sögukennari MA skrifar kennsluefni um verkalýðshreyfinguna
Skrifað 23. september 2009 klukkan 01:35 | Örlygur Hnefill | Framhaldsskólar, Fréttir, Skólar |
Alþýðusamband Íslands efndi i vor til hugmyndasamkeppni um ritun námsefnis um verkalýðshreyfinguna, sögu hennar, sigra og hlutverk í nútímasamfélagi undir yfirskriftinni Hvernig er best að fræða grunnskólanemendur um verkalýðshreyfinguna?
Róbert F. Sigurðsson sögukennari við Menntaskólann á Akureyri var valinn til að skrifa þetta kennsluefni. Í verklýsingu fyrir samkeppnina í vor kom meðal annars fram að þekking ungs fólks á verkalýðshreyfingunni, sögu hennar og hlutverki, væri orðin lítil og nauðsynlegt að semja aðgengilegt efni til þess að fræða megi skólafólk um hreyfinguna, hvaða máli hún hefur skipt í lífi launafólks og hverju hún getur með samtakamætti fólksins fengið áorkað. Gert er ráð fyrir að þetta verði allt að 40 blaðsíðna bók, sem gefin verður út í 5000 eintökum og dreift meðal nemenda 9. og 10. bekkjar í öllum grunnskólum landsins. Bókinni munu fylgja kennaraleiðbeiningar og verkefni handa nemendum.
Furðuverur fylla fjörðinn
Skrifað 20. maí 2009 klukkan 15:39 | Ingimar Björn | Framhaldsskólar, Fréttir, Skólar |Þegar lofthitinn í bænum fer smá saman að fikra sig upp í tveggja stafa tölur streyma bæjarbúar út á göturnar. Veðurstofan spáir reyndar rigningu á morgun og skýjuðu næstu daga, en sunnudagurinn ætti að verða sólríkur og góður.
Í dag leyndust á meðal virðulegra borgara Elvis-eftirhermur, sæðisfrumur og ýmis furðudýr. Þetta eru að sjálfsögðu stúdentsefni Menntaskólans á Akureyri sem nú eru að dimmitera.
Ljósmyndari akureyri.net rakst á þennan vagn fullan af Elvis-um á ferð sinni um bæinn. Þessir kátu krakkar virtust njóta veðurblíðunar til hins ítrasta, rúntuðu dregin í dráttarvél um bæinn, kættu bæjarbúa með tónlist eftirstríðsárana, og kvöddu um leiðmenntaskólaárin, kennarana og æskuna með stæl.
Menntaskólanum slitið
Skrifað 18. júní 2008 klukkan 04:47 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 129. sinn þann 17. júní. Jón Már Héðinsson skólameistari brautskráði 158 stúdenta. Fulltrúar afmælisstúdenta fluttu ávörp. Elstur þeirra var Ármann Snævarr fyrrum háskólarektor, en 70 ár eru liðin frá því að hann og bekkjarfélagar hans luku stúdentsprófi. Fulltrúi 60 ára stúdenta var Einar Pálsson, en Tryggvi Gíslason flutti kveðju fyrir hönd 50 ára stúdenta.
Nánar á www.ma.is
4. bindi sögu MA
Skrifað 12. júní 2008 klukkan 08:29 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Saga Menntaskólans á Akureyri, fjórða bindi, er að koma út þessa dagana. Föstudaginn 13. júní klukkan 10.30 verða opnaðir fyrstu kassarnir af þessu nýja bindi og fyrstu eintökin afhent.
Saga MA kom út í þremur bindum í tilefni að 100 ára afmæli skólans árið 1980, þegar eitt hundrað ár voru liðin frá endurvakningu hins norðlenska skóla á Möðruvöllum í Hörgárdal 1880 og fimmtíu ár voru liðin frá því skólinn fékk
leyfi til að brautskrá stúdenta 1930.
Fjórða bindið spannar söguna frá því um 1980 fram um 2005, eða næsta aldarfjórðunginn eftir fyrstu bindin þrjú.
Ritstjóri þessa bindis Sögu MA er Jón Hjaltason en ritnefnd ásamt honum skipuðu Jón Már Héðinsson skólameistari, Sigríður Steinbjörnsdóttir, Úlfar Hauksson og Valdimar Gunnarsson. Myndaritstjórn annaðist Sverrir Páll Erlendsson og Lára Ólafsdóttir gerði skrár. Tryggvi Gíslason fyrrverandi skólameistari safnaði efni til sögunnar og ritaði drjúgan hluta hennar.
Útkomu bókarinnar hefur seinkað nokkuð því vinnsa hennar tók heldur lengri tíma en til stóð. Margir hafa þegar greitt fyrir bókina og í bókarlok er Tabula gratulatoria með nöfnum áskrifenda. Bókin verður til sölu í tengslum við Skólahátíð MA eftir helgina.
Skólahátíð MA
Skrifað 10. júní 2008 klukkan 06:16 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Menntaskólanum á Akureyri verður slitið við hátíðlega athöfn þriðjudaginn 17. júní. Athöfnin verður í Íþróttahöllinni á Akureyri og hefst klukkan 10.00. Húsið verður opnað gestum klukkan 9.00.
Að þessu sinni brautskráir skólameistari, Jón Már Héðinsson, 159 stúdenta, en þeir hafa aldrei í sögu skólans verið fleiri.
Við skólaslit munu fulltrúar nokkurra afmælisárganga flytja skólanum ávörp. Í hópi þeirra er Ármann Snævarr, fyrrverandi háskólarektor, en sjötíu ár eru frá því hann lauk stúdentsprófi frá skólanum.
Skólahátíð Menntaskólans á Akureyri er gríðarlega fjölmenn hátíð sem setur mikinn svip á bæjarlífið á Akureyri dagana í kringum 17. júní ár hvert. Til bæjarins koma gamlir nemendur skólans og fagna tímamótum sem standa á heilum og hálfum tug ára frá því þeir luku stúdentsprófi. MA-hátíðin er mesti samfagnaður afmælisárganganna og er haldinn að kvöldi 16. júní í Höllinni, en dagana á undan eru flestir hóparnir í alls kyns kynnisferðum og fögnuði í bænum og nágrenni hans. Gestir á MA-hátíð eru jafnan á bilinu 700-900.
Við skólaslitaathöfnina að morgni 17. júní eru jafnan um 1000 manns, ættingjar og vinir nýstúdenta og aðrir hollvinir skólans. Að kvöldi 17. júní er hátíðarsamkoma nýstúdenta í Höllinni þar sem saman koma um 1000 manns, nýstúdentar, fjölskyldur þeirra og vinir og kennarar og starfsfólk skólans. Bæði þar og á MA-hátíðinni kvöldið áður mun hljómsveitin Í svörtum fötum leika fyrir dansi.
Að lokinni brautskráningu er hefð að teknar séu hópmyndir af nýstúdentum í trjálundi norðan við Hóla. Klukkan 15-17 er svo Opið hús í Menntaskólanum, þar sem boðið er upp á léttar veitingar. Þar eru sýnd ýmis verk nemenda, bæði námsverkefni og myndlistarverkefni. Þá er á Suðurvistum í Gamla skóla opin sýning gamalla muna og kennslutækja. Fjölmargir koma í heimsókn í skólann að þessu tilefni, gamlir nemendur koma og skoða fornar slóðir og gleðjast í minningum liðinnar tíðar og nýstúdentar koma með fjölskyldum sínum um leið og þeir anda að sér í síðasta sinn þeim ilmi sem þeir hafa í vitum alla tíð síðan og dregur þá heim á tímamótum, eins og dæmin sanna.
144 brautskráðir frá VMA
Skrifað 29. maí 2008 klukkan 09:32 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Verkmenntaskólinn á Akureyri útskrifaði 144 nemendur frá skólanum á laugardaginn var. Í ræðu sinni kom Hjalti Jón Sveinsson skólameistari meðal annars inn á að þó skólinn væri nú opinberlega fullbyggður, þá væri ljóst að aðsókn að honum væri það mikil að enn þurfi að byggja nýjar álmur og nú stendur til að byggja sérstaklega yfir starfsbrautina. Hjalti Jón talaði einnig um ný framhaldsskólalög og nýja, litla framhaldsskóla hér og þar um landið. Ræðu Hjalta Jóns má lesa á síðu Verkmenntaskólans, www.vma.is
Iðnaðarmenn framtíðarinnar verðlaunaðir
Skrifað 19. apríl 2008 klukkan 08:30 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Verðlaun voru afhent á Íslandsmóti iðngreina sem lauk í gömlu Laugardalshöllinni síðdegis í dag, laugardag. Sigurvegari í málmsuðu var Jevgenis Gujls, í trésmíði Ásgeir Arnór Stefánsson frá Iðnskólanum í Reykjavík, í pípulögn Kristófer Þorgeirsson frá Iðnskólanum í Hafnarfirði, í bifvélavirkjun Birkir Sigursveinsson, í bílamálun Ásbjörn Matti Birgisson, í bifreiðasmíði Reynir Harðarson, í múrverki Kristþór Ragnarsson frá Iðnskólanum í Reykjavík, í málaraiðn Gunnar Guðjónsson frá Iðnskólanum í Reykjavík, í dúklagningum Gústaf Benedikt Grönvold frá Iðnskólanum í Reykjavík, í hársnyrtingu Heiðrún Pálsdóttir frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja, í grafískri miðlun Jóhann Geir Úlfarsson, nemi hjá Expo, í ljósmyndun Arnar Már H. Guðmundsson frá Iðnskólanum í Reykjavík og í rafvirkjun Gunnar Þórbergur Harðarson frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Verðlaunin afhenti Árni Már Heimisson, sem var Íslandsmeistari og Norðurlandameistari í pípulögnum 2007 og tók þátt í World Skills 2007, Heimsmóti iðngreina, í Japan fyrir Íslands hönd, fyrstur Íslendinga til að taka þátt í því móti.
Markmið Íslandsmóts iðngreina, sem Iðnmennt stendur fyrir, er að vekja athygli á iðn- og starfsmenntun, kynna almenningi iðngreinar – ekki síst ungu fólki – og vekja athygli á þeim tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum. Alls voru á mótinu fulltrúar um 20 iðn- og starfsgreina, en auk greinanna sem keppt var í voru kynningar á nokkrum greinum, auk þess sem iðn- og verkmenntaskólar landsins og Samband íslenskra framhaldsskólanema kynntu starfsemi sína. Íslandsmót iðngreina er undanfari og forkeppni einstakra keppnisgreina fyrir þátttöku í Euro Skills og World Skills sem er alþjóðleg keppni iðngreina. Meira var lagt í keppnisgreinarnar nú en áður og viðfangsefnin í flestum tilvikum veigameiri og meira krefjandi. Markmiðið með breyttu fyrirkomulagi er m.a. að auka þátttöku atvinnulífsins í mótinu og efla tengslin milli þess og iðnskólanna.
Líkt og undanfarin ár sá Iðnmennt um almennan undirbúning og skipulagningu mótsins en að þessu sinni sáu AP almannatengsl um kynningarmál og framkvæmd viðburðarins. Að skipulagningu keppnisgreina komu Félag hársnyrtisveina, Félag íslenskra snyrtifræðinga, Félag pípulagningameistara, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, Rafiðnaðarsamband Íslands og IÐAN – fræðslusetur. Aðalbakhjarlar mótsins voru Samtök iðnaðarins og menntamálaráðuneytið. Mótið í ár var haldið í tengslum við sýninguna Verk og vit 2008.
Ratatoskur í nánd
Skrifað 11. apríl 2008 klukkan 03:10 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Einhver mesta tilbreyting í starfi Menntaskólans á Akureyri er Ratatoskur, opnir dagar. Ratatoskur verður á mánudag og þriðjudag. Kennt er samkvæmt stundaskrá fyrstu tvo tímana báða dagana en að því loknu er stundaskránni varpað fyrir róða. Þá standa nemendum til boða fjölmörg námskeið og fyrirlestrar. Þeir þurfa að safna stigum í þessari dagskrá og skila lágmarksfjölda eininga. Enginn ætti að vera í vandræðum með að skila yfirfullu korti því tækifærin eru afar mörg, eins og sjá má ef dagskráin er skoðuð á vef nemenda, muninn.is.
Það er stjórn Hugins, skólafélags MA, sem skipuleggur og undirbýr þessa viðamiklu dagskrá.
Frétt af www.ma.is
Borgundarhólmsklukka skólameistara
Skrifað 13. mars 2008 klukkan 09:52 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Í löngu frímínútum í gær komu góðir gestir og færðu Menntaskólanum á Akureyri hina miklu og fögru Borgundarhólmsklukku úr búi Sigurðar skólameistara. Sigurður Guðmundsson var skólameistari á árunum 1921-1948, en veturinn 1927-28 gáfu nemendur og kennarar skólans honum þessa klukku í tilefni af fimmtugsafmæli hans. Um þetta leyti var einnig farið að brautskrá stúdenta frá skólanum. Klukkan var á heimili þeirra Sigurðar skólameistara og Halldóru Ólafsdóttur, en kom við fráfall þeirra í hlut sonar þeirra, Guðmundar Ingva Sigurðssonar og konu hans Kristínar Þorbjarnardóttur. Þau færa skólanum klukkuna að gjöf til minningar um Sigurð og Halldóru, og jafnframt silfurskjöld með upphleyptri mynd af skólanum, sem nemendur skólans gáfu Sigurði skólameistara sjötugum síðasta starfsár hans, veturinn 1947-1948, skrifar svp á heimasíðu MA.
Þar segir ennfremur: „Börn Guðmundar Ingva og Kristínar, Þórunn, Þórður Ingvi og Sigurður afhentu gripina góðu og með þeim í hópi var Sigurður Ólafsson kennari, en þau eru bræðrabörn. Alnafni Sigurðar skólameistara, Sigurður Guðmundsson landlæknir hafði orð fyrir hópnum og vonaðist til að þessi gamla en góða klukka flytti skólanum góðan anda. Jón Már skólameistari þakkaði góðar gjafir og bað nemendur að finna klukkunni stað þar sem hún myndi njóta sín best.“
Háskóladagur á Akureyri
Skrifað 26. febrúar 2008 klukkan 03:20 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Miðvikudaginn 27. febrúar kl. 11-15 kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram í VMA. Á staðnum verða Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands, eða öllu heldur fulltrúar þessara skóla.
Gott tækifæri gefst þarna fyrir áhugasama til að skoða yfir 500 námsleiðir sem háskólarnir bjóða upp á.
VMA fær hæðarmæli
Skrifað 21. febrúar 2008 klukkan 08:19 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Í dag færði Húsasmiðjan Verkmenntaskólanum á Akureyri hæðarmæli/ laser af fullkomnustu gerð að gjöf. Húsasmiðjan og Verkmenntaskólinn á Akureyri hafa í mörg ár átt gott og farsælt samstarf. Nemendur skólans hafa komið reglulega í heimsóknir til Húsasmiðjunnar og fengið tilsögn og upplýsingar um það sem Húsasmiðjan hefur upp á að bjóða. Þá hefur Húsasmiðjan áður fært Verkmenntaskólanum gjafir sem aðallega hafa verið verkfæri sem nemendur nota við iðnnám sitt, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Eining-Iðja kynnir réttindi og skyldur
Skrifað 22. janúar 2008 klukkan 06:09 | Helgi Már | Framhaldsskólar |Þorsteinn E. Arnórsson þjónustufulltrúi hjá Einingu-Iðju er um þessar mundir að kynna réttindi og skyldur á vinnumarkaði fyrir yngstu nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri. Þorsteinn mun fara í 13 heimsóknir í skólann, en hver heimsókn stendur yfir í tvær kennslustundir. Þetta er sjötta árið í röð sem félagið er með slíka kynningu í skólanum og segir Þorsteinn að starfsmenn Einingar-Iðju hafi tekið eftir mikilli breytingu til batnaðar hvað unga fólkið er orðið virkara hvað þessi mál snertir. “Það veit nú betur hvar það á að spyrjast fyrir um réttindi sín og eins vita þau mun betur en áður hverju þau eiga rétt á. Þegar krakkarnir fara út á vinnumarkaðinn þá skiptir miklu máli að þekkja og vita um réttindi sín.” Frá þessu er greint á vef Einingar-Iðju, þaðan sem myndin er fengin.
Þorsteinn segir að í þessum heimsóknum sé farið yfir gildi þess að vera í stéttarfélögum og eins er farið yfir almenn réttindi og skyldur á vinnumarkaði. “Undirtektir unglinganna eru mjög góðar og skapast oft góðar umræður um þessi mál,” segir Þorsteinn og bætir við að þessi fræðsla skipti heilmiklu máli. “











