Pistlar

Pistill frá lesanda um ketti og kattahald í bænum

Skrifað 07. desember 2011 klukkan 10:18 | | Fréttir, Pistlar | 3 athugasemdir |

Heimiliskötturinn Maja sem býr í Síðuhverfi

Sorgleg frétt birtist á ruv.is, 6. desember sl. Þar var fjallað um að aukning hefði orðið í að kettir hefðu verið skildir eftir i hesthúsahverfunum á Akureyri. Sú hegðun er með öllu óafsakanleg. Fréttin af ruv.is hljómaði svona:  Borið hefur á því að fólk losi sig við ketti og kettlinga í hestahúsahverfi Akureyrar. Bærinn er nú í átaki við að losa hestamenn við kettina sem eru bæði grimmir og svangir enda ekkert fyrir þá að hafa í hesthúsunum. Nánar »


Glerárgil hið efra – Leyndarmál Akureyrar

Skrifað 01. desember 2011 klukkan 01:00 | | Fréttir, Pistlar |

Á næstunni munu akureyri.net birta pistla eftir Jón Inga Cæsarsson þar sem hann mun fjalla um málefni sem snerta Akureyri og okkar nánasta umhverfi. Í fyrsta pistlinum skrifar Jón Ingi um umhverfismál þar sem hann fjallar um eina af perlum í umhverfinu okkar, sem er Glerárgil hið efra.  Pistillinn nefnist Leyndarmál Akureyrar. Nánar »


Bubbi í Hofi 21. desember, Miðasala hefst í dag

Skrifað 18. nóvember 2011 klukkan 08:35 | | Almennt, Menning |

Það má með sanni segja að fyrsti í Þorláksmessu verður í Hofi þann 21. desember en þá mun Bubbi verða í fyrsta skipti á Akureyri með Þorláksmessutónleika.  Munu tónleikarnir verða með sama sniði og hinir venjubundnu Þorláksmessutónleikar sunnan heiða. Er von Bubba að þetta geti orðið árlegur viðburður fyrir norðan.  Miðasala hefst á tónleikana í dag kl. 13.  Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens í Hofi, 21. desember hefjast kl. 20:30.

 

Nánar »


Nýja reglugerðin um kattarhald, er hún að virka?

Skrifað 19. ágúst 2011 klukkan 16:57 | | Fréttir, Pistlar |

Heimiliskötturinn Maja sem býr í Síðuhverfi

Þann 1. júní tók ný reglugerð gildi um kattarhald á Akureyri og nú rúmlega tveimur mánuðum síðar lítur út fyrir að skráning katta sé með allra minnsta móti enda voru margir gæludýra eigendur afar ósáttir með hina nýju reglugerð. Í vor fengum við sendan pistil frá Ragnheiði Gunnarsdóttir sem ekki var alls kostar ánægð með reglugerðina og hafði efasemdir um framgang og réttmæti hennar. Nú hefur þessi ágæta kona sent okkur nýjan pistil þar sem hún veltir fyrir sér hvernig þetta fer af stað. Nánar »


Bæjarstjórn á villigötum?

Skrifað 09. júní 2011 klukkan 19:47 | | Pólitík | 6 athugasemdir |
Heimiliskötturinn  Maja sem býr í Síðuhverfi

Heimiliskötturinn Maja sem býr í Síðuhverfi

Ragnheiður Gunnarsdóttir skrifar um kattarhald á Akureyri

Bæjarstjórn Akureyrar er algjörlega á villigötum þegar kemur að nýjum reglum um kattahald í bænum. Með því að okra á kattaeigendum tryggja þeir að ástandið helst óbreytt, ef ekki verra. Nú þegar eru fleiri kettir farnir að finnast á vergangi en áður og allt fullt af heimilislausum kisum því enginn tímir að taka þær að sér. Sem er í sjálfu sér skiljanlegt sé litið á staðreyndir málsins. Skráningargjald upp á 10 þúsund krónur (það hæsta á landinu), árlegt eftirlitsgjald upp á 6 þúsund krónur og trygging upp á 3200 krónur sé tryggt hjá VÍS. Nánar »


Botninum náð og hægur vöxtur framundan

Skrifað 24. mars 2011 klukkan 14:42 | | Pólitík |

ASISamkvæmt nýrri og endurskoðaði hagspá ASÍ fyrir árin 2011 – 2013  kemur fram að allt bendi í þá átt að viðsnúningur sé að verða í Íslensku efnahagslífi. Hægur bati sé framundan  næstu árin. Samkvæmt spánni verði staðan á vinnumarkaðnum erfið en mun lagast í takt við batnandi efnahagslíf.  Í lok spátímans verður atvinnuleysið komið niður í  5,2%

Nánar »


Samfylkingin á Akureyri sendir ríkisstjórninni og þingflokk Samfylkingarinnar áskorun

Skrifað 21. mars 2011 klukkan 22:30 | | Pólitík |

Samfo_LogoÁ aðalfundi Samfylkingarfélags Akureyrar sem haldið var í Lárusarhúsi fimmtudagskvöldið 17. Mars voru samþykktar eftirfarandi áskorunar til ríkisstjórnar Íslands og þingflokks Samfylkingarinnar.  Í annarri áskoruninni er skoraði á ríkisstjórnina að standa við fyrirheit um að innkalla aflaheimildir. Í hinni áskoruninni er hvatt til réttlátara og uppstokkun fjármálakerfisins. Nánar »


Leiðum síðasta þorskastríðið til lykta fyrir íslensku þjóðina!

Skrifað 06. apríl 2010 klukkan 14:54 | | Pistlar |

sandrabjorkAðsend grein eftir Söndru Björk Jóhannsdóttur lögfræðing:

Við Íslendingar stöndum í stríði. Við stöndum frammi fyrir að missa margar af okkar verðmætustu auðlindum. Sem þjóð ber okkur öllum að standa vörð um sameiginlega hagsmuni okkar. Sú vá sem við stöndum frammi fyrir er þó ekki vegna ágangs erlendra ríkja sem ásælast auðlindir okkar og verðmæti, heldur stöndum við frammi fyrir skefjalausri græðgi einstaklinga og fyrirtækja sem vilja að auðlindum okkar verði afsalað úr höndum þjóðarinnar í þeirra hendur til frambúðar. Við stöndum frammi fyrir því að allar sameiginlegar auðlindir okkar geti í framtíðinni lent í einkaeigu. Nú hafa Ungir Sjálfstæðismenn tekið af skarið og krefjast þess að íslenska þjóðin afsali sér endanlega yfirráðum yfir sameiginlegri auðlind landsmanna, nytjastofnunum á Íslandsmiðum. Í ályktun sem SUS hefur nú sent frá sér kemur fram að hagsmunum þjóðarinnar sé best borgið með því að útvegsmönnum verði afhentar auðlindir sjávar og að einstaklingseignarréttur þeirra yfir auðlindinni verði viðurkenndur sem fyrst!

Nú er svo komið að þjóðin getur ekki látið bjóða sér þessa ógeðfelldu ránsherferð lengur. Herferð þar sem greipar hafa verið látnar sópa um stærstu sameiginlegu verðmæti þjóðarinnar. Herferð sem ekki sér fyrir endann á fyrr en þjóðin rís upp og krefst þess að fá úrskurðarvaldið yfir örlögum sínum og hagsmunum, enda hefur Alþingi sannað að það er óhæft til þess að fara með málefni sameiginlegra auðlinda landsmanna fyrir þjóðina alla.

Við Íslendingar þurftum að heyja hatramma baráttu fyrir sjálfstæði og valdi yfir auðlindum okkar. Stór hluti af sjálfstæði okkar felst í valdi yfir auðlindum okkar. Látum engan svipta okkur þessum sameiginlegu áunnu forréttindum baráttulaust. Tökum afstöðu með framtíð og frelsi íslensku þjóðarinnar. Ég skora á alla þjóðholla Íslendinga hvar í flokki sem þeir standa til að krefjast þess að kvótakerfið verði sett í dóm þjóðarinnar í almennri þjóðaratkvæðagreiðslu. Stofnuð hafa verið samtök sem standa fyrir víðtækri undirskriftasöfnun á netinu, sem heita Þjóðareign – Samtök um auðlindir í almannaþágu. Ég hvet alla Íslendinga til þess að fara inn á síðu þeirra og skrifa undir áskorun um að framtíð kvótakerfisins verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Slóðin er www.þjóðareign.is

Sandra Björk Jóhannsdóttir, viðskiptalögfræðingur


Auður Íslands

Skrifað 18. maí 2009 klukkan 10:44 | | Pistlar |

Örlygur Hnefill JónssonÖrlygur Hnefill Jónsson skrifar:

Mikil óáran hefur gengið yfir okkar fagra draumaland og þarf ekki að fjölyrða um orsakir né afleiðingu. Ljóst er að sú virkjun hugvitsins sem mestrar tilbeiðslu naut og fólst meðal annars í því að Ísland yrði alheims fjármálamiðstöð er lítið rædd þessa síðustu daga. Á því efnahagsvori, þar sem byggingar spruttu upp um holt og hæðir í höfuðborginni líkt og sá gróður jarðar sem best er hlúð að og vökvaður og kliðurinn í einkaþotunum var stöðugur frá Reykjavíkurflugvelli sem beið þess eins að breytast í suðrænt íbúðarhverfi með breiðstrætum þar sem íbúarnir sátu í mildri nóvemberkvöldkyrrð við borð á gangstéttinni og drukku dýrt rauðvín. Í þessum besta heimi allra heima  gerði dvergur grín að landsbyggðarfólki sem bjó við annan veruleika.

Samdráttur í hefðbundnum atvinnuvegum landsbyggðarinnar hefur verið viðvarandi undanfarna áratugi. Breytingar í landbúnaði og fækkun starfa hefur sett mark sitt á landsbyggð alla. Sama er að segja um sjávarútveginn þar sem niðurskurður veiðiheimilda og tilflutningur minnkandi kvóta hefur farið illa með byggðir. Við þessa stöðu hefur m.a.verið litið til þess að nýta þær orkuauðlindir sem landið býr yfir. Fallvötn hafa verið virkjuð og lengst af var rekin sú nýlendustefna að flytja orkuna inn á höfuðborgarsvæðið til þess að efla þar atvinnu og styrkja byggð.

Nánar »


Ríkisstjórnin og sjávarútvegurinn

Skrifað 13. maí 2009 klukkan 19:39 | | Fréttir, Pistlar, Pólitík |

bjorn-valur-gislasonBjörn Valur Gíslason skrifar:

Í samstarfssamningi ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingar kemur fram að stjórnin hyggst endurskoða lög um stjórn fiskveiða á kjörtímabilinu. Markmiðið með endurskoðuninni er að fiskveiðar umhverfis landið séu allt í senn hagkvæmar, skapi verðmæti og störf en séu jafnframt sjálfbærar og í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar um verndun vistkerfa, lífríkis og hafsbotns.

Það er trú okkar sem að ríkisstjórninni stöndum að íslenskur sjávarútvegur muni hér eftir sem hingað til gegna lykilhlutverki við endurreisn atvinnu- og efnahagslífs landsins. Því er það afar mikilvægt að okkar mati að treysta rekstrargrundvöll sjávarútvegsins sem mest má verða til langs tíma.

Nánar »


Leiðari: Atvinna fyrir alla

Skrifað 01. maí 2009 klukkan 10:05 | | Pistlar |

Örlygur Hnefill Örlygsson

Örlygur Hnefill Örlygsson

Örlygur Hnefill Örlygsson ritstjóri skrifar:
Verkafólk um heim allan fagnar í dag baráttudegi sínum. Í þetta sinn er fagnað í skugga atvinnuleysis og versnandi efnahagsástands. Sjaldan í seinni tíð hefur þó verið meira tilefni til að berjast fyrir réttlæti og jöfnuði í samfélagi mannanna. Óhófssemi liðinna ára hefur leitt okkur inn í skeið erfiðleika en þegar allt kemur til alls verður það alþýðan og verkafólkið sem mun skapa þau verðmæti sem leiða þjóðir heims aftur til betri tíma.

Það voru því miklar gleðifregnir sem bárust í gær, að stjórnendur Samherja skyldu verðlauna starfsfólk sitt með 55 þúsund króna launauppbót í lok mánaðar. Fréttir sem þessar eru því miður fáheyrðar og oft virðist manni að fyrirtækin sjái ekki þann auð sem liggur í starfsfólki þeirra.

Þau réttindi sem barátta verkafólks hefur skilað hafa kostað miklar fórnir. Því má aldrei gleyma. Í dag skulum við safnast saman við Alþýðuhúsið og sýna það þrek og þann baráttuanda sem í okkur býr. Slagorð dagsins eru Atvinna fyrir alla og fyrir henni þarf að berjast. Látum þau orð óma um bæinn í dag. Við erum samfélagið og það er okkar verkefni að tryggja að það sé réttlátt.

Akureyri.net óskar verkafólki til hamingju með baráttudaginn!


Nýir þingmenn Norðausturkjördæmis

Skrifað 26. apríl 2009 klukkan 10:48 | | Fréttir, Menning, Pólitík, Skólar |

Fjórir nýir þingmenn taka sæti á Alþingi fyrir Norðausturkjördæmi. Tryggvi Þór Herbertsson prófessor er nýr þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hann ýtti Arnbjörgu Sveinsdóttur niður um sæti í prófkjöri. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir eru ný inni af lista Samfylkingarinnar. Sigmundur á að baki langan feril sem frétta- og blaðamaður og hefur einnig starfað sem rithöfundur, en Jónína Rós kennir við Menntaskólann á Egilstöðum. Þá kemur Björn Valur Gíslason skipstjóri inn sem nýr þingmaður af lista Vinstri grænna.

Nánar »


Jóhanna og barnabæturnar

Skrifað 23. apríl 2009 klukkan 11:05 | | Pólitík |

Sigfús KarlssonSigfús Karlsson skrifar:

Enn á ný getur Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ekki setið á sér að fara með þá rangfærslu að Framsóknarflokkurinn hafi skert barnabætur á tímum uppssveiflu og góðæris í samfélaginu. Þessi orð lét forstætisráðherra falla, sem og svo oft áður, í óundirbúnum fyrirspurnartíma þann 25. mars s.l. þegar alþingismaðurinn Birkir J. Jónsson var með þá fyrirspurn er varðaði þau loforð fyrri ríkisstjórnar, sem Jóhanna Sigurðardóttir átti sæti í sem félagsmálaráðherra, þess efnis að hefja útgreiðslu barnabóta mánaðarlega frá 1. apríl s.l.

Fyrri ríkisstjórn, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, tilkynnti þann 8. desember 2008 að uppi væru áform þess efnis að hefja mánaðarlega greiðslur barnabóta þann 1. apríl 2009 eins og áður er getið, í stað þess að fá barnabæturnar greiddar fjórum sinnum á ári. Núverandi ríkisstjórn, Samfylkingar og Vinstri Grænna, hefur gefið það út og fallið frá þessum mánaðarlegu greiðslum, en það var ákveðið á þeim forsendum að mánaðarlega greiðslur hefðu komið verr út fyrir fjölskyldur í landinu og betra sé að viðhalda gamla kerfinu. Þá kom fram í svari forsætisráðherra við fyrirspurninni að hún héldi ekki að þetta breytti mjög miklu fyrir barnafjölskyldur, þ.e. að fá barnabæturnar greiddar út mánaðarlega.

Síðan segir forsætisráðherra í svari sínu til þingmannsins. „En háttvirtur þingmaður er alltaf á hálum ís þegar hann talar um barnabætur vegna þess að þær voru skertar í tíð Framsóknarflokksins á tímum mikillar uppsveiflu og góðæris í samfélaginu.“

Nánar »


Reiðir sjálfstæðismenn

Skrifað 02. apríl 2009 klukkan 10:21 | | Pistlar, Pólitík |

bjorn-valur-gislasonBjörn Valur Gíslason skrifar:

Sjálfstæðismenn standa nánast á öndinni af vanþóknun yfir því að tilraun sé gerð til að bjarga tveim fjárfestingabönkum frá hruni. Bankarnir sem hér um ræðir eru VBS fjárfestingabanki og Saga Capital. Því er haldið fram að bankarnir tveir hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu af hálfu fjármálaráðuneytisins, lán á vildarkjörum sem öðrum bjóðast ekki. Gagnrýni sjálfstæðismanna hefur fyrst og fremst beinst að samningi ráðuneytisins við Saga Capital en það jafnvel gefið í skyn að fjármálaráðherra sé að hygla þar vinum sínum eða flokksmönnum. Fátt er jafn fjarri sanni.

Um hvað snýst málið?

VBS og Saga Capital tóku á sínum tíma lán hjá Seðlabankanum til að lána gömlu bönkunum. Þetta var gert til að reyna að styrkja gömlu bankana eins og Seðlabankinn í raun hvatti aðila á fjármálamarkaði til að gera. Þegar bankarnir hrundu töpuðu VBS og Saga Capital kröfum sínum en sátu þess í stað eftir með skuld upp á 40 milljarða við Seðlabankann. Ríkisstjórn Geirs H. Haarde keypti síðan skuldir Saga Capital og VBS af Seðlabankanum í viðleitni sinni til að forða þeim síðastnefnda frá gjaldþroti og þannig var staðan þegar sú ríkistjórn gafst upp. VBS og Saga Capital skulduðu því ríkissjóði orðið þá peninga sem þau höfðu tekið að láni hjá Seðlabankanum í viðleitni sinni við að halda lífi í gömlu bönkunum. Ríkið átti því kröfu á hendur þessum fjárfestingarbönkum og um þá kröfu hefur nú verið samið á milli ríkisins og fyrirtækjanna tveggja. Það er því ekki um neitt lán að ræða heldur skilmálabreytingu á útistandandi kröfum ríkissjóðs. Þessum samningu fylgja svo ströng skilyrði sem fjármálafyrirtækjunum er gert að gangast undir, til dæmis hvað varðar arð- og kaupaaukagreiðslur.

Nánar »


Sjálfstæðismenn kjósa nýjan formann í dag

Skrifað 29. mars 2009 klukkan 04:42 | | Pólitík |

Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins verður kjörinn á landsfundi flokksins í Laugardalshöll í dag. Kristján Þór Júlíusson, fyrrum bæjarstjóri á Akureyri og núverandi þingmaður Norðausturkjördæmis, býður sig þar fram og mun etja kappi við Bjarna Benediktsson, þingmann frá Reykjavík.

Landsfundi Samfylkingarinnar lýkur einnig í dag. Helena Karlsdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri var í morgun endurkjörinn ritari flokksins.



Pistlar