Tónlist

Hellvar og Náttfari halda tónleika á Akureyri og Húsavík.

Skrifað 23. janúar 2012 klukkan 17:23 | | Fréttir, Menning, Tónlist |

Hljómsveitirnar Náttfari og Hellvar hugsa sér til hreyfings í svartasta skammdeginu nú í
lok janúarmánaðar og halda tvenna tónleika á Norðurlandi.

Fyrsta stopp verður gert á Akureyri föstudaginn 27. janúar, en þá er spilað í galleríinu Populus Tremula, þar sem margar af ferskustu rokksveitum Íslands hafa verið að troða upp um nokkurn tíma.
Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og aðgangseyrir er, eins og venja er hjá Populus Tremula, enginn. Nánar »


Fjallabræður í Hofi um helgina

Skrifað 20. janúar 2012 klukkan 13:04 | | Fréttir, Menning, Tónlist |

Nú er fyrsti dagur þorra sem einnig er nefndur bóndadagur. Menningarhúsið Hof mælir með kraftmiklum tónleikum Fjallabræðra um helgina, laugardagskvöldið 21. janúar kl. 20.

Hljómsveitin samanstendur af um það bil fimmtíu manna karlakór og rokkhljómsveit og síðast en ekki síst fallegasti Fjallabróðirinn og Akureyramærin, Unnur Birna (Bassa) Björnsdóttir á fiðlu og söng.
Karlakórinn er semsagt ekki kór í sinni einföldustu mynd, en þeir sem hafa gert sér væntingar um slíkt verða þó ekki fyrir vonbrigðum! Nánar »


Nýr framkvæmdastjóri SN og nýtt starfsár gengur í garð

Skrifað 25. ágúst 2011 klukkan 09:37 | | Atburðir, Fréttir, Menning, Tónlist |

Brynja Harðardóttir er nýr framkvæmdarstjóri SN

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands réð til sinn nýjan framkvæmdarstjóra á dögunum og tók hún Brynja Harðardóttir við stjórnartaumunum þann 1. ágúst s.l.  Sinfóníuhljómsveitin hefur nýtt starfsár með Óperutöfrum í Hofi um helgina á Akureyrarvöku en þar er einvala lið listamanna.

Nánar »


Ágóði af rokkhátíð nýttur til að efla aðstöðu Akureyskra hljómsveita

Skrifað 23. september 2009 klukkan 19:51 | | Fréttir, Menning, Tónlist |

Akureyri RokkarTónlistarhátíðin Akureyri Rokkar var haldin í Ungmenna-Húsinu um síðustu helgi og allt í allt spreyttu sig hvorki fleiri né færri en 10 rokkhljómsveitir. Gestir hátíðarinnar voru hátt í þrjúhundruð talsins og fór aðsóknin fram úr björtustu vonum skipuleggjenda . Meðal hljómsveita sem spiluðu voru Robonia, Disturbing Boner og Earendel en flest böndin eru skipuð Akureyringum.

Þorsteinn Marinó sá um skipulagningu hátíðarinnar en aðgangseyrir sem safnaðist verður nýttur til endurbóta á æfingaaðstöðu hljómsveita í Ungmenna-Húsinu. Húsið er upplýsinga- og menningarmiðstöð ungs fólks á Akureyri sem býður upp á ýmiskonar afþreyingu fyrir ungt fólk, auk þess sem ýmsir hópar nýta sér aðstöðuna sem í boði er. Að sögn stjórnenda Hússins er spennandi vetur framundan, þar sem reglulega verða haldnir tónleikar, stuttmynda- og ljósmyndanámskeið og videokvöld svo fátt eitt sé nefnt.

Nánar »


Deilur meðal Hvanndalsbræðra, Rögnvaldur hættir

Skrifað 02. júní 2009 klukkan 10:22 | | Menning, Tónlist |
Hvanndalsbræðrum hefur nú fækkað um einn. Myndin er af Myspace-síðu bræðranna.

Hvanndalsbræðrum hefur nú fækkað um einn. Myndin er af Myspace-síðu bræðranna.

Hljómsveitin Hvanndalsbræður sem hefur verið starfandi frá árinu 2002 gerir nú róttækar breytingar á rekstrinum og fækkar starfsmönnum um 20%. Mikil óregla hefur einkennt hljómsveitina nánast frá upphafi en þó hafa meðlimir einn af öðrum verið að frelsast til betri vegar sem þó hefur myndað gríðarlega spennu innan hljómsveitarinnar, þannig hefur Rögnvaldur Gáfaði ekki tekið í mál að minnka drykkju sína á tónleikum, æfingum eða stúdíóvinnu þrátt fyrir beiðni um annað.  Sprakk svo nánast samstarfið í loft upp þegar Valmar Hvanndal óskaði eftir því að hljómsveitin færi með stuttar bænir fyrir tónleika og mátti teljast mildi að hljómsveitin kláraði tónleika sína það kvöldið, en það ku hafa komið fyrir að hljómsveitin hafi ekki getað klárað alla sína tónleika vegna ýmissa uppákoma. Rögnvaldur Gáfaði hefur verið í hljómsveitinni frá upphafi  sem kassagítarleikari og aðallagahöfundur bandins en hann hefur nú ákveðið að yfirgefa hljómsveitina, finnst honum nóg um aumingjaskapinn í bandinum og líkir hljómsveitinni við litla skátadrengi með bein um hálsinn. Hann hefur þó í hyggju að starfa áfram sem sérlegur ráðgjafi og hirðskáld hljómsveitarinnar, svona svo hljómsveitin endi ekki í ömurlegu Boy Bandi eins og Rögnvaldur orðaði það.
Hljómsveitin mun sumsé starfa áfram og fór nýverið í hljóðver til að taka upp nokkur lög sem fá að hljóma á næstunni, þá mun bandið verða talsvert á ferðinni í hljómleikahaldi í sumar ásamt því að keppa í hinum magnaða popppunkti.

Hljómsveitin heldur kveðjutónleika fyrir Rögnvald Gáfaða á Græna Hattinum Akureyri 5. og 6. Júní n.k   og má reikna með að bandið tjaldi öllu til en hljómsveitin hefur verið geysi vinsæl í heimabæ sínum um árabil.

Eftirlifandi meðlimir Hvanndalsbræðra eru:
Valur Hvanndal – trommur/söngur
Sumarliði Hvanndal – bassi/söngur
Pétur Hvanndal – gítar/mandolín/söngur
Valmar Hvanndal – Fiðla/Harmonikka/Trampolín


Kórastefna við Mývatn haldin í sjöunda sinn

Skrifað 28. maí 2009 klukkan 16:16 | | Fréttir, Menning, Tónlist |
Myndin er frá tónleikum kórastefnu síðasta árs, í hvelfingu Laxárvirkjunnar. Mynd/korastefna.is

Myndin er frá tónleikum kórastefnu síðasta árs, í hvelfingu Laxárvirkjunnar. Mynd/korastefna.is

Dagana 4. til 7. júní verður haldin í sjöunda sinn kórastefna við Mývatn. Það er Margrét Bóasdóttir sem er listrænn stjórnandi, en stefnan er í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Boðið verður upp á þrenna tónleika, á Hallarflöt í Dimmuborgum, í félagsheimilinu Skjólbrekku og hátíðartónleika í íþróttahúsinu í Reykjahlíð, þar sem flutt verður aðalverkefni hátíðarinnar, Messa í As-dúr eftir Franz Schubert.

Í ár eru þáttakendur um 350 talsins, í tíu kórum og hljómsveit. Kórarnir koma víðsvegar að, en þeir sem lengst eru að komnir eru líklega meðlimir kammerskórs tónlistarháskólans í Bremen, en sá kór hefur unnið til verðlauna í Þýskalandi fyrir frammistöðu sína.

Það er enginn svikinn af því að eyða sumarhelgi við Mývatn. “Allir þeir sem einu sinni hafa verið þarna, þeir vilja koma aftur” segir Margrét Bóasdóttir. Hún segir hátíðin vaxa og dafna með árunum, og furðar sig á því að enn sé þetta eina kórastefna landsins. “Þetta er eini vettvangurinn þar sem kórar geta komið saman, hlustað á hvern annan og tekið þátt í einu glæsilegu verkefni sem kórarnir einir hefðu kannski ekki haft burði til að framkvæma.”

Nánar »


Jómfrúartónleikar Stórsveitar Akureyrar um helgina

Skrifað 28. maí 2009 klukkan 15:31 | | Fréttir, Menning, Tónlist |
Tónleikar sveitarinnar verða á Græna hattinum á laugardagskvöld

Tónleikar sveitarinnar verða á Græna hattinum á laugardagskvöld

Nú um helgina heldur Stórsveit Akureyrar jómfrúartónleika sína á Græna Hattinum. Verða þetta einu tónleikar Stórsveitarinnar þetta sumar því sumarleyfi eru að hefjast og meðlimir sveitarinnar munu tvístrast um allar jarðir. Stórsveit Akureyrar var stofnuð nú á vormánuðum af tónlistarmönnum á Akureyri, Hjörleifi Jónssyni skólastjóra og Baldvini Esra hjá Kimi Records. Stjórnandi og aðalsprauta sveitarinnar er hinn stórkostlegi Alberto Carmona, stórsveitarundrabarn og saxófónleikari. Alberto flutti til Akureyrar síðasta haust til að kenna við tónlistarskólann og vildi ólmur nýta sér langa reynslu sína af svórsveitarstússi. Því var ekkert annað í stöðunni en að drífa það af að stofna bandið að áeggjan Hjörleifs Arnar Jónssonar, skólastjóra TÓNAK, og Baldvin Esra, framkvæmdastjóra Kima. Í haust verður aftur hafist handa við tónleikahald og eru áætlanir uppi um reglulega stórsveitarviðburði, Akureyringum og nágrönnum og gestum bæjarfélagsins, vonandi til mikillar ánægju og yndisauka. Tónleikarnir verða á laugardaginn og hefjast stundvíslega klukkan 21.


Tónræktin setur upp lögin úr Hárinu

Skrifað 23. maí 2009 klukkan 14:15 | | Fréttir, Menning, Tónlist |
Söngleikurinn Hárið hefur lengi notið vinsælda

Söngleikurinn Hárið hefur lengi notið vinsælda

Söngdeild og rokkband Tónræktarinnar setja í dag upp lögin úr Hárinu í Sjallanum, en ásamt þeim koma Magni Ásgeirsson og Unnur Birna Björnsdóttir fram í nokkrum lögum. Þá stíga dansarar frá Point dansstúdíó á sviðið og gera sýninguna enn glæsilegri. Tvær sýningar verða á lögunum í dag, sú fyrri hefst klukkan 16:00 en hin síðari er klukkan 19:00. Miðaverð er 2000 krónur við innganginn en frítt er inn fyrir 12 ára og yngri.


Fyrsta æfing Eurovisionfara gekk vel

Skrifað 04. maí 2009 klukkan 15:07 | | Fréttir, Tónlist |
Erna Hrönn á blaðamannafundi með Íslenska hópnum.

Akureyringurinn Erna Hrönn á blaðamannafundi með Íslenska hópnum.

Íslenski hópurinn í Eurovision æfði á stóra sviðinu í Moskvu í morgun og gekk æfingin vel. Einn Akureyringur er í hópnum, en það er bakraddasöngkonan Erna Hrönn Ólafsdóttir.

Erna er fædd á Akureyri árið 1981 og sigraði meðal annars söngkeppni Menntaskólans á Akureyri fyrir nokkrum árum. Hún hefur verið áberandi í tónlistarlífinu hérlendis undanfarin ár og var um tíma söngkona hljómsveitarinnar Bermuda.

Hægt er að sjá myndband frá fyrstu æfingunni hér.



Tónlist