Sýningar

Himnaríki í Freyvangi

Skrifað 22. mars 2012 klukkan 09:48 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit sýnir um þessar mundir leikritið Himnaríki – geðklofinn gamaleikur eftir Árna Ibsen í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar.
Árni Ibsen er vel þekktur fyrir ýmis leikrit, s.s. Skjaldabakan kemst þangað líka, Afsakið! Hlé og Fiskar á þurru landi. Árni hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín og þýðingar um ævina en hann lést 21. ágúst 2007 þá 59 ára gamall. Leikstjóri uppsetningarinnar, Jón Gunnar Þórðarson, er að góðu kunnur fyrir leikstjórn bæði hjá áhugaleikfélögum og atvinnuleikhúsum en hann hefur m.a. leikstýrt Með fullri reisn hjá Leikfélagi Hörgdæla og Rocky Horror hjá Leikfélagi Akureyrar.
Nánar »


ÁLFkonur opna ljósmyndasýningu

Skrifað 20. mars 2012 klukkan 08:00 | | Fréttir, Sýningar |

ÁLFkonur opna ljósmyndasýninguna 30 DAGAR, á Langa-Gangi í Listagilinu á Akureyri, laugardaginn 24. mars kl. 13.00 sem jafnframt er GILDAGUR í Listagilinu. Sýningin stendur aðeins í 2 daga : laugardag 24. mars kl. 13 – 18 og sunnudag 25. mars kl. 13 – 17.

Sýningin er á veggjum á LANGA-GANGI sem er á annarri hæð í Kaupvangsstræti 10, (gengið inn sama inngang og í Populus Tremula og Sal Myndlistarfélagsins-Boxið). Nánar »


Helga Sigríður Valdimarsdóttir sýnir í Populus Tremula

Skrifað 19. mars 2012 klukkan 14:58 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Laugardaginn 24. mars kl. 14.00 mun Helga Sigríður Valdimarsdóttir opna málverka­sýningu í Pop­ulus Tremula.
Helga Sigríður notar Áttablaðarósina sem grunn í málverkin á sýningunni. Áttablaðarósin hefur lengi verið algeng í íslenskum hannyrðum. Hún byggir á fornu mynstri sem minnir um margt á frostrósir. Þetta forna mynstur færir Helga Sigríður í nýjan búning með því að mála það á striga í björtum litum.

Einnig opið sunnudaginn 25. mars kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.


Leikfélag sýnir Súldarsker um helgina

Skrifað 13. mars 2012 klukkan 10:41 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikfélag Akureyrar sýnir Súldarsker klukkan 20:00 í Rýminu næstkomandi föstudag og laugardag. Þetta nýja íslenska leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur er flutt af leikhópnum Soðið svið og hefur hvarvetna fengið mikið lof, hlotið þar á meðal Grímutilnefningar fyrir handrit og leikmynd. En leikmyndin er einungis gerð úr segulþráðum úr myndbandsspólum. Nánar »


Fjölbreytt dagskrá LA út leikárið

Skrifað 06. mars 2012 klukkan 17:23 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Þótt nokkuð sé liðið á leikárið hjá Leikfélagi Akureyrar er enn nóg framboð af sýningum sem leikhúsgestum býðst að sjá á næstu vikum.  Það má með sanni segja að það ættu allir að finna eitthvað fyrir sitt hæfi. Nánar »


Íslenski dansflokkurinn sýnir Minus 16 í Hofi á Akureyri

Skrifað 01. mars 2012 klukkan 00:38 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Íslenski dansflokkurinn verður sýninguna Minus 16 Menningarhúsinu Hofi á Akureyri  þann 8. mars næstkomandi. Á dagskránni verða tvö ólík verk sem bæði höfða til breiðs áhorfendahóps. Sýningin er því ætluð allri fjölskyldunni og fá 16 ára og yngri miðann á hálfvirði.

Fyrra verkið sem sýnt verður ber nafnið Groβstadtsafari og er eftir Norðmanninn Jo Strömgren. Verkið var frumsýnt þann 4. mars 2011 og fjallar um þá streitu og öngþveiti sem byggist upp í fjölmenni borgarlífsins. Þetta er kröftugt dansverk sem gerir miklar tæknilegar kröfur til dansaranna. Bryndís Schram á pressan.is sagði meðal annars í sínum dómi: „Verkið var geggjað flott og vitnaði enn um samstillingu og tæknilega yfirburði flokksins“ og bætti svo við „Flott show –svolítið í anda söngleikjanna – en þó öllu dramatískara“. Nánar »


LA: Gulleyjan. Fimm þúsundasti gesturinn væntanlegur á föstudagskvöld

Skrifað 29. febrúar 2012 klukkan 09:22 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikfélag Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið frumsýndi sjóræningjaleikritið Gulleyjuna í lok janúar og er 6.sýningarhelgin að ganga í garð. Hingað til hefur verið uppselt á hverja einustu sýningu og eru gagnrýnendur sammála um að Gulleyjan sé þrælskemmtilegt og bráðfjörugt fjölskylduleikrit.

Föstudagskvöldið 3.mars er von á 5 þúsundasta sýningargestinum og mun Leikfélag Akureyrar taka á móti honum með pomp og prakt. Um leið vill Leikfélagið hvetja bæjarbúa til að taka þátt í gleðinni með því að flagga sjóræningjafánum líkt og gert var um frumsýningarhelgina.


Guðrún Pálína opnar myndlistarsýninguna: Maður fram af manni

Skrifað 28. febrúar 2012 klukkan 10:01 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Fimmtudaginn 1. mars kl. 16.00 – 18.00 mun Guðrún Pálína Guðmundsdóttir opna myndlistarsýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri. Sýning Guðrúnar Pálínu er opin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 8.00 – 16.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.00 – 18.00 og stendur til 30. mars. Sýningin er sú fjórða og síðasta í ættfræði-seríu sem Guðrún Pálína hefur unnið að síðustu árin og sýnt á Akureyri. Nánar »


Leikmyndin fyrir Nei ráðherra, áhorfendasýningu ársins er komin norður

Skrifað 27. febrúar 2012 klukkan 17:47 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikmyndin fyrir Nei ráðherra, áhorfendasýningu ársins er komin norður yfir heiðar og verður því unnið hörðum höndum næstu daga í Hofi við undirbúning og uppsetningu. Fyrsta sýning verður næstkomandi laugardagskvöld, 3. mars. Miðasala á sýninguna hefur gengið afar vel og miðarnir gjörsamlega rjúka út og hefur nú tveimur nýjum sýningum verið bætt við. Sýningarnar á Akureyri eru samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs, Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar. Nánar »


Norður í Mjólkurbúðinni Listagili

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 19:00 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Sólveig Thoroddsen opnar sýninguna NORÐUR í Mjólkurbúðinni Listagili, föstudaginn 24. febrúar kl. 17 og eru allir velkomnir.

Sólveig Thoroddsen um sýninguna Norður: Sýning "Norður" byggir á dvöl minni á Svalbarða í nóvember síðastliðnum. Í
verkum mínum túlka ég áhrif náttúru, samfélags og umhverfis. Sérstaklega er mér hugleikið sambandið milli manns og náttúru, aðlögun beggja afla hvort að öðru og spennuna sem ríkir oft milli þessa ólíku en þó náskyldu afla, því
maðurinn er, þegar allt kemur til alls, hluti af náttúrunni. Nánar »


Myndasyrpa frá Brettasýningu og sleðaspyrnu

Skrifað 12. febrúar 2012 klukkan 15:25 | | Fréttir, Sýningar |

Í gær var brettasýning á Ráðhústorginu í tengslum við Éljagang 2012 og í gærkvöld var svo sleðaspyrna í Hlíðarfjalli. Já nóg um að vera í bænum og Þórir Tryggvason ljósmyndari jafnan innan seilingar. Hann sendi Akureyri.net hreint út sagt frábærar myndir sem hann tók á þessum tveimur viðburðum. Nánar »


Ketilhúsið: Móbergur – Rafsteinn – Sæmunkur

Skrifað 09. febrúar 2012 klukkan 12:33 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Laugardaginn 11. febrúar kl. 15 opnar ný sýning í Ketilhúsinu. Um er að ræða fyrstu sýningu á vegum Sjónlistamiðstöðvarinnar í þessum sal. Sýningin kallast Móbergur – Rafsteinn – Sæmunkur en það eru gamlar persónulegar nafngiftir sem listamennirnir Árni Valur Axfjörð, Hafsteinn Michael Guðmundsson og Jón Sæmundur Auðarson hafa dustað rykið af í tilefni sýningarinnar.

Listamennirnir þrír eiga það sameiginlegt að sækja innblástur til annars veruleika, hugar og sálar mannsins, andlegra heima, fornra leyndardóma og trúarbragða. Hver um sig hefur skapað sinn eiginn hugmyndaheim sem fullur er af táknum og vísunum sem sótt eru til hinna fjölbreytilegustu hugmynda úr liðinni tíð en byggður er upp í sköpun og kyngimögnuðu andrúmslofti fortíðar, nútíðar og framtíðar. Nánar »


Snjórkarlinn í mótun og Éljagangur 2012 hefst á morgun

Skrifað 08. febrúar 2012 klukkan 20:17 | | Atburðir, Fréttir, Sýningar |

Ár hvert í tengslum við Vetrar- og útivistarahátíðina Éljagangur birtist snjókarlinn á Ráðhústorginu og er fólk farið  að líta á tilvist hans sem órjúfanlegan þátt í hátíðinni. Og hátíðin hefst einmitt á morgun 9. og stendur til og með 12. febrúar. Í dag þegar okkur bar að garði var verið í óðaönn unnið með vinnuvél við að móta blessaðan karlinn. Dagskrá Éljagangs 2012 er að finna á vefnum www.eljagangur.is


Nei Ráðherra! Forsala hefst í dag 1. febrúar

Skrifað 01. febrúar 2012 klukkan 09:32 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Nei Ráðherra! Forsala hefst í dag, miðvikudaginn 1. febrúar kl. 10 á áhorfendasýningu ársins Nei ráðherra! sem flytur norður yfir heiðar í mars.  Takmarkaður sýningafjöldi verður í Hofi vegna anna leikaranna. Tryggðu þér sæti sem fyrst!

Sérstakt forsölutilboð 1.-3. febrúar:
20% afsláttur af almennu miðaverði (bókanlegt á vefnum og í síma 450 1000). Nánar »


Kristinn G. opnar málverkasýningu í Mjólkurbúðinni í Listagili

Skrifað 31. janúar 2012 klukkan 22:39 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Kristinn G. Jóhannsson opnar málverkasýninguna "MANNABYGGÐ MEÐ STRÖNDUM" í
Mjólkurbúðinni Listagili laugardaginn 4. febrúar kl.14.
,,Ég hefi einatt leitað yrkisefna í nánasta umhverfi mínu.  Undanfarin ár hefi ég gengið til litgrasa heima á Akureyri , ort um brekkurnar í bænum með flúri og fagurgala. Vorbrekkur, vetrarbrekkur, haustbrekkur og hvað nú allt hét.  Hér kveður við allt annan tón þegar hugurinn hvarflar til fyrri heimkynna undir bröttum hlíðum við sjó.  Vatneyri undir Brellum og Ólafsfjarðarhorn undir Tindaöxl.  Þessi verk eru þó uppspuni eins og vera ber en sækja þræði  þangað sem búseta fólks er með ströndum fram. Í þeirri mannabyggð var  gott að vera" segir Kristinn G. um sýninguna. Nánar »



Sýningar