Sólveig Thoroddsen opnar sýninguna NORÐUR í Mjólkurbúðinni Listagili, föstudaginn 24. febrúar kl. 17 og eru allir velkomnir.
Sólveig Thoroddsen um sýninguna Norður: Sýning "Norður" byggir á dvöl minni á Svalbarða í nóvember síðastliðnum. Í
verkum mínum túlka ég áhrif náttúru, samfélags og umhverfis. Sérstaklega er mér hugleikið sambandið milli manns og náttúru, aðlögun beggja afla hvort að öðru og spennuna sem ríkir oft milli þessa ólíku en þó náskyldu afla, því
maðurinn er, þegar allt kemur til alls, hluti af náttúrunni. Nánar »










Karl Guðmundsson sem verður 25 ára gamall síðar í mánuðinu og er mikið hreyfihamlaður opnaði síðast liðin laugardag jólamarkað í Listagilinu. Þar er Karl með ýmsa listmuni til sýnis og sölu sem hann hefur unnið í nánu samstarfi við Rósu Júlíusdóttur.
Á aðventu 2011 er jólakortasýning í anddyri Glerárkirkju. Þar eru til sýnis kort úr tveimur einkasöfnum, annars vegar úr safni Gerðar Pálsdóttur, húsmæðrakennara, sem í dag er búsett á Hrafnagili og hins vegar úr safni Björns Guðmundssonar (1919-2011). Einnig hafa verið sett upp nokkur veggspjöld með fróðleiksmolum um sögu jólakorta og póstsendinga. Sýningin stendur yfir til og með 8. janúar og er opin almenningi fyrir og eftir auglýstar helgiathafnir í kirkjunni. Hópar geta einnig pantað leiðsögn um sýninguna í síma 464 8800. Nánar á vef Glerárkirkju
Point d’ébullition – Suðupunktur! Opnun sýningar útskriftarnema listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri verður í Ketilhúsinu föstudagskvöldið 25. nóvember n.k. frá kl 20 – 22

