Menning

Helga Sigríður Valdimarsdóttir sýnir í Populus Tremula

Skrifað 19. mars 2012 klukkan 14:58 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Laugardaginn 24. mars kl. 14.00 mun Helga Sigríður Valdimarsdóttir opna málverka­sýningu í Pop­ulus Tremula.
Helga Sigríður notar Áttablaðarósina sem grunn í málverkin á sýningunni. Áttablaðarósin hefur lengi verið algeng í íslenskum hannyrðum. Hún byggir á fornu mynstri sem minnir um margt á frostrósir. Þetta forna mynstur færir Helga Sigríður í nýjan búning með því að mála það á striga í björtum litum.

Einnig opið sunnudaginn 25. mars kl. 14.00-17.00. Aðeins þessi eina helgi.


Skódinn hans Ingimars Eydal verður gangsettur 6. apríl

Skrifað 15. mars 2012 klukkan 15:56 | | Fréttir, Menning, Tónlist |

Vegna fjölda áskorana verður Skódinn hans Ingimars Eydal gangsettur að nýju (í allra síðasta sinn) og er stefnan sett á frábæra tónleika við allra hæfi, á föstudaginn langa 6.apríl. Um er að ræða tónleikadagskrá sem haldin var í Hofi síðastliðið haust í tilefni af 75 ára afmæli Ingimars Eydal. Þeir sem misstu því af skódanum þá, eiga enn möguleika á að komast með.
Fararstjórar í ferðinni verða ekki af verri endanum: Tónlistar og hljómsveitarstjóri verður Karl Olgeirsson og með honum verður sannkallað stórskotalið eða þeir Gunnar Gunnarsson, Jón Rafnsson, Sigurður Flosason, Hannes Friðbjörnsson og Jón Elvar Hafsteinsson. Það eru svo þau Guðrún Gunnarsdóttir og Stefán Hilmarsson sem sjá um söng ásamt Ingu Eydal og Ingimari Davíðssyni Eydal. Heiðursgestir eru svo söngvararnir ástsælu Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson. Nánar »


Leikfélag sýnir Súldarsker um helgina

Skrifað 13. mars 2012 klukkan 10:41 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikfélag Akureyrar sýnir Súldarsker klukkan 20:00 í Rýminu næstkomandi föstudag og laugardag. Þetta nýja íslenska leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur er flutt af leikhópnum Soðið svið og hefur hvarvetna fengið mikið lof, hlotið þar á meðal Grímutilnefningar fyrir handrit og leikmynd. En leikmyndin er einungis gerð úr segulþráðum úr myndbandsspólum. Nánar »


Hof: Þorgerðartónleikar í kvöld

Skrifað 12. mars 2012 klukkan 11:10 | | Fréttir, Menning, Tóneyrað |

Tónleikar til styrktar minningarsjóði  um Þorgerði S. Eiríksdóttur verða haldnir í Hofi mánudaginn 12. mars 2012 kl. 18:00.

Á þessum árlegu tónleikum koma fram nemendur Tónlistarskólans á Akureyri sem eru í framhaldsnámi á hin ýmsu hljóðfæri og í söng.
Aðgangur er ókeypis en tekið er við frjálsum framlögum í Þorgerðarsjóð og verður posi á staðnum.

Allir hjartanlega velkomnir.


Ljótu hálfvitarnir á Græna Hattinum

Skrifað 06. mars 2012 klukkan 17:42 | | Fréttir, Tónlist |

Ljótu hálfvitarnir hófu endurkomutónleikaferð sína á smekkfullu Café Rosenberg um síðustu helgi. Nú er komið að næsta heimavelli – Græna Hattinum á Akureyri. Þar hyggjast Hálfvitar stilla upp á föstudaginn, spila um kvöldið og aftur á laugardagskvöld. Nánar »


Fjölbreytt dagskrá LA út leikárið

Skrifað 06. mars 2012 klukkan 17:23 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Þótt nokkuð sé liðið á leikárið hjá Leikfélagi Akureyrar er enn nóg framboð af sýningum sem leikhúsgestum býðst að sjá á næstu vikum.  Það má með sanni segja að það ættu allir að finna eitthvað fyrir sitt hæfi. Nánar »


Íslenski dansflokkurinn sýnir Minus 16 í Hofi á Akureyri

Skrifað 01. mars 2012 klukkan 00:38 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Íslenski dansflokkurinn verður sýninguna Minus 16 Menningarhúsinu Hofi á Akureyri  þann 8. mars næstkomandi. Á dagskránni verða tvö ólík verk sem bæði höfða til breiðs áhorfendahóps. Sýningin er því ætluð allri fjölskyldunni og fá 16 ára og yngri miðann á hálfvirði.

Fyrra verkið sem sýnt verður ber nafnið Groβstadtsafari og er eftir Norðmanninn Jo Strömgren. Verkið var frumsýnt þann 4. mars 2011 og fjallar um þá streitu og öngþveiti sem byggist upp í fjölmenni borgarlífsins. Þetta er kröftugt dansverk sem gerir miklar tæknilegar kröfur til dansaranna. Bryndís Schram á pressan.is sagði meðal annars í sínum dómi: „Verkið var geggjað flott og vitnaði enn um samstillingu og tæknilega yfirburði flokksins“ og bætti svo við „Flott show –svolítið í anda söngleikjanna – en þó öllu dramatískara“. Nánar »


LA: Gulleyjan. Fimm þúsundasti gesturinn væntanlegur á föstudagskvöld

Skrifað 29. febrúar 2012 klukkan 09:22 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikfélag Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið frumsýndi sjóræningjaleikritið Gulleyjuna í lok janúar og er 6.sýningarhelgin að ganga í garð. Hingað til hefur verið uppselt á hverja einustu sýningu og eru gagnrýnendur sammála um að Gulleyjan sé þrælskemmtilegt og bráðfjörugt fjölskylduleikrit.

Föstudagskvöldið 3.mars er von á 5 þúsundasta sýningargestinum og mun Leikfélag Akureyrar taka á móti honum með pomp og prakt. Um leið vill Leikfélagið hvetja bæjarbúa til að taka þátt í gleðinni með því að flagga sjóræningjafánum líkt og gert var um frumsýningarhelgina.


Guðrún Pálína opnar myndlistarsýninguna: Maður fram af manni

Skrifað 28. febrúar 2012 klukkan 10:01 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Fimmtudaginn 1. mars kl. 16.00 – 18.00 mun Guðrún Pálína Guðmundsdóttir opna myndlistarsýningu á Bókasafni Háskólans á Akureyri. Sýning Guðrúnar Pálínu er opin mánudaga og miðvikudaga frá kl. 8.00 – 16.00, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 8.00 – 18.00 og stendur til 30. mars. Sýningin er sú fjórða og síðasta í ættfræði-seríu sem Guðrún Pálína hefur unnið að síðustu árin og sýnt á Akureyri. Nánar »


Leikmyndin fyrir Nei ráðherra, áhorfendasýningu ársins er komin norður

Skrifað 27. febrúar 2012 klukkan 17:47 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikmyndin fyrir Nei ráðherra, áhorfendasýningu ársins er komin norður yfir heiðar og verður því unnið hörðum höndum næstu daga í Hofi við undirbúning og uppsetningu. Fyrsta sýning verður næstkomandi laugardagskvöld, 3. mars. Miðasala á sýninguna hefur gengið afar vel og miðarnir gjörsamlega rjúka út og hefur nú tveimur nýjum sýningum verið bætt við. Sýningarnar á Akureyri eru samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs, Borgarleikhússins og Leikfélags Akureyrar. Nánar »


Tónleikar og ljóðakvöld í Populus tremula um næstu helgi

Skrifað 27. febrúar 2012 klukkan 13:47 | | Atburðir, Fréttir, Menning |

Helgina 2.-3. mars verða tveir viðburðir haldnir í Populus tremula á Akureyri:

TRÚBADORAKVÖLD í Populus tremula 2. mars þar koma fram söngvaskáldin Kristján Pétur, Guðmundur Egill, Aðalsteinn Svanur og Þórarinn Hjartarson. Dagskráin hefst kl. 21. Þeir félagar munu flytja eigin lög og ljóð eða túlka verk annarra höfunda með sínu nefi. Húsið opnar kl. 20:30 aðgangur ókeypis og Malpokar leyfðir.

Nánar »


Norður í Mjólkurbúðinni Listagili

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 19:00 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Sólveig Thoroddsen opnar sýninguna NORÐUR í Mjólkurbúðinni Listagili, föstudaginn 24. febrúar kl. 17 og eru allir velkomnir.

Sólveig Thoroddsen um sýninguna Norður: Sýning "Norður" byggir á dvöl minni á Svalbarða í nóvember síðastliðnum. Í
verkum mínum túlka ég áhrif náttúru, samfélags og umhverfis. Sérstaklega er mér hugleikið sambandið milli manns og náttúru, aðlögun beggja afla hvort að öðru og spennuna sem ríkir oft milli þessa ólíku en þó náskyldu afla, því
maðurinn er, þegar allt kemur til alls, hluti af náttúrunni. Nánar »


Safnasafnið á Svalbarðströnd hlaut Eyrarrósina 2012

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 00:22 | | Fréttir, Menning |

Á laugardaginn 18. febrúar var tilkynnt að Safnasafnið á Svalbarðsströnd hafi fengið Eyrarrósina 2012 og veittu aðstandendur safnsins viðurkenningunni móttöku í athöfn sem fram fór á Bessastöðum. Viðurkenninguna hlýtur safnið fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, en safnið þykir vinna merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar. Verðlaunin sem safnið hlaut auk Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripð eftir Steinunni Þórarinsdóttir og flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Þetta kemur fram á heimasíðu Listahátíðar Reykjavíkur.


Afturhvarf – Bergþórutónleikar í Hofi 17. febrúar

Skrifað 13. febrúar 2012 klukkan 13:17 | | Fréttir, Menning, Tónlist |

Minningarsjóður Bergþóru Árnadóttur söngvaskálds efnir til árlegra tónleika í Salnum, Kópavogi 15. og 16. febrúar kl. 20, og í Hofi á Akureyri 17. febrúar.   Að þessu sinni er yfirskrift tónleikanna Afturhvarf, en á efnisskránni verða mörg af þekktari lögum Bergþóru auk laga sem sjaldan hafa heyrst á undanförnum árum. Flytjendur á tónleikunum eru: Guðrún Gunnars, Pálmi Gunnarsson, Svavar Knútur, Aðalsteinn Ásberg, Hjörleifur Valsson og Pálmi Sigurhjartarson. Gestasöngvari í Salnum verður sonardóttir Bergþóru, Valný Lára Jónsdóttir, en á Akureyri kemur fram menntaskólaneminn Móheiður Guðmundsdóttir. Yfirskrift tónleikanna vísar ennfremur til þess að nú koma við sögu samverkamenn Bergþóru um lengri eða skemmri tíma. Nánar »


Myndasyrpa frá Brettasýningu og sleðaspyrnu

Skrifað 12. febrúar 2012 klukkan 15:25 | | Fréttir, Sýningar |

Í gær var brettasýning á Ráðhústorginu í tengslum við Éljagang 2012 og í gærkvöld var svo sleðaspyrna í Hlíðarfjalli. Já nóg um að vera í bænum og Þórir Tryggvason ljósmyndari jafnan innan seilingar. Hann sendi Akureyri.net hreint út sagt frábærar myndir sem hann tók á þessum tveimur viðburðum. Nánar »



Menning