Menning

Meistari hinna blindu

Skrifað 06. desember 2011 klukkan 21:43 | | Fréttir, Menning |

Akureyringurinn Elí Freysson kemur nú fram með sínu fyrstu skáldsögu, Meistari hinna blindu.  Þetta er fyrsta bókin af mörgum um þá Mikael og félaga og er hann nú þegar klár með tvö handrit klár í viðbót og byrjaður á því fjórða.  Elí er aðeins 29 ára og hefur það lengi blundað í honum að gerast rithöfundur.  Meistari hinna blindu er 428 blaðsíðna fantasíubók sem hefur verið að fá frábæra dóma.

Árni Matthíasson gagnrýndi bókina í Morgunblaðinu síðustu helgi þar sem hann gefur henni þrjár og hálfa stjörnu og segir “Þetta er ævintýrasaga eins og þær gerast bestar í útlandinu, ill öfl, myrkir galdrar og endalausir bardagar.”    Nánar »


Karl Guðmundsson með jólamarkað í listagilinu.

Skrifað 06. desember 2011 klukkan 12:27 | | Fréttir, Sýningar |

Karl Guðmundsson sem verður 25 ára gamall síðar í mánuðinu og er mikið hreyfihamlaður opnaði síðast liðin laugardag jólamarkað í Listagilinu. Þar er  Karl með ýmsa listmuni til sýnis og sölu sem hann hefur unnið í nánu samstarfi við Rósu Júlíusdóttur. Nánar »


Kvennakór Akureyrar styrkir Mæðrastyrksnefnd Akureyrar

Skrifað 05. desember 2011 klukkan 11:06 | | Atburðir, Fréttir |

Fimmtudaginn 8. desember mun Kvennakór Akureyrar halda sína árlegu aðventutónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar. Tónleikarnir fara fram í Hamraborg í Hofi Menningarhúsi og hefjast kl. 20:00. Með kórnum koma fram Guðrún Gunnarsdóttir og Ívar Helgason. Allir flytendurnir gefa vinnu sína og ágóðinn rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar. Nánar »


Kertaljós og klæðin rauð …

Skrifað 29. nóvember 2011 klukkan 22:51 | | Atburðir, Fréttir |

Jólaannir í Gamla bænum Laufási 4. desember 13:30-16:00

Það er hangikjötsilmur í loftinu, snarkar í hlóðum og laufabrauðsútskurður í baðstofunni. Einhverjir skringilegir karlar eru á ferli í bæjargöngunum og fólk við jólaundirbúning um allan bæinn. Hvað er á seiði? Jólaandi liðins tíma verður á sveimi í Gamla bænum í Laufási við Eyjafjörð. Nánar »


Jólakortasýning í anddyri Glerárkirkju

Skrifað 26. nóvember 2011 klukkan 18:47 | | Fréttir, Sýningar |

Á aðventu 2011 er jólakortasýning í anddyri Glerárkirkju. Þar eru til sýnis kort úr tveimur einkasöfnum, annars vegar úr safni Gerðar Pálsdóttur, húsmæðrakennara, sem í dag er búsett á Hrafnagili og hins vegar úr safni Björns Guðmundssonar (1919-2011). Einnig hafa verið sett upp nokkur veggspjöld með fróðleiksmolum um sögu jólakorta og póstsendinga. Sýningin stendur yfir til og með 8. janúar og er opin almenningi fyrir og eftir auglýstar helgiathafnir í kirkjunni. Hópar geta einnig pantað leiðsögn um sýninguna í síma 464 8800. Nánar á vef Glerárkirkju www.glerarkirkja.is


Opin sýning útskriftarnema VMA

Skrifað 22. nóvember 2011 klukkan 16:00 | | Fréttir, Sýningar |

Point d’ébullition – Suðupunktur!  Opnun sýningar útskriftarnema listnámsbrautar Verkmenntaskólans á Akureyri verður í Ketilhúsinu föstudagskvöldið 25. nóvember n.k. frá kl 20 – 22

Sýningin verður aðeins opin þessa helgi, laugardag og sunnudag frá kl 14 – 17. Á sýningunni eru fjölbreytt verk nemenda af hönnunar og textíl- og myndlistarkjörsviði.


Myndlistasýning og ljóðakvöld í POPULUS TREMULA

Skrifað 21. nóvember 2011 klukkan 10:42 | | Fréttir, Sýningar |

Laugardaginn 26. nóvember kl. 14:00 opnar Sigrún Guðmundsdóttir sýninguna Ókyrrð og Eyþór Árnason heldur Ljóðakvöld kl. 21:00  Nánar »


Afmælistónleikar Kvennakórs Akureyrar á laugardag

Skrifað 18. nóvember 2011 klukkan 09:45 | | Atburðir, Menning |

Kvennakór Akrureyrar heldur tónleika í Hofi á laugardag kl. 15.

Kvennakór Akureyrar hefur starfað síðan 2001 og heldur því upp á 10 ára afmæli sitt í ár. Kórinn hefur á að skipa öflugum og skemmtilegum konum á öllum aldri sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af því að syngja saman, fyrir sig og aðra. Í tilefni af afmælinu heldur kórinn tónleika n.k. laugardag þann 19. nóvember í Hömrum, Hofi kl.15:00. Þar mun kórinn stikla á stóru yfir þessi 10 viðburðarríku ár og flytja lög sem spanna sögu kórsins. Einnig  mun kórinn frumflytja afmælislagið Árstíðirnar eftir texta Önnu Dóru Gunnarsdóttur kórfélaga við lag Daníels Þorsteinssonar stjórnanda kórsins. Með kórnum á tónleikunum spilar hljómsveit skipuð Aladár Rácz á píanó, Pétur Ingólfsson á kontrabassa og Emil Þorri Emilsson á slagverk.

Nánar »


Nýtt verk frumsýnt í kvöld: Saknað

Skrifað 18. nóvember 2011 klukkan 09:01 | | Menning, Sýningar |

Leikfélagið Silfurtunglið heldur áfram starfsemi en fyrr á þessu ári sýndi leikfélagið söngleikinn Hárið í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og í Hörpu í Reykjavík fyrir um 19.000 áhorfendur.

Í kvöld frumsýnir Silfurtunglið nýtt íslenskt frumsamið verk eftir Jón Gunnar Þórðarson; “Saknað”. Leikritið er sett upp í Rýminu í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Sýningin hefst klukkan 19.

Nánar »


Bubbi í Hofi 21. desember, Miðasala hefst í dag

Skrifað 18. nóvember 2011 klukkan 08:35 | | Almennt, Menning |

Það má með sanni segja að fyrsti í Þorláksmessu verður í Hofi þann 21. desember en þá mun Bubbi verða í fyrsta skipti á Akureyri með Þorláksmessutónleika.  Munu tónleikarnir verða með sama sniði og hinir venjubundnu Þorláksmessutónleikar sunnan heiða. Er von Bubba að þetta geti orðið árlegur viðburður fyrir norðan.  Miðasala hefst á tónleikana í dag kl. 13.  Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens í Hofi, 21. desember hefjast kl. 20:30.

 

Nánar »


Stuðlar: Kammertónleikar í Hofi

Skrifað 14. nóvember 2011 klukkan 15:07 | | Atburðir, Fréttir |

Það verður notaleg kvöldstund á Kammertónleikum í Hömrum15. nóvember kl. 20 þar sem hljóðfæraleikararnir Dagbjört Ingólfsdóttur (fagott), Gillian Haworth (óbó) og Páll Barna Szabó (píanó) koma fram.

Á efnisskránni eru tríó fyrir óbó, fagott og píanó eftir Michael Head (1900-1976), Jean Françaix (1912-1997), Pál Barna Szabó (1970), Ingólf Magnússon (1980), Francis Poulenc (1899-1963) og Ayser Vançin (1948). Nánar »


Jólamarkaður í Bónushúsinu í Kjarnargötu

Skrifað 13. nóvember 2011 klukkan 00:07 | | Atburðir, Fréttir |

Jólamarkaður verður í Bónushúsinu við Kjarnagötu næstu helgar fram að jólum.  Þar á boðstólum verða handverk og fleira.

Opnunartími markaðarins verður þannig:


Börn fyrir börn barnamenningarhátíð í Hofi

Skrifað 11. nóvember 2011 klukkan 08:57 | | Atburðir, Fréttir |

Menningarhúsið Hof efnir til barnamenningarhátíðar sunnudaginn 13. nóvember næstkomandi.

Tilgangur hátíðarinnar er að efla samstarf milli aðila sem koma að menningu barna á Norðurlandi, njóta menningar með börnum og láta um leið gott af sér leiða. Að þessu sinni rennur allur ágóði hátíðarinnar til Barnadeildar FSA.

Heimir Ingimarsson og Hjalti Jónsson ætla að hita upp fyrir hátíðina í Hömrum, minni sal Hofs, kl. 12-13 og stjórna söng og leikjum fyrir börn á leikskólaaldri. Skotta úr Stundinni okkar kíkir einnig í heimsókn. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Nánar »


Listasafnið á Akureyri Sýning um sýningarnar 1999-2011

Skrifað 03. nóvember 2011 klukkan 00:26 | | Fréttir, Sýningar |

Um áramótin verða þáttaskil í sögu Listagilsins á Akureyri þegar ný menningarmiðstöð á sviði sjónlista tekur til starfa. Ákveðið hefur verið að sameina Listasafnið á Akureyri og Menningarmiðstöðina í Grófargili, sem m.a. hefur haft umsjón með Ketilhúsi og Deiglunni, í eina stofnun sem fengið hefur nafnið Sjónlistamiðstöðin. Framvegis verður vísað til Listasafnsins eða Ketilhúss í Sjónlistamiðstöðinni eftir því hvar viðburðirnir eiga sér stað og mun miðstöðin heyra undir Akureyrarbæ.  Af þessu tilefni verður litið yfir farinn veg hjá Listasafninu á viðburðaríkum áratug 21. aldar til að draga upp heildstæða mynd af starfseminni á umræddu tímabili. Nánar »


Dúndurfréttir og Eiríkur Hauksson og Gestir út um allt í Hofi

Skrifað 02. nóvember 2011 klukkan 12:10 | | Atburðir, Fréttir |

Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur tónleika í Hofi, Akureyri föstudaginn 4. nóvember og með þeim í för verður enginn annar en rokksöngvarinn Eiríkur Hauksson.

Dúndurfréttir er landsins besta tónleikasveit og hafa þeir haldið uppi heiðri klassískrar rokktónlistar í 15 ár, og hefur sveitin haldið fjöldan allann af tónleikum víðsvegar um landið, m.a með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, svo fátt eitt sé upptalið. Nánar »



Menning