Atburðir

Ráðstefna um viðskiptasiðferði og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja

Skrifað 12. október 2011 klukkan 11:04 | | Atburðir, Fréttir |

Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og Félag viðskipta- og hagfræðinga efna til opinnar ráðstefnu um viðskiptasiðferði og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Ráðstefnan er haldin í hátíðarsal Háskólans á Akureyri, N 101, fimmtudaginn 13. október frá klukkan 10:00 – 13:00.

Ráðstefnustjórar eru Hafdís Björg Hjálmarsdóttir og Helgi Gestsson, lektorar við HA Nánar »


Akureyrarvaka sett í kvöld

Skrifað 26. ágúst 2011 klukkan 09:56 | | Atburðir, Fréttir |

Helgi og hljóðfæraleikaranir: Mynd Daníel StarrasonAkureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum í dag, föstudaginn 26. ágúst, kl 21.00. Lystigarðurinn er ein af perlum Akureyrar og fátt jafnast á við rómantíkina í rökkrinu við setningu Akureyrarvöku. Í garðinum verða ýmsar uppákomur; eldheitt kúbanskt salsa, tónlistargjörningar, álfar bjóða til veislu og svo munu  Helgi og hljóðfæraleikararnir spila fyrir gesti af sinni alkunnu snilld fram eftir kvöldi.

Akureyrarvaka er bæjarhátíð sem haldin er í kringum afmæli Akureyrarbæjar og markar jafnframt lok Listasumarsins. Dagskrá Akureyrarvöku hefur aldrei verið viðameiri en hátt í 100 viðburðir eru þegar komnir á dagskrá, sem enn er að stækka. Dagskrána í heild sinni er að finna á vefnum www.visitakureyri.is

Eitt af því sem einkennir Akureyrarvöku í ár er eyfirsk hönnun og munu bæði fag- og áhugaaðilar  sýna afurðir sínar vítt og breitt um miðbæ Akureyrar á laugardagskvöldið.


Nýr framkvæmdastjóri SN og nýtt starfsár gengur í garð

Skrifað 25. ágúst 2011 klukkan 09:37 | | Atburðir, Fréttir, Menning, Tónlist |

Brynja Harðardóttir er nýr framkvæmdarstjóri SN

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands réð til sinn nýjan framkvæmdarstjóra á dögunum og tók hún Brynja Harðardóttir við stjórnartaumunum þann 1. ágúst s.l.  Sinfóníuhljómsveitin hefur nýtt starfsár með Óperutöfrum í Hofi um helgina á Akureyrarvöku en þar er einvala lið listamanna.

Nánar »


Akureyrarvaka 2011 hefst föstudagskvöldið 26. ágúst

Skrifað 23. ágúst 2011 klukkan 11:27 | | Atburðir, Fréttir |

 

Frá Akureyrarvöku 2010. Mynd: Hugi Hlynsson

Enn og aftur gerast ævintýr á Akureyrarvöku sem sett verður í Lystigarðinum á föstudagskvöldið klukkan 21 með eldheitu kúbönsku salsa og álfaveislu, og mun Akureyrarvaka standa fram á sunnudag.  Þátttakendum fer alltaf fjölgandi og eru viðburðirnir, sem eru af öllum stærðum og gerðum og koma úr fjölda listgreina að nálgast hundraðið.

Það má segja að Sinfóníuhljómsveit Norðurlands þjófstarti Akureyrarvöku með töfratónleikum í Hofi og eftir að búið er að setja Akureyrarvöku getur fólk m.a valið að læðast um meðal drauga og annarra óhugnalegra vera á Draugaslóðinni í Innbænum eða skella sér á rómantískt bryggjuball á Torfunefsbryggju en á þessum tíma verður hjartað í Vaðlaheiði aftur farið að slá. Nánar »


Hádegistónleikar í Ketilhúsinu föstudaginn 19. ágúst.

Skrifað 17. ágúst 2011 klukkan 23:49 | | Atburðir, Fréttir |

Föstudaginn 19. Ágúst verða þær Hulda Jónsdóttir (fiðlu) og Jane Ade Sutarjo (píanó) með klassíska tónleika fyrir fiðlu og píanó og eru þetta síðustu hádegistónleikarnir á Listasumri í Ketilhúsinu. Tónleikarnir hefjast kl. 12:00 og er efniskráin er afar fjölbreytt. Aðgangseyrir er 1500 krónur og 1000 krónur fyrir eldri borgara.  Nánar »


Fiskidagurinn mikli haldinn í ellefta sinn

Skrifað 02. ágúst 2011 klukkan 21:41 | | Atburðir, Fréttir |

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er nú haldinn í ellefta sinn. Frá upphafi hefur markmið hátíðarinnar verið að fólk komi saman, hafi gaman og borði fisk. Ennfremur er allur matur og skemmtan á hátíðarsvæðinu ókeypis.

Það má segja að setning Fiskidagsins mikla sé með Vináttukeðjunni og hún verður á sínum stað fyrir neðan Dalvíkurkirkju kl. 18:00, föstudaginn 5. ágúst. Dagskráin er glæsileg að vanda. Meðal aðila sem fram koma á Vináttukeðjunni eru Eurovisionfarar Dalvíkurbyggðar Friðrik Ómar og Matti Matt, Tríóið Sykur og rjómi, Karlakór Dalvíkur og leikskólabörn í Dalvíkurbyggð. Vinátturæðuna flytur Svanhildur Hólm Valsdóttir, 5.000 friðardúfublöðrum verður sleppt, flugeldum skotið og knúskortinu dreift. Í lokin verður risaknús til þess að leggja vináttu og náungakærleikslínur fyrir helgina. Nánar »


Síðustu tónleikar sumarsins í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

Skrifað 27. júlí 2011 klukkan 10:52 | | Atburðir, Fréttir |

Síðustu tónleikar sumarsins í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða sunnudaginn 31. júlí kl. 17:00 en þá munu frábærar listakonur heimsækja Akureyri. Það eru þær Guðrún Ingimarsdóttir sópran, Sigrún Eðvaldsdóttir  fiðluleikari og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og munu þær leika klassískar perlur eftir þekkt tónskáld, m.a. Mozart, Bach, Händel og Tchaikovsky. Nánar »


Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur í Ketilhúsinu á heitum fimmtudegi

Skrifað 20. júlí 2011 klukkan 10:11 | | Atburðir, Fréttir |

Á Heitum fimmtudegi nr. 4 í Ketilhúsinu 21.júlí verður okkar jazzpíanódíva hún Sunna Gunnlaugs með trio sitt í eldlínunni á tónleikum , sem hefjast kl. 21:30. Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur er skipað auk hennar .Scott McLemore á trommur og Þorgrími Jónssyni á kontrabassa. Tríóið hefur nýlokið upptöku á nýjum geisladiski og er funheitt um þessar mundir. Sunna, sem vakið hefur athygli fyrir sinn snjalla píanóleik og lög víða um heim, hún fer með kvartett í Evrópuferð á komandi hausti. Efnisskrá tónleiknna nú er bæði áhugaverð og grípandi.

Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn, og er almennt miðaverð kr. 2.000, og 1.000 kr. fyrir félaga í Jazzklúbbi Akureyrar. Áskriftarkort gilda.

Stuðningsfyrirtæki Jazzklúbbsins til að halda Heita Fimmtudaga eru í ár:  Akureyrarstofa, Listasumar á Akureyri, Norðurorka, Menningarráð Eyþings, FÍH, Flugfélag Íslands, Goya Tapas bar, Gula Villan og Sella ehf.

Aðgöngumiðasala verður við innganginn og hefst einni klukkustund fyrir tónleika.


Hljómsveitin Myrká með hádegistónleika í Ketilhúsinu

Skrifað 12. júlí 2011 klukkan 23:02 | | Atburðir |

Ketilhús PJFöstudaginn 15. júlí mun hljómsveitin Myrká frá Akureyri halda hádegistónleika í Ketilhúsinu á Akureyri.

Tónlist hljómsveitarinnar er bæði dramatískt og drungalegt rokk, áhrifaskotið úr öðrum tónlistarstefnum og því eins gott að nýta dagsbirtuna. Leikin verða ný lög af væntanlegum diski í bland við eldra efni.  Hljómsveitina skipa þau: Hljómsveitin Myrká: Guðný Lára Gunnarsdóttir, söngur, gítar og þverflauta, Stefán Örn Viðarsson, orgel, söngur og bassi, Guðjón Svanur Hermannsson, gítar og Helgi Jónsson, trommur. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 12:00 á hádegi og er aðgangur ókeypis. Diskurinn 13 verður til sölu á staðnum á sérstöku tilboðsverði.


Gert til kola í Hörgársveit eftir 200 ára hlé.

Skrifað 06. júlí 2011 klukkan 23:29 | | Atburðir, Fréttir |

snidillÞað er ekki á hverjum degi sem gert er til kola á Íslandi lengur. Samt eru ekki nema tæp 200 á síðan þetta var árlegur viðburður og hver bær þurfti sín kol til þess að dengja ljái, en það er að slá fram eggina til að gera þá beittari. Á MIÐALDADGÖGUM  á Gásum í Eyjafirði  16.-19. júlí verður gert til kola í sveitinni í fyrsta skipti í 200 ár. Nánar »


Mógil á heitum fimmtudegi í Deglunni.

Skrifað 06. júlí 2011 klukkan 23:18 | | Atburðir, Fréttir |

MógilÁ Heitum fimmtudegi nr. 2 í Deiglunni í dagskrá Listasumars á Akureyri og nú verður að venju boðið upp á einstaklega fjölbreytta dagskrá á 9 tónleikum.

Þá leikur hið rómaða band MÓGIL, en kvartettinn skipa Heiða Árnadóttir söngur, Hilmar Jensson rafgítar, Joachim Badenhorst klarinett og Kristín Þóra Haraldsdóttir víola. Tónlistin er samin af hljómsveitarmeðlimum. Nánar »


Hátíðarhöld Togarajaxla haldin dagana 15. og 16. júlí

Skrifað 03. júlí 2011 klukkan 20:43 | | Atburðir, Fréttir |

TogarajaxlarDaganna 15. og 16. júlí ætla togarajaxlar að gera sér dagamun þegar haldinn verður Stórhátíð.  Dagskráin hefst með kvöldverði í Sjallanum þar sem Raggi Bjarna mun lofsyngja hetjur hafsins eins og honum einum er lagið. Valgeir Guðjónsson stuðmaður mun skemmta með söng og gaman málum. Sjómenn verða svo heiðraðir.  Síðan verður slegið upp alvöru balli þar sem hjómsveitin Togvírarnir halda uppi fjörinu. Nánar »


Heitir fimmtudagar á listagilinu í sumar

Skrifað 29. júní 2011 klukkan 21:27 | | Atburðir |

JassHeitir fimmtudagar eru löngu orðnir ómissandi þáttur í Listasumri á Akureyri  og nú verður að venju boðið upp á einstaklega fjölbreytta dagskrá á 9 tónleikum. Í gömlu góðu Deiglunni í gilinu verða fyrstu jazztónleikarnir undir þessu nafni haldnir n.k. fimmtudag, 30. júní, kl. 21:30. Nánar »


Líf og fjör í Gamla bænum Laufási

Skrifað 29. júní 2011 klukkan 13:00 | | Atburðir, Fréttir |
Mynd: Danshópurinn Vefarinn dansar og syngur á Hlaði Gamla bæjarins í Laufási

Mynd: Danshópurinn Vefarinn dansar og syngur á Hlaði Gamla bæjarins í Laufási

Upplifðu lífið eins og það var á 19. öld í burstabæ í Gamla bænum Laufási við Eyjafjörð á starfsdegi að sumri laugardaginn 2. júlí kl 13:30-16.00. Dagskráin hefst í kirkjunni kl 13:30 þar sem sr Gylfi Jónsson stýrir fjölskyldusamveru. Að henni lokinni verður fólk að störfum í Gamla bænum. Hann mun því iða af lífi á ný þennan dag þar sem fólk íklætt tilheyrandi klæðnaði mun vinna úti sem inni. Í Gamla bænum verður unnið úr undirstöðu mataræðis Íslendinga fyrr á öldum, mjólkinni, því þar verður bæði osta- og skyrgerð. Tilvalið er fyrir þá sem áhuga hafa á jurtum að kíkja við og safna fróðleiksmolum í sarpinn um íslenskar nytjajurtir.  Á hlaðinu verður heyskapur í fullum gangi þar sem slegið verður með orfi og ljá, heyið tekið saman og bundið í bagga. Fagrir tónar munu óma um sveitina kl. 15 um leið og danshópurinn Vefarinn stígur taktfastann dans við eigin söng. Nánar »


Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hefjast 3. júlí

Skrifað 28. júní 2011 klukkan 16:58 | | Atburðir, Fréttir |

Akureyrarkirkja_sumarTónleikaröðin Sumartónleikar í Akureyrarkirkju hefst sunnudaginn 3. júlí og verða tónleikar kl. 17:00 alla sunnudaga í júlímánuði. Þetta er í 25. skipti sem tónleikaröðin fer fram, en Sumartónleikarnir er önnur elsta tónleikaröðin á Íslandi. Nánar »



Atburðir