Jónas Viðar snýr heim í tilefni 50 ára afmælis síns og heldur sýningu fyrir Akureyringa. Ljósmyndari akureyri.net fékk að líta við í morgun meðan á uppsetningu stóð og taka nokkrar myndir.
Ljósmyndir: Daníel Starrason
Klukkan 13 í dagvoru gefnir miðar á tónleika Mugison sem verða á Græna hattinum næsta föstudagskvöld. Það verða haldnir tvennir tónleikar, kl. 20 og 23. Mikil eftirspurn var eftir miðum og þegar Haukur opnaði þá voru um 100 manns í röðinni. Nánar »
Eins og flestir vita þá bauð Mugison Íslendingum á tónleika í Hörpu þann 22. desember. Þeir tónleikar fylltust á mettíma og hefur hann því ákveðið að fara víðsvegar um landið og bjóða landsmönnum á tónleika. Hann mun halda tónleika á Akureyri föstudaginn 16. desember kl. 20 og 23. Hægt verður að nálgast miða á Græna hattinum mánudaginn 12. desember kl. 13.
Hið árlega bréfamaraþon Amnesty International fer fram á morgun 10. desember víðsvegar um heiminn í tilefni af alþjóðalegum mannréttindadegi hjá Sameinuðu þjóðunum. Á Akureyri verður bréfamaraþonið haldið á Amtsbókasafninu frá 11 – 16. Tilvalið að nýta nafn sitt og skrifa bréf til stjórnvalda sem brjóta á mannréttindum og/eða skrifa bréf til þolenda mannréttindabrota. Boðið verður upp á kaffi, kakó og kökur á meðan maraþoninu stendur.
Fimmtudaginn 8. desember mun Kvennakór Akureyrar halda sína árlegu aðventutónleika til styrktar Mæðrastyrksnefnd Akureyrar. Tónleikarnir fara fram í Hamraborg í Hofi Menningarhúsi og hefjast kl. 20:00. Með kórnum koma fram Guðrún Gunnarsdóttir og Ívar Helgason. Allir flytendurnir gefa vinnu sína og ágóðinn rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndar Akureyrar. Nánar »
Jólaannir í Gamla bænum Laufási 4. desember 13:30-16:00
Það er hangikjötsilmur í loftinu, snarkar í hlóðum og laufabrauðsútskurður í baðstofunni. Einhverjir skringilegir karlar eru á ferli í bæjargöngunum og fólk við jólaundirbúning um allan bæinn. Hvað er á seiði? Jólaandi liðins tíma verður á sveimi í Gamla bænum í Laufási við Eyjafjörð. Nánar »
Kvennakór Akureyrar hefur starfað síðan 2001 og heldur því upp á 10 ára afmæli sitt í ár. Kórinn hefur á að skipa öflugum og skemmtilegum konum á öllum aldri sem eiga það sameiginlegt að hafa gaman af því að syngja saman, fyrir sig og aðra. Í tilefni af afmælinu heldur kórinn tónleika n.k. laugardag þann 19. nóvember í Hömrum, Hofi kl.15:00. Þar mun kórinn stikla á stóru yfir þessi 10 viðburðarríku ár og flytja lög sem spanna sögu kórsins. Einnig mun kórinn frumflytja afmælislagið Árstíðirnar eftir texta Önnu Dóru Gunnarsdóttur kórfélaga við lag Daníels Þorsteinssonar stjórnanda kórsins. Með kórnum á tónleikunum spilar hljómsveit skipuð Aladár Rácz á píanó, Pétur Ingólfsson á kontrabassa og Emil Þorri Emilsson á slagverk.
Það verður notaleg kvöldstund á Kammertónleikum í Hömrum15. nóvember kl. 20 þar sem hljóðfæraleikararnir Dagbjört Ingólfsdóttur (fagott), Gillian Haworth (óbó) og Páll Barna Szabó (píanó) koma fram.
Á efnisskránni eru tríó fyrir óbó, fagott og píanó eftir Michael Head (1900-1976), Jean Françaix (1912-1997), Pál Barna Szabó (1970), Ingólf Magnússon (1980), Francis Poulenc (1899-1963) og Ayser Vançin (1948). Nánar »
Menningarhúsið Hof efnir til barnamenningarhátíðar sunnudaginn 13. nóvember næstkomandi.
Tilgangur hátíðarinnar er að efla samstarf milli aðila sem koma að menningu barna á Norðurlandi, njóta menningar með börnum og láta um leið gott af sér leiða. Að þessu sinni rennur allur ágóði hátíðarinnar til Barnadeildar FSA.
Heimir Ingimarsson og Hjalti Jónsson ætla að hita upp fyrir hátíðina í Hömrum, minni sal Hofs, kl. 12-13 og stjórna söng og leikjum fyrir börn á leikskólaaldri. Skotta úr Stundinni okkar kíkir einnig í heimsókn. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir. Nánar »
Hljómsveitin Dúndurfréttir heldur tónleika í Hofi, Akureyri föstudaginn 4. nóvember og með þeim í för verður enginn annar en rokksöngvarinn Eiríkur Hauksson.
Dúndurfréttir er landsins besta tónleikasveit og hafa þeir haldið uppi heiðri klassískrar rokktónlistar í 15 ár, og hefur sveitin haldið fjöldan allann af tónleikum víðsvegar um landið, m.a með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, svo fátt eitt sé upptalið. Nánar »
Föstudaginn 14. október verður haldin málstofa í viðskiptafræði. Þar mun Grétar Þór Eyþórsson prófessor halda erindi undir yfirskriftinni Íslenska stjórnkerfið fyrir og eftir hrun: Stefna og stjórnsýsla í efnahagsmálum. Málstofan er milli kl. 12.10 – 12.55 og er haldin í stofu R311 á Borgum. Allir velkomnir. Nánar »
Viðskiptadeild Háskólans á Akureyri og Félag viðskipta- og hagfræðinga efna til opinnar ráðstefnu um viðskiptasiðferði og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Ráðstefnan er haldin í hátíðarsal Háskólans á Akureyri, N 101, fimmtudaginn 13. október frá klukkan 10:00 – 13:00.
Ráðstefnustjórar eru Hafdís Björg Hjálmarsdóttir og Helgi Gestsson, lektorar við HA Nánar »
Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum í dag, föstudaginn 26. ágúst, kl 21.00. Lystigarðurinn er ein af perlum Akureyrar og fátt jafnast á við rómantíkina í rökkrinu við setningu Akureyrarvöku. Í garðinum verða ýmsar uppákomur; eldheitt kúbanskt salsa, tónlistargjörningar, álfar bjóða til veislu og svo munu Helgi og hljóðfæraleikararnir spila fyrir gesti af sinni alkunnu snilld fram eftir kvöldi.
Akureyrarvaka er bæjarhátíð sem haldin er í kringum afmæli Akureyrarbæjar og markar jafnframt lok Listasumarsins. Dagskrá Akureyrarvöku hefur aldrei verið viðameiri en hátt í 100 viðburðir eru þegar komnir á dagskrá, sem enn er að stækka. Dagskrána í heild sinni er að finna á vefnum www.visitakureyri.is
Eitt af því sem einkennir Akureyrarvöku í ár er eyfirsk hönnun og munu bæði fag- og áhugaaðilar sýna afurðir sínar vítt og breitt um miðbæ Akureyrar á laugardagskvöldið.
Brynja Harðardóttir er nýr framkvæmdarstjóri SN
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands réð til sinn nýjan framkvæmdarstjóra á dögunum og tók hún Brynja Harðardóttir við stjórnartaumunum þann 1. ágúst s.l. Sinfóníuhljómsveitin hefur nýtt starfsár með Óperutöfrum í Hofi um helgina á Akureyrarvöku en þar er einvala lið listamanna.