Íþróttir

Akureyri tekur á móti Val í N1 deild karla í kvöld kl. 19:30.

Skrifað 30. mars 2012 klukkan 11:34 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri tekur á móti Val í lokaumferð N1 deildarinnar í handbolta í leik sem fram fer í íþróttahöllinni í kvöld. Staða liðanna sem verða í úrslitakeppninni er svo jöfn að Akureyri, FH og HK/Fram gætu öll lent í 2. 3. eða 4. sæti þannig að það mun ekkert vanta upp á spennuna og mikilvægi leikja föstudagsins. Að þeim loknum verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitunum og hvaða lið fær heimaleikjarétt ásamt Haukum. Nánar »


Skíðamót Íslands: Keppt í sprettgöngu í gær.

Skrifað 30. mars 2012 klukkan 11:20 | | Fréttir, Íþróttir, Skíði |

Í gær hófst keppni á Skíðamóti Íslands sem fram fer daganna 29. mars – 1. apríl. í Hlíðarfjalli.  Í gær var keppt í sprettgöngu við frekar blautar aðstæður eins og kemur fram á vef Skíðafélags Akureyrar.  Í flokki kvenna voru ísfirðingar sigursælir og skipuðu þrjú efstu sætin. Silja Rán Guðmundsóttir varð í fyrsta sæti, önnur varð Rannveig Jónsdóttir og þriðja varð Elena Dís Víðisdóttir. Í flokki karla sigraði Sævar Birgisson frá Skíðafélagi Ólafsfjarðar, annar varð Vadim Gusev SKA og þriðji Brynjar Leó Kristinsson SKA. Nánar »


Lengjubikar karla: Sigur hjá Þór en tap hjá KA

Skrifað 26. mars 2012 klukkan 00:04 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Úr leik Þórs og Leiknis í dag

Í gær laugardag sótti KA lið Keflvíkínga í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í leik sem fram fór í Reykjaneshöllinni. Heimamenn í Keflavík hófu leikinn af krafti og náðu að skora tvívegis í fyrri hálfleik og leiddu 2-0 þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. KA mönnum tóks að minnka muninn í 2-1 með marki frá Jóhanni Helgasyni en lengra komust þeir ekki og 2-1 tap staðreynd. KA situr nú í 6. Sæti riðilsins með 4 stig og eiga tvo leiki eftir. Nánar »


SA Íslandsmeistari kvenna í íshokkí.

Skrifað 24. mars 2012 klukkan 19:24 | | Fréttir, Íshokkí, Íþróttir |

Lið SA sem varð Íslandsmeistari 2011

SA-  Ásynjur urðu í dag Íslandsmeistarar kvenna í íshokkí þegar liðið vann Björninn 6-2 í þriðja leik liðanna um baráttuna um titilinn. SA vann einvígið 3-0 og eru stelpurnar sannarlega vel að titlinum komnar. Til hamingju SA Ásynjur.

Meðfylgjandi er mynd frá því að liðið var Íslandsmeistari 2011


SA-Ásynjur geta orðið Íslandsmeistarar í íshokkí með því að vinna Björninn í dag.

Skrifað 24. mars 2012 klukkan 08:00 | | Fréttir, Íshokkí, Íþróttir |

SA-Ásynjur geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí kvenna í dag þegar þær taka á móti Birninum í leik sem hefst kl. 17 í Skautahöllinni á Akureyri. SA er yfir 2-0 í einvíginu og eru því komnar með aðra höndina á bikarinn en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki stendur uppi sem Íslandsmeistari. Akureyringar eru hvattir til þess að fjölmenna í höllina og styðja stelpurnar til sigurs.


Handbolti N1 deild karla: Akureyri og Fram skildu jöfn í æsispennandi leik í kvöld

Skrifað 23. mars 2012 klukkan 23:58 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri sótti lið Fram heim i kvöld í N1 deild karla í handbolta í leik sem fram fór í Safamýrinni. Það var mikið undir hjá báðum liðum sæti í úrslitakeppninni undir. Leikur liðanna í kvöld var æsispennandi og eins og segir í umfjöllun á heimasíðu Akureyri-handboltafélags   Þá buðu  leikmenn beggja liða vægast sagt uppá  háspennu og dramatík. Á lokasekúndum leiksins þegar staðan var jöfn 29-29 fengu Framarar kjörið tækifæri til þess að gera út um leikinn en Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrar var hetja liðsins og tryggði Akureyri annað stígið með því að verja skot frá hornamanninum Stefáni Baldvin Stefánssyni. Þegar ein umferð er eftir er ljóst að Akureyri hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Síðasti leikur liðsins í deildinni verður föstudaginn 30. Mars en þá koma Valsmenn í heimsókn í íþróttahöllina. Nánar »


Íshokkí kvenna: Öruggur sigur SA

Skrifað 23. mars 2012 klukkan 01:30 | | Fréttir, Íshokkí, Íþróttir |

Lið SA sem varð Íslandsmeistari 2011

SA- Ásynjur eru í góðri stöðu í baráttunni um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí en liðið lagði Björninn í kvöld í öðrum úrslitaleik liðanna sem fram fór í Egilshöll.  Lokatölur leiksins urðu 1-5 og SA er nú komin með 2-0 forystu í einvíginu og getur liðið tryggt sér titilinn með sigri á heimavelli laugardaginn 24. mars og hefst sá leikur kl. 17.00.


Þór/KA tapaði gegn Val í Lengjubikarnum í kvöld

Skrifað 23. mars 2012 klukkan 01:20 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Þór/KA tók á móti Val í A-deild Lengjubikarsins í kvöld í Boganum.  Svo fór að Valur fór heim með öll stigin sem í boði voru og höfðu þegar upp var staðið skorað 4 mörk gegn engu Þór/KA.

Valur komst yfir með mark á 23. mínútu og aðeins fjórum mínútum síðar bættu þær við marki og staðan í hálfleik var 2-0. Valur skoraði þriðja mark leiksins á 49. mínútu og á 56. mínútu bættu þær við fjórða markinu og þá var staðan orðin vonlítil fyrir heimamenn. 0-4 tap í kvöld gefur ekki rétta mynd af gangi leiksins, hann var jafnari en tölurnar gefa til kynna.  Nánar »


SA-Ásynjur sigruðu Björninn örugglega í kvöld.

Skrifað 20. mars 2012 klukkan 23:09 | | Fréttir, Íshokkí, Íþróttir |

SA- Ásynjur tóku í  kvöld forystuna um Íslandsmeistaratitil kvenna í íhokkí þegar liðið lagði Björninn  7-3 í leik sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri.  Næsti leikur liðanna fer fram í Egilshöll fimmtudagskvöldið 22. mars. Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki stendur uppi sem Íslandsmeistari.  Bendum á ítarlega og fína umfjöllun um leikinn á heimasíðu Skautafélagsins www.sasport.is


Baráttan um Íslandsmeistaratitil kvenna í íshokkí hefst í kvöld

Skrifað 20. mars 2012 klukkan 08:24 | | Fréttir, Íshokkí, Íþróttir |

Í kvöld fer fram fyrsti leikurinn í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistarartitilinn í íshokkí kvenna og eigast við SA Ásynjur og Björnin í Skautahöllinni á Akureyri og hefst leikurinn kl. 19:30.

SA Ásynjur, sem eru ríkjandi Íslandsmeistarar unnu deildarkeppnina í vetur næsta örugglega þar sem liðið vann 10 og 12 leikjum vetrarins. Það lið sem fyrr vinnu þrjá leiki verður Íslandsmeistari. Nánar »


Öruggur sigur Akureyringa gegn FH

Skrifað 19. mars 2012 klukkan 23:35 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri tók á móti FH í N1-deild karla í hanbolta í leik sem fram fór í íþróttahöllinni í kvöld. Skemmst er frá því að segja að Akureyri vann afar sanngjarnan sigur þar sem lokatölurnar urðu 30-26. Liðsmenn Akureyrar mættu mjög vel stemmdir til leiks og í raun gerðu þeir út um leikinn og höfðu 9 marka forystu í hálfleik 20-11. Í síðari hálfleik náðu heimamenn 10 marka forystu og það var ekki fyrr en á lokakaflanum að gestirnir náðu aðeins að klóra í bakkann. Endasprettur gestanna segir í  raun afskaplega lítið því heimamenn höfðu góð tök á leiknum allan tímann og sigurinn afar öruggur. Nánar »


N1- deild karla: Akureyri – FH í kvöld

Skrifað 19. mars 2012 klukkan 14:23 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Það verður boðið upp á sannkallaðan stórleik í íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tekur á móti FH í N1- deild karla í handbolta.  Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir áður en úrslitakeppnin tekur við. Baráttan um sæti í úrslitakeppninni er gríðarlega hörð en efstu fjögur liðin fara í hana.
Akureyri situr sem stendur í 4. sæti deildarinnar en menn mega ekkert misstíga sig í þeim leikjum sem eftir eru til að halda því. Leikurinn í kvöld er því afar mikilvægur.

Leikurinn hefst kl 19:00


Þórarinn Eymundsson sigraði á Stjörnutölti 2012.

Skrifað 18. mars 2012 klukkan 19:40 | | Fréttir, Íþróttir |

Þórarinn Eymundsson bar sigur úr bítum á Stjörnutölti 2012 sem haldið var í Skautahöllinni á Akureyri í gærkvöld. Þórarinn hlaut hvorki meira né minna en 8.50 í einkunn á hesti sínum Takti frá Varmalæk, átta vetra Kraftssyni. Mótið heppnaðist með eindæmum vel, fallegar sýningar margar hverjar og reiðmennskan ótrúlega fáguð og góð, eitthvað sem við hestamenn ættum að gleðjast yfir. Nánar »


KA bikarmeistarar í blaki karla.

Skrifað 18. mars 2012 klukkan 19:22 | | Fréttir, Íþróttir |

Úr myndasafni

KA menn urðu í dag bikarmeistarar karla í blaki þeir unnu Stjörnuna í úrslitaleik Asicsbikarnum sem fram fór í Laugardalshöllinni. Þetta er þriðji bikarmeistaratitill liðsins á jafnmörgum árum.

Til hamingju KA menn.


Misjafnt gengi knattspyrnuliðanna í Lengjubikarnum

Skrifað 18. mars 2012 klukkan 00:57 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Það var í nógu að snúast hjá Akureyrarliðunum í knattspyrnu í dag þ.e. Þór, KA og stelpurnar í Þór/KA. Karlalið Þórs hóf dagskrána í dag kl. 13 þegar þeir tóku á móti Valsmönnum. Eftir að jafnræði hafi verið með liðunum fyrsta stundafjórðunginn dróg til tíðinda. Þórsarar fengu dæmda á sig vítaspyrnu á 19. mínútu sem Valsmenn nýttu sér og komust yfir. Aðeins tveimur mínútum síðar var Lars Óla Jessen vikið af velli þegar hann fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Nánar »



Íþróttir