Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri Icelandair hótels við Þingvallastræti og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri fylgist vel með handbolta þessa daganna eins og megin þorri þjóðarinnar. Akureyri.net sló á þráðinn til hennar og fengum við hana til þess að spá fyrir leikinn í dag gegn Slóvenum. Nánar »
Íþróttir
Sigrún Björk Jakobsdóttir spáir í leikinn gegn Slóvenum
Skrifað 20. janúar 2012 klukkan 09:00 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |Bryndís Rún Hansen íþróttamaður Akureyrar 2011
Skrifað 18. janúar 2012 klukkan 20:36 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Íþróttir |
Íþróttamaður Akureyrar 2011 var kynntur í kvöld í hófi á Hótel KEA og það var sundkonan Bryndís Rún Hansen sem var hlutskörpust þriðja árið í röð. Í öðru sæti varð handknattleiksmaðurinn Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar, og í þriðja sæti Helga Hansdóttir júdókona úr KA. Bryndís Rún sem býr í Noregi náði frábærum árangri á síðast ári, fimm Íslandsmeistaratitlar auk þess setti hún fimm Íslandsmet. Þá varð hún norskur meistari því eins og áður segir býr Bryndís í Noregi og keppir fyrir hönd Bergensvömmer. Nánar »
Atli Hilmarsson spáir í leik Íslands og Noregs
Skrifað 18. janúar 2012 klukkan 08:30 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |
Vegna leiks Íslands og Noregs hafði akureyri.net samband við Atla Hilmarsson þjálfara Akureyri handboltafélags og fyrrum landsliðsmann bað hann að spá fyrir um leikinn í kvöld. Einnig báðum við hann að gera upp í fáum orðum leikinn gegn Króatíu. Nánar »
Snjór um víða veröld: Frítt fyrir börnin í skíðabrekkurnar 22. janúar.
Skrifað 18. janúar 2012 klukkan 08:00 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Íþróttir, Skíði |
Íslands, sem í samstarfi við skíðafélögin og skíðasvæðin taka höndum saman um þátttöku í átaki Alþjóða skíðasambandsins, FIS, um að tileinka einn dag á vetri hvatningu til aukinnar skíðaiðkunnar barna. World Snow day“ er nú haldinn í fyrsta sinn um allan heim og hér á landi udnir yfirskriftinni ,,Snjór um víða veröld. Af þessu tilefni verður ókeypis á skíðasvæðin á sunnudag fyrir 12 ára og yngri og á skíðasvæðunum í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, Stafdal og Oddskari verður frítt allan þennan dag.
Akureyringurinn Halldór Helgason kominn í undanúrslit
Skrifað 18. janúar 2012 klukkan 07:35 | Jóhann Jónsson | Íþróttir |
ESPN sjónvarpsstöðin stendur fyrir Real Snow games þar sem átta bestu snjóbrettam0nnum var boðið að senda inn 60 sek myndband með þeirra stökkum. Halldór tók myndir af sér stökkva víðsvegar um Akureyri og hægt er að sjá myndbandið á síðunni. Allir geta kosið. Undanúrslitin standa til 23. janúar og úrslitin eru svo frá 24. – 29. janúar. Sá sem sigrar á möguleika á að vinna 50.000 dollara verðlaunafé eða um 6 milljónir króna. Hægt er að kjósa og sjá myndbandið hér
Geir Kristinn Aðalsteinsson spáir í EM í handbolta
Skrifað 16. janúar 2012 klukkan 09:00 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |
Í gær hófst EM í handbolta karla sem haldið er í Serbíu daganna 15.-29. janúar. Akureyri.net hafði samband við Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar og fyrrum handboltakappa og fékk hann til þess að spá fyrir um gengi Íslands á mótinu. Geir Kristinn var m.a. þjálfari Odds Grétarssonar hjá 2. flokki Akureyri handboltafélags. Nánar »
Grótta lagði KA/Þór í botnslag N1 deildar kvenna í handbolta
Skrifað 15. janúar 2012 klukkan 13:12 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |
Í gær tók KA/Þór á móti Gróttu í N1 deild kvenna í handbolta í leik sem fram fór í KA heimilinu. Fyrir leikinn var Grótta í neðsta sæti deildarinnar með 1 stig en KA/Þór sæti ofar með 2 stig og því um sannkallaðan botnslag að ræða. Fór svo að gestirnir fóru með eins marks sigur í hörkuleik þar sem lokatölurnar urðu 26-25. Nánar »
Þróttur N. lagði KA 3-0 í Mikasadeild kvenna í blaki
Skrifað 15. janúar 2012 klukkan 12:57 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Íþróttir |
Þróttur Nes tyllti sér í fjórða sæti í Mikasadeild kvenna í blaki með góðum 3:0 sigri á KA en liðin mættust á Akureyri í gær í KA heimilinu. Þróttur Nes er því með 9 stig, stigi fyrir ofan Ými í 5. sæti en KA rekur lestina með aðeins eitt stig í 7. sæti.
Þróttur Nes vann fyrstu hrinu leiksins 25:13. Meiri spenna var í annarri hrinunni en gestirnir höfðu betur 25:17. Þriðja hrina leiksins fór svo 25:12 fyrir Þrótt Nes og því þrjú stig í höfn hjá Íslandsmeisturunum. Nánar »
KA vinnur Þór2 og KA/Þór tapar gegn Gróttu.
Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 19:53 | Jóhann Jónsson | Fótbolti, Íþróttir |
Í dag fékk KA/Þór Gróttu í heimsókn í KA heimilið en þau eru tvö neðstu liðin í deildinni. Grótta bar sigurorð af KA/Þór 25-26 og hafði þar með sætaskipti við KA/Þór. Í Hleðslumótinu í knattspyrnu vann KA – Þór 2 5-1. Mark Þórs skoraði Hákon Guðni Hjartarson. Hjá KA var Jóhann Helgason með þrennu og Hallgrímur Már Steingrímsson með tvö mörk.
Fotbolti og handbolti um helgina
Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 13:11 | Páll Jóhannesson | Fótbolti, Fréttir, Handbolti, Íþróttir |
Í dag kl. 14:15 mætast Þór 2 og KA í leik sem fram fer í Boganum og er leikur liðanna liður í Hleðslumótinu sem fram fer um þessar mundir. Síðar í dag eða kl. 16. Verður blásið til leiks milli KA/Þórs og Gróttu í N1 deild kvenna í handbolta en hlé hefur verið á deildinni um nærri tveggja mánaða skeið. KA/Þór situr í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en Grótta í neðsta sætinu með 1 stig. Á morgun fer svo fram leikur KF og Magna í Hleðslumótinu í Boganum og hefst leikur liðanna kl. 16:00.
Margir leikmenn undirrita hjá Þór og Þór/KA í fótboltanum
Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 12:50 | Páll Jóhannesson | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |
Í gærkvöld voru undirritaðir samningar við 8 leikmenn hjá meistaraflokkum Þórs og Þórs/KA í knattspyrnu. Hjá karlaliðinu voru það þeir Kristinn Þór Björnsson, sem kemur frá Dalvík/Reyni og Rúnar Þórhallsson og gerðu þeir báðir tveggja ára samninga við félagið. Hjá Stelunum voru það; Amanda Mist Pálsdóttir, Oddný Karólína Hafsteinsdóttir, Helena Jónsdóttir, Sandra María Jessen, Heiða Ragney Viðarsdóttir og Katla Ósk Káradóttir. Samningar stelpnanna eru til tveggja ára. Nánar »
Þór sigraði Ármann í botnslag 1. deildar í körfubolta
Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 12:40 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Körfubolti |
Í gærkvöld tóku Þórsarar á móti Ármanni í 1. deild karla í körfubolta í leik sem fram fór í íþróttahöllinni. Fyrir leikinn sátu Ármenningar á botni deildarinnar með 2 stig en Þór í næst neðsta sætinu með 4 stig. Leikurinn var jafn og spennandi allt frá upphafi til enda og það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins að Þórsarar náðu að gulltryggja sér 11 stiga sigur 95-84. Stigahæstir hjá Þór voru þeir Spencer Harris með 27 stig og Eric Palm með 26. Spenser var frábær í gærkvöld og skoraði m.a. 6 þriggja stiga körfur í 8 skottilraunum. Næstur kom Eric Palm 26, Stefán Torfason og Darko Milosevic 15 hvor. Hjá Ármanni var Árni Jónsson stigahæstur með 21 stig og hann var m.a. sjóðheitur í þriggja stiga skotum og setti niður 5skot í 8 tilraunum, Snorri Páll Sigurðsson 15 stig og fyrrum leikmaður Þórs Wesley Hsu var með 11. Eftir sigurinn eru Þórsar komnir með 6 stig og höfðu þar með sæta skipti við FSu sem nú er komið í næst neðsta sæti deildarinnar.
Þór tekur á móti Ármanni í kvöld
Skrifað 13. janúar 2012 klukkan 12:00 | Páll Jóhannesson | Fréttir, Íþróttir |Einn leikur verður í 1. deild karla í körfubolta í kvöld en þá tekur Þór á móti Ármanni í leik sem fram fer í íþróttahöllinni og hefst leikurinn kl. 19:15. Þór og Ármann eru í tveimur neðstu sætum deildarinnar svo búast má við mikilli baráttu. Þór er í 9. sætinu með 4 stig en Ármann í 10. og neðsta sætinu með 2 stig. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Þórs eru líkur á að leikurinn verði sýndur beint á netinu og einni bein lýsing á Hljóðvarpi Þórs. Jafnframt kemur fram að Byr Sparisjóður bíður bæjarbúum frítt á leikinn. Þú getur fylgst með beinni útsendingu hér á vefnum með því að smella á fréttina.
Hleðslumótið 2012 hefst í kvöld.
Skrifað 06. janúar 2012 klukkan 15:50 | Páll Jóhannesson | Fótbolti, Íþróttir |
Hið árlega knattspyrnumót knattspyrnudómarafélags Norðurlands hefst í kvöld og verður opnunarleikur mótsins viðureign Þórs og Völsungs. Auk heimaliðanna í Þór og KA eru Völsungur, Magni, Dalvík/Reynir og KF sem taka þátt. Þór og KA tefla fram hvort um sig tveimur liðum þ.e. annars vegar meistaraflokkum og hins vegar 2. flokks. Spilað verður í tveimur fjögurra liða riðlum og fara allir leikir mótsins fram í Boganum. Á laugardag verða svo spilaðir tveir leikir sá fyrri verður leikur KA og Magna og hefst sá leikur kl. 14:15 og sá síðari leikur KA 2 og Dalvík/Reynis og hefst sá leikur kl. 16:15.
Á sunnudaginn 8. Janúar hefja strákarnir í Þór 2 (2. flokkur) leik þegar þeir mæta liði KF og hefst leikur liðanna kl. 15:15.
Hægt verður að fylgjast með úrslitum leikja á vef ksí.is. Enginn aðgangseyrir á leikina.
Jötnar lögðu Skautafélag Reykjavíkur í framlengdum leik í kvöld
Skrifað 05. janúar 2012 klukkan 23:59 | Páll Jóhannesson | Íshokkí, Íþróttir |
Jötnar tóku á móti SR á Íslandsmótiu í íshokkí í leik sem fram fór í Skautahöllinni á Akureyri. Fór svo að Jötnar höfðu eins marks sigur 8-7 í framlengdum leik. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 7-7 en það var Sigurður Sigurðsson sem tryggði Jötnum sigurinn með marki í framlengingu. Staðan í deildinni er nú sú að Björninn hefur 28 stig eftir 12 leiki, Víkingar hafa 21 stig og SR-ingar 20 stig en bæði liðin hafa leikið 9 leiki.





