Akureyrarmótið í Krullu eða Curling hefst á mánudaginn og verður leikið á mánudagskvöldum fram í nóvember. Í tilkynningu frá Krulludeild Skautafélags Akureyrar segir að gera megi ráð fyrir að um átta lið með um 40 manns innanborðs taki þátt í mótum vetrarins í krullunni. “Nýtt fólk er ávallt velkomið á svellið og er krullufólk boðið og búið að hjálpa og leiðbeina nýliðum.”
Krulludeild SA stendur fyrir ýmsum mótum á veturna og endar keppnistímabilið með alþjóðlega mótinu Ice Cup um mánaðamótin apríl og maí. Krullufólk frá Akureyri hefur reglulega tekið þátt í mótum erlendis, meðal annars heimsmeistaramóti eldri leikmanna. Árið 2007 sendi Ísland í fyrsta skipti lið til þátttöku á Evrópumótinu. Núverandi Íslandsmeistarar munu taka þátt í Evrópumótinu sem fram fer í Aberdeen í Skotlandi 4.-12. desember.
Nánar »