Handbolti

Akureyri tapaði gegn Haukum í kvöld

Skrifað 12. mars 2012 klukkan 21:55 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Lið Akureyrar handboltafélags tapaði illa gegn  Haukum N1 deild karla í handbolta í leik sem fram fór syðra í kvöld. Skemmst er frá því að segja að Haukar höfðu mikla yfirburði og lokatölur leiksins urðu 26-18 en staðan í hálfleik var 10-7 Haukum í vil. Bjarni Fritzson var markahæstur Akureyrar með 6 mörk og Oddur Grétarsson með 4. Hjá Haukum voru þeir Stefán Rafn Sigurmannsson og Sveinn Þorgeirsson markahæstir með sex mörk hvor. Markvörður Hauka, Aron Rafn Eðvarðsson var Akureyringum erfiður í kvöld en hann varði 23 skot í leiknum. Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrar varði tólf skot í leiknum í kvöld.


Akureyri upp í þriðja sætið í N1 deild karla eftir sigur á HK (Myndir)

Skrifað 08. mars 2012 klukkan 22:14 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri tók á móti HK í 17. umferð N1 deildar karla í handknattleik í kvöld í leik sem fram fór í íþróttahöllinni. Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi en gestirnir voru heldur sprækari í fyrri hálfleik og leiddu í leikhlé með tveimur mörkum 12-14. Heimamenn reyndust svo sterkari í síðari hálfleik og náð á tíma allt að fjögurra marka forystu og höfðu að lokum þriggja marka sigur 31-28. Með sigri Akureyrar í kvöld höfðu liðin sæta skipti í deildinni. Akureyri í 3. sætið  með 22 stig og HK í því fjórða með 21. Nánar »


N1 deild karla í handbolta: Akureyri – HK í íþróttahöllinni í kvöld

Skrifað 08. mars 2012 klukkan 13:49 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í kvöld tekur Akureyri á móti HK í N1 deild karla í handbolta og er óhætt að segja að þetta sé einn af úrslitaleikjum deildarinnar. Ljóst er að sigurvegarinn í leiknum situr í þriðja sæti deildarinnar. Fólk er hvatt til þess að fjölmenna á leikinn og styðja liðið til sigurs. Húsið opnar kl.  18:15 en leikurinn sjálfur hefst kl. 19:00.


KA/Þór skellti Haukum í Hafnarfirði

Skrifað 04. mars 2012 klukkan 09:51 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í gær sóttu stelpurnar í  KA/Þór lið Hauka heim í N1 deild kvenna sem fram fór í Hafnarfirði í gær. KA/Þór gerði sér lítið fyrir og lagði Hauka að velli, 26-22, Sigur liðiðsins er afar mikilvægur í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni, sem sex efstu liðin fara í. Eftir sigurinn fór KA/Þór upp fyrir Hauka í sjötta sætið með átta stig en Haukar fara niður í áttunda. Mörk KA/Þórs: Ásdís Sigurðardóttir 10, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 5. Hjá heimamönnum var atkvæðamest með 12 mörk. . Staðan og næstu leikir.


Akureyri lagði Aftureldingu í kvöld

Skrifað 01. mars 2012 klukkan 22:46 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Oddur Grétarsson

Akureyri sótti lið Aftureldingar heim í leik sem fram fór að Varmá í Mosfellsbæ  í N1 deild karla í handbolta. Skemmst er frá því að segja að Akureyri vann öruggan 5 marka sigur 23-28 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-14 Akureyri í vil. Eftir sigurinn er Akureyri komið upp í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig einu stigi ofan við HK sem á leik til góða.

Oddur Grétarsson var markahæstur Akureyrar með 7 mörk og Hörður Fannar Sigþórsson kom næstur með 6 mörk og þeir Bjarni Fritzson og Geir Guðmundsson með 5 mörk hvor. Hjá Aftureldingu skoruðu þeir Böðvar Ásgeirsson og Jóhann Jóhannsson 5 mörk hvor.


KA/Þór tapaði fyrir Fram í dag

Skrifað 18. febrúar 2012 klukkan 21:40 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Stelpurnar í KA/Þór tóku á móti Fram í N1 deild kvenna í handbolta í leik sem fram fór í KA-heimilinu. Svo fór að gestirnir höfðu öruggan átta marka sigur 20-28 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 11-17. Ásdís Sigurðardóttir var markahæst í liði KA/Þórs með 8 mörk en Martha Hermannsdóttir skoraði 5. Hjá gestunum var Elísabet Gunnarsdóttir markahæst með 10 mörk en Stella Sigurðardóttir skoraði 5. Nánar »


Bjarni Fritzson besti leikmaðurinn og Atli Hilmarsson besti þjálfarinn

Skrifað 15. febrúar 2012 klukkan 23:47 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í dag var tilkynnt um val HSÍ á bestu leikmönnum og þátttakendum í 8. -14. Umferð N1 deild karla í handbolta. Óhætt er að segja að Akureyri hafi verið í sviðsljósinu því Bjarni Fritzson var ekki einvörðungu valinn besti hægri hornamaðurinn heldur besti leikmaður þessa hluta deildarinnar.  Þá var Atli Hilmarsson valin besti þjálfarinn og Akureyri með bestu umgjörðina. Óskum Bjarna og Atla til hamingju með þessar viðurkenningar sem og öllum þeim sem að liðinu standa og hafa gert umgjörðina jafn glæsilega og raunin er á. Nánar »


KA/Þór skellti HK í N1 deild kvenna í dag

Skrifað 04. febrúar 2012 klukkan 21:18 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Stelpurnar í KA/Þór lögðu HK í dag í leik sem fram fór í KA heimilinu nokkuð óvænt verður að segjast en leiknum lauk með sigri heimamann 23-22. KA/Þór hafði yfirhöndina nánast alla leikinn. KA/Þór sem hafði verið í botnbaráttu lyfti sér með sigrinum af botninum og er nú í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig en HK er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig. Nánar »


HK fór með sigur af hólmi

Skrifað 03. febrúar 2012 klukkan 00:01 | | Handbolti, Íþróttir |

HK mætti í Íþróttahöllina í kvöld og mætti Akureyri Handboltafélagi eftir langt frí vegna EM í handbolta.  HK hafði náð sex marka forystu í seinni hálfleik en Akureyri náði að jafna undir lokin.  HK ingar höfðu svo betur á lokamínútu leiksins og náðu að setja tvö mörk á síðustu mínútunni. Markahæstur hjá Akureyri var Bjarni Fritzson með 9 mörk. Nánar »


Akureyri tekur á móti HK í kvöld

Skrifað 02. febrúar 2012 klukkan 13:46 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í kvöld byrjar handboltinn að rúlla á nýjan leik eftir hlé sem gert var vegna Evrópumótsins og er fyrsta verkefni ársins hjá Akureyri er að taka á móti HK í leik sem fram fer í íþróttahöllinni og hefst hann kl. 19. Um að gera fyrir fólk að drífa sig í kvöld í höllina og hvetja liðið til sigurs.


Andri Snær Stefánsson til liðs við Akureyri á ný

Skrifað 27. janúar 2012 klukkan 12:38 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Andri Snær Stefánsson handboltamaðurinn snjalli sem hefur leikið síðasta eitt og hálft árið með danska liðinu Odde Håndbold er nú á heimleið og mun leika með Akureyri  það sem eftir lifir tímabilsins. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur þetta er fyrir Akureyri að fá Andra heim í þeim átökum sem framundan eru í handboltanum.  Andri Snær kemur heim um mánaðarmótin. Þetta kemur fram á vef Akureyri handboltafélags.


Samúel Jóhannsson spáir í leik Íslands og Frakklands

Skrifað 25. janúar 2012 klukkan 10:18 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir | 3 athugasemdir |

Samúel Jóhannsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Gilja- og Glerárskóla spáir í leik Íslands og Frakklands sem fram fer í dag og hefst kl. 15:10.  Samúel er mikill áhugamaður um handknattleik og hinn siðari ár verið virkur í uppbyggingu Akureyri handboltafélags. Þá var Samúel eins og flestum ætti að vera kunnugt um snjall íþróttamaður á sínum yngri árum en er hvað þekktastur fyrir að hafa verið markvörður  með Þór og ÍBA. Nánar »


Rúnar Sigtryggsson spáir í leik Íslands og Spánar

Skrifað 24. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri.net sló á þráðinn til Rúnars Sigtryggssonar fyrrum landsliðsmanns  í handknattleik og fékk hann til þess að spá í leik Íslands og Spánar sem fer fram í dag. Rúnar á að baki langan og farsælan feril  í handbolta m.a. sem atvinnumaður erlendis, auk þess sem  hann þjálfaði Akureyri handboltafélag. Leikur liðanna hefst kl. 15:10. Nánar »


Ingibjörg yfir ljósmóðir á kvennadeild FSA spáir í leik Íslands og Ungverjalands

Skrifað 22. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Ingibjörg Hanna Jónsdóttir yfirljósmóðir á kvennadeild FSA spáir í leik Íslands og Ungverjalands í milliriðlum EM í handbolta.  Akureyri.net sló á þráðinn til Ingibjargar og fengum við hana til þess að spá í leik Íslands gegn Ungverjum sem fer fram í dag og hefst kl. 15:10 Nánar »


Sigrún Björk Jakobsdóttir spáir í leikinn gegn Slóvenum

Skrifað 20. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri Icelandair hótels við Þingvallastræti og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri fylgist vel með handbolta þessa daganna eins og megin þorri þjóðarinnar. Akureyri.net sló á þráðinn til hennar og fengum við hana til þess að spá fyrir leikinn í dag gegn Slóvenum. Nánar »



Handbolti