Handbolti

Akureyri Íslandsmeistari 2. flokks karla í handbolta (Myndasyrpa)

Skrifað 05. maí 2012 klukkan 19:01 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Strákarnir í öðrum flokki urðu Íslandsmeistarar í handbolta í dag þegar þeir lögðu Fram í  framlengdum úrslitaleik sem fram fór í Schenkerhöllin í dag. Akureyri var sterkari aðilinn lengst af leiknum en góður kafli Fram undir lok leiksins náðu þeir að jafna leikinn og því þurfti að framlengja leikinn. Akureyri reyndist svo sterkari aðilinn í framlengingunni og hafði að lokum eins marks sigur 28-29 og Íslandsmeistaratitilinn staðreynd. Nánar »


Akureyri úr leik

Skrifað 26. apríl 2012 klukkan 00:28 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri tók á móti FH í fjórðu viðureign liðanna í baráttunni  um að komast í úrslitaleikina gegn HK í leik sem fram fór í íþróttahöllinni í kvöld. Akureyri var 2-1 undir í baráttunni þegar liðin mættust og liðið varð að vinna leikinn til þess að komast alla leið. En FH reyndist sterkari aðilinn i kvöld og höfðu þegar upp var staðið þriggja marka sigur 25-28 en staðan í hálfleik var 12-14 FH í vil. Nánar »


Akureyri tekur á móti FH í kvöld

Skrifað 25. apríl 2012 klukkan 08:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í kvöld tekur Akureyri á móti FH í úrslitakeppni N1 deildar karla í handbolta í leik sem fram fer í íþróttahöllinni.  FH leiðir 2-1 í baráttunni við að komast í úrslit og þurfa því aeins einn sigur til að komast alla leið. Fyrir Akureyri er þetta barátta upp á líf og dauð og því kemur ekkert annað en sigur til greina til þess að knýja fram oddaleik í Hafnarfirði.  Leikur liðanna hefst  kl.  19.


Fríar sætaferðir í Hafnarfjörð á morgun

Skrifað 21. apríl 2012 klukkan 20:36 | | Handbolti, Íþróttir |

Áttan stuðningsmannalið Akureyri Handboltafélags býður upp á fríar sætaferðir á leik FH – Akureyri sem fer fram í Kaplakrika á morgun.  Við komu í Reykjavík verður farið í pítsuveislu í boði Wilson.  Farið verður klukkan 8 í fyrramálið frá Akureyri.  Það er gríðarlega mikilvægt að strákarnir í Akureyri fái allan þann stuðning sem mögulegt er.  Skráning er á heimasíðu Akureyri Handboltafélags.


Akureyri vann öruggan sigur á FH í kvöld

Skrifað 21. apríl 2012 klukkan 00:02 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Úr myndasafni

Akureyri jafnaði metin gegn FH í kvöld í annarri viðureign liðanna í úrslitakeppni N1 deildar karla þegar liðin mættust í íþróttahöllinni í kvöld. Gestirnir úr Hafnarfirði byrjuðu þó leikinn betur en Akureyri snéri leiknum sér í vil og unnu að lokum sannfærandi  7 marka sigur 25-18 en staðan í hálfleik var 11-9 Akureyi í vil. Leikmenn Akureyrar léku á alls oddi í síðari hálfleik og náðu á tímabili tíu marka forystu og sigur liðsins var aldrei í hættu. Nánar »


Akureyri tekur á móti FH í kvöld

Skrifað 20. apríl 2012 klukkan 13:35 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Það verður sannarlega hart barist í höllinni í kvöld þegar Akureyri tekur á móti FH í öðrum leik liðanna í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla. FH vann Akureyri í fyrsta leiknum sem fram fór í Kaplakrika en í kvöld þurfa þeir ekki einungis að eiga við Akureyri innan vallar heldur utan vallar líka enda Akureyri með bestu stuðningsmannalið sem þekkist á landi hér. Leikur liðanna hefst kl. 20 en húsið opnar kl. 19:15

Nánar »


Norðlenska verður einn aðalstyrktaraðili KA/Þór

Skrifað 18. apríl 2012 klukkan 21:42 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í gær var undir undirritaður samningur milli Norðlenska og KA/Þórs kvennaliðs í handbolta. Norðlenska verður á næstu árum einn aðalstyrktaraðili liðsins og er þetta mjög mikilvægt í því starfi sem framundan er í kvennahandboltanum við að halda stelpunum okkar í fremstu röð. Nánar »


Heimir Örn Árnason og Bjarni Frizson taka við þjálfun Akureyrar

Skrifað 13. apríl 2012 klukkan 17:53 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í dag undirrituðu Heimir Örn Árnason og Bjarni Fritzson, leikmenn Akureyrar tveggja ára samning við félagið um að taka við þjálfun liðsins eftir tímabilið. Skrifað var undir samningana í höfuðstöðum Norðlenska á Akureyri.  Eins og kunnugt er, lætur Atli Hilmarsson af störfum sem þjálfari í vor þegar úrslitakeppninni lýkur. Nánar »


Handbolti karla 2. flokkur: Akureyri deildarmeistari

Skrifað 31. mars 2012 klukkan 17:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Strákarnir í Akureyri kláruðu deildarkeppnina í dag með miklum glæsibrag þegar þeir  tóku á móti FH í og höfðu öruggan 12 marka sigur 33-21 og eru deildarmeistar 2012. Ríflega 400 áhorfendur mættu í  íþróttahöllina til þess að styðja strákana og fögnuðu gríðarlega í leikslok  þegar Akureyri fékk afhentan deildarmeistarabikarinn.

Til hamingju Akureyri. Nánar »


Akureyri tryggði sér þriðja sætið með sigri á Val

Skrifað 30. mars 2012 klukkan 23:59 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri vann tveggja marka sigur á Val í lokaleik N1 deildar karla í handbolta sem fram fór í íþróttahöllinni í kvöld lokatölur leiksins urðu 27-25 en Valur leiddi með einu marki í hálfleik 16-17. Leikur liðanna í kvöld var afar jafn og spennandi en heimamenn reyndust sterkari á lokakafla leiksins og höfðu tveggja marka sigur. Nánar »


Akureyri tekur á móti Val í N1 deild karla í kvöld kl. 19:30.

Skrifað 30. mars 2012 klukkan 11:34 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri tekur á móti Val í lokaumferð N1 deildarinnar í handbolta í leik sem fram fer í íþróttahöllinni í kvöld. Staða liðanna sem verða í úrslitakeppninni er svo jöfn að Akureyri, FH og HK/Fram gætu öll lent í 2. 3. eða 4. sæti þannig að það mun ekkert vanta upp á spennuna og mikilvægi leikja föstudagsins. Að þeim loknum verður ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitunum og hvaða lið fær heimaleikjarétt ásamt Haukum. Nánar »


Handbolti N1 deild karla: Akureyri og Fram skildu jöfn í æsispennandi leik í kvöld

Skrifað 23. mars 2012 klukkan 23:58 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri sótti lið Fram heim i kvöld í N1 deild karla í handbolta í leik sem fram fór í Safamýrinni. Það var mikið undir hjá báðum liðum sæti í úrslitakeppninni undir. Leikur liðanna í kvöld var æsispennandi og eins og segir í umfjöllun á heimasíðu Akureyri-handboltafélags   Þá buðu  leikmenn beggja liða vægast sagt uppá  háspennu og dramatík. Á lokasekúndum leiksins þegar staðan var jöfn 29-29 fengu Framarar kjörið tækifæri til þess að gera út um leikinn en Sveinbjörn Pétursson markvörður Akureyrar var hetja liðsins og tryggði Akureyri annað stígið með því að verja skot frá hornamanninum Stefáni Baldvin Stefánssyni. Þegar ein umferð er eftir er ljóst að Akureyri hefur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Síðasti leikur liðsins í deildinni verður föstudaginn 30. Mars en þá koma Valsmenn í heimsókn í íþróttahöllina. Nánar »


Öruggur sigur Akureyringa gegn FH

Skrifað 19. mars 2012 klukkan 23:35 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri tók á móti FH í N1-deild karla í hanbolta í leik sem fram fór í íþróttahöllinni í kvöld. Skemmst er frá því að segja að Akureyri vann afar sanngjarnan sigur þar sem lokatölurnar urðu 30-26. Liðsmenn Akureyrar mættu mjög vel stemmdir til leiks og í raun gerðu þeir út um leikinn og höfðu 9 marka forystu í hálfleik 20-11. Í síðari hálfleik náðu heimamenn 10 marka forystu og það var ekki fyrr en á lokakaflanum að gestirnir náðu aðeins að klóra í bakkann. Endasprettur gestanna segir í  raun afskaplega lítið því heimamenn höfðu góð tök á leiknum allan tímann og sigurinn afar öruggur. Nánar »


N1- deild karla: Akureyri – FH í kvöld

Skrifað 19. mars 2012 klukkan 14:23 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Það verður boðið upp á sannkallaðan stórleik í íþróttahöllinni í kvöld þegar Akureyri tekur á móti FH í N1- deild karla í handbolta.  Nú eru aðeins þrjár umferðir eftir áður en úrslitakeppnin tekur við. Baráttan um sæti í úrslitakeppninni er gríðarlega hörð en efstu fjögur liðin fara í hana.
Akureyri situr sem stendur í 4. sæti deildarinnar en menn mega ekkert misstíga sig í þeim leikjum sem eftir eru til að halda því. Leikurinn í kvöld er því afar mikilvægur.

Leikurinn hefst kl 19:00


ÍBV lagði KA/Þór í dag

Skrifað 18. mars 2012 klukkan 00:25 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í dag tókum stelpurnar í KA/Þór á móti ÍBV í N1-deild kvenna í handbolta í leik sem fram fór í KA heimilinu. Staða liðanna í deildinni fyrir leikinn var talsverður og ljóst að róðurinn yrði þungur fyrir heimamenn. En KA/Þór lét ÍBV svo sannarlega hafa fyrir hlutunum í dag, en þegar upp var staðið höfðu gestirnir tveggja marka sigur 22-24 en staðan í hálfleik var 12-14. Nánar »



Handbolti