Handbolti

KA/Þór skellti HK í N1 deild kvenna í dag

Skrifað 04. febrúar 2012 klukkan 21:18 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Stelpurnar í KA/Þór lögðu HK í dag í leik sem fram fór í KA heimilinu nokkuð óvænt verður að segjast en leiknum lauk með sigri heimamann 23-22. KA/Þór hafði yfirhöndina nánast alla leikinn. KA/Þór sem hafði verið í botnbaráttu lyfti sér með sigrinum af botninum og er nú í 8. sæti deildarinnar með fjögur stig en HK er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 12 stig. Nánar »


HK fór með sigur af hólmi

Skrifað 03. febrúar 2012 klukkan 00:01 | | Handbolti, Íþróttir |

HK mætti í Íþróttahöllina í kvöld og mætti Akureyri Handboltafélagi eftir langt frí vegna EM í handbolta.  HK hafði náð sex marka forystu í seinni hálfleik en Akureyri náði að jafna undir lokin.  HK ingar höfðu svo betur á lokamínútu leiksins og náðu að setja tvö mörk á síðustu mínútunni. Markahæstur hjá Akureyri var Bjarni Fritzson með 9 mörk. Nánar »


Akureyri tekur á móti HK í kvöld

Skrifað 02. febrúar 2012 klukkan 13:46 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í kvöld byrjar handboltinn að rúlla á nýjan leik eftir hlé sem gert var vegna Evrópumótsins og er fyrsta verkefni ársins hjá Akureyri er að taka á móti HK í leik sem fram fer í íþróttahöllinni og hefst hann kl. 19. Um að gera fyrir fólk að drífa sig í kvöld í höllina og hvetja liðið til sigurs.


Andri Snær Stefánsson til liðs við Akureyri á ný

Skrifað 27. janúar 2012 klukkan 12:38 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Andri Snær Stefánsson handboltamaðurinn snjalli sem hefur leikið síðasta eitt og hálft árið með danska liðinu Odde Håndbold er nú á heimleið og mun leika með Akureyri  það sem eftir lifir tímabilsins. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur þetta er fyrir Akureyri að fá Andra heim í þeim átökum sem framundan eru í handboltanum.  Andri Snær kemur heim um mánaðarmótin. Þetta kemur fram á vef Akureyri handboltafélags.


Samúel Jóhannsson spáir í leik Íslands og Frakklands

Skrifað 25. janúar 2012 klukkan 10:18 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir | 3 athugasemdir |

Samúel Jóhannsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Gilja- og Glerárskóla spáir í leik Íslands og Frakklands sem fram fer í dag og hefst kl. 15:10.  Samúel er mikill áhugamaður um handknattleik og hinn siðari ár verið virkur í uppbyggingu Akureyri handboltafélags. Þá var Samúel eins og flestum ætti að vera kunnugt um snjall íþróttamaður á sínum yngri árum en er hvað þekktastur fyrir að hafa verið markvörður  með Þór og ÍBA. Nánar »


Rúnar Sigtryggsson spáir í leik Íslands og Spánar

Skrifað 24. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Akureyri.net sló á þráðinn til Rúnars Sigtryggssonar fyrrum landsliðsmanns  í handknattleik og fékk hann til þess að spá í leik Íslands og Spánar sem fer fram í dag. Rúnar á að baki langan og farsælan feril  í handbolta m.a. sem atvinnumaður erlendis, auk þess sem  hann þjálfaði Akureyri handboltafélag. Leikur liðanna hefst kl. 15:10. Nánar »


Ingibjörg yfir ljósmóðir á kvennadeild FSA spáir í leik Íslands og Ungverjalands

Skrifað 22. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Ingibjörg Hanna Jónsdóttir yfirljósmóðir á kvennadeild FSA spáir í leik Íslands og Ungverjalands í milliriðlum EM í handbolta.  Akureyri.net sló á þráðinn til Ingibjargar og fengum við hana til þess að spá í leik Íslands gegn Ungverjum sem fer fram í dag og hefst kl. 15:10 Nánar »


Sigrún Björk Jakobsdóttir spáir í leikinn gegn Slóvenum

Skrifað 20. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelstjóri Icelandair hótels við Þingvallastræti og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri fylgist vel með handbolta þessa daganna eins og megin þorri þjóðarinnar. Akureyri.net sló á þráðinn til hennar og fengum við hana til þess að spá fyrir leikinn í dag gegn Slóvenum. Nánar »


Atli Hilmarsson spáir í leik Íslands og Noregs

Skrifað 18. janúar 2012 klukkan 08:30 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Vegna leiks Íslands og Noregs hafði akureyri.net samband við Atla Hilmarsson þjálfara Akureyri handboltafélags og fyrrum landsliðsmann bað hann að spá fyrir  um leikinn í kvöld.  Einnig báðum við hann að gera upp í fáum orðum leikinn gegn Króatíu. Nánar »


Geir Kristinn Aðalsteinsson spáir í EM í handbolta

Skrifað 16. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í gær hófst EM í handbolta karla sem haldið er í Serbíu daganna 15.-29. janúar. Akureyri.net hafði samband við Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar og fyrrum handboltakappa og fékk hann til þess að spá fyrir um gengi Íslands á mótinu. Geir Kristinn var m.a. þjálfari Odds Grétarssonar hjá 2. flokki Akureyri handboltafélags. Nánar »


Grótta lagði KA/Þór í botnslag N1 deildar kvenna í handbolta

Skrifað 15. janúar 2012 klukkan 13:12 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í gær tók KA/Þór á móti Gróttu í N1 deild kvenna í handbolta í leik sem fram fór í KA heimilinu. Fyrir leikinn var Grótta í neðsta sæti deildarinnar með 1 stig en KA/Þór sæti ofar með 2 stig og því um sannkallaðan botnslag að ræða. Fór svo að gestirnir fóru með eins marks sigur í hörkuleik þar sem lokatölurnar urðu 26-25. Nánar »


Fotbolti og handbolti um helgina

Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 13:11 | | Fótbolti, Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í dag kl. 14:15 mætast Þór 2 og KA í leik sem fram fer í Boganum og er leikur liðanna liður í Hleðslumótinu sem fram fer um þessar mundir. Síðar í dag eða kl. 16. Verður blásið til leiks milli KA/Þórs og Gróttu í N1 deild kvenna í handbolta en hlé hefur verið á deildinni um nærri tveggja mánaða skeið. KA/Þór situr í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en Grótta í neðsta sætinu með 1 stig. Á morgun fer svo fram leikur KF og Magna í Hleðslumótinu í Boganum og hefst leikur liðanna kl. 16:00.


Hörður Fannar með sigurmarkið á síðustu sekúndinni

Skrifað 08. desember 2011 klukkan 20:01 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Hörður Fannar tryggði Akureyri mikilvægan sigur á Haukum 20-19 í Íþróttahöllinni fyrr í kvöld.  Akureyringar voru undir með einu marki þegar um 90 sekúndur voru eftir af leiknum.  Bjarni Fritzsson skoraði úr horninu og jafnaði leikinn þegar rétt um mínúta er eftir af leiknum.  Hörður Fannar skorar svo á síðustu sekúndu leiksins og tryggir Akureyri öll stigin.  Einstaklega kærkominn sigur.

Nánar »


FH vinnur Akureyri 20-24

Skrifað 29. september 2011 klukkan 21:38 | | Handbolti, Íþróttir |

FH vann sanngjarnan sigur á Akureyri Handboltafélag með fjögurra marka sigri í Íþróttahöllinni í kvöld.  Akureyri byrjaði þó leikinn á miklum krafti og skoraði fimm fyrstu mörkin í leiknum.  FH náði að jafna leikinn í fyrsta skipti í lok fyrri hálfleiks.

Nánar »


Stórleikur í Höllinni á fimmtudaginn

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 11:27 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Dyggir stuðningsmenn AkureyrarliðsinsÁ fimmtudaginn verður einn af stórleikjum N1 deildar karla í handknattleik þegar lið Akureyrar tekur á móti Val í toppbaráttu deildarinnar. Í dag er Valur tveim stigum ofar en Akureyri og situr á toppi deildarinnar þannig að með sigri á fimmtudaginn nær Akureyri Valsmönnum í stigum.

Liðin mættust í fyrstu umferð N1 deildarinnar á heimavelli Valsmanna. Sá leikur var jafn og spennandi allt til loka. Akureyri saknaði þó Jónatans Magnússonar í leiknum en hann var meiddur og sömuleiðis missti Guðmundur Hólmar Helgason af leiknum vegna veikinda og munar um minna. Eins og áður segir var leikurinn í járnum allan tímann en á lokamínútunum gekk lukkan í lið með Valsmönnum og þeir skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins á meðan Akureyri átti nokkur skot í stangirnar.



Handbolti