Fótbolti

Knattspyrnudeild Íþróttafélagsins Þórs rekin með hagnaði.

Skrifað 17. febrúar 2012 klukkan 01:33 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Knattspyrnudeild Þórs hélt í gærkvöld aðalfund fyrir starfsárið 2011 og þar kom fram að deildin var rekin með 142 þúsund króna hagnaði. Rekstartekjur deildarinnar jukust mikið milli ára en árið 2010 voru þær nærri 68 milljónir en árið 2011 voru þær 129 milljónir. Unnsteinn Jónsson sem verið hefur formaður deildarinnar undanfarin ár lét af formennsku og í hans stað kom Aðalsteinn Ingi Pálsson. Aðrir í stjórn eru, Edward van der Linden, Hannes Kristjánsson, Haukur Hergeirsson, Heimir Guðlaugsson, Orri Stefánsson, Ragnheiður Jakobsdóttir og Svanberg Snorrason.  Auk Unnsteins hætti Bjarni Freyr Guðmundsson í stjórn deildarinnar. Þá tók Lára Kristinsdóttir við formennsku í unglingaráði af Viðari Ólasyni.


KA Hleðslumótsmeistari

Skrifað 05. febrúar 2012 klukkan 19:52 | | Fótbolti, Íþróttir |

KA varð í dag Hleðslumótsmeistari 2012 þegar þeir unnu Þór 3-2 í spennandi leik í Boganum. Hallgrímur Steingrímsson skoraði sigurmark KA á 88. mínútu leiksins.  KA menn komust yfir strax á annarri mínútu leiksins en Þórsarar jöfnuðu jafn óðum.  KA var yfir 2-1 í hálfleik.  Sveinn Elías jafnaði leikinn í 2-2 á 59. mínútu en það var svo Hallgrímur sem tryggði KA titilinn. Nánar »


Úrslitaleikir Hleðslumótsins í dag

Skrifað 05. febrúar 2012 klukkan 11:43 | | Fótbolti, Íþróttir |

Úrslitaleikur Hleðslumótsins verður í Boganum kl. 14 í dag en þar etjast kappi KA og Þór.  Bæði lið unnu alla sína leiki í sínum riðli og því ljóst að um spennandi viðureign verður að ræða en bæði lið spila í 1. deild í sumar.  Kl. 16 er svo leikurinn um þriðja sætið en þar spila Dalvík/Reynir – Magni.


Fyrsta Goðamót ársins fer fram um helgina

Skrifað 04. febrúar 2012 klukkan 10:47 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Nú um helgina fer fram fyrsta Goðamót ársins sem haldið er af knattspyrnudeild Þórs og fara allir leikirnir fram í Boganum.  Á þessu móti eru það stelpur úr 3. og 4. flokki sem eru í aðalhlutverkinu. Fólk er hvatt til þess að koma við í Boganum og fylgjast með stelpunum. Þórir Tryggvason ljósmyndari var í Boganum í gær þegar mótið hófst og eru meðfylgjandi myndir teknar úr leik KA og Þórs.

 


KA vinnur Þór2 og KA/Þór tapar gegn Gróttu.

Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 19:53 | | Fótbolti, Íþróttir |

Í dag fékk KA/Þór Gróttu í heimsókn í KA heimilið en þau eru tvö neðstu liðin í deildinni. Grótta bar sigurorð af KA/Þór 25-26 og hafði þar með sætaskipti við KA/Þór. Í Hleðslumótinu í knattspyrnu vann KA – Þór 2 5-1. Mark Þórs skoraði Hákon Guðni Hjartarson. Hjá KA var Jóhann Helgason með þrennu og Hallgrímur Már Steingrímsson með tvö mörk.


Fotbolti og handbolti um helgina

Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 13:11 | | Fótbolti, Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Í dag kl. 14:15 mætast Þór 2 og KA í leik sem fram fer í Boganum og er leikur liðanna liður í Hleðslumótinu sem fram fer um þessar mundir. Síðar í dag eða kl. 16. Verður blásið til leiks milli KA/Þórs og Gróttu í N1 deild kvenna í handbolta en hlé hefur verið á deildinni um nærri tveggja mánaða skeið. KA/Þór situr í næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig en Grótta í neðsta sætinu með 1 stig. Á morgun fer svo fram leikur KF og Magna í Hleðslumótinu í Boganum og hefst leikur liðanna kl. 16:00.


Margir leikmenn undirrita hjá Þór og Þór/KA í fótboltanum

Skrifað 14. janúar 2012 klukkan 12:50 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Í gærkvöld voru undirritaðir samningar við 8 leikmenn hjá meistaraflokkum Þórs og Þórs/KA í knattspyrnu. Hjá karlaliðinu voru það þeir Kristinn Þór Björnsson, sem kemur frá Dalvík/Reyni og Rúnar Þórhallsson og gerðu þeir báðir tveggja ára samninga við félagið. Hjá Stelunum voru það; Amanda Mist Pálsdóttir, Oddný Karólína Hafsteinsdóttir, Helena Jónsdóttir, Sandra María Jessen, Heiða Ragney Viðarsdóttir og Katla Ósk Káradóttir. Samningar stelpnanna eru til tveggja ára. Nánar »


Hleðslumótið 2012 hefst í kvöld.

Skrifað 06. janúar 2012 klukkan 15:50 | | Fótbolti, Íþróttir |

Hið árlega knattspyrnumót knattspyrnudómarafélags Norðurlands hefst í kvöld og verður opnunarleikur mótsins viðureign Þórs og Völsungs.  Auk heimaliðanna í Þór og KA eru Völsungur, Magni, Dalvík/Reynir og KF sem taka þátt.  Þór og KA tefla fram hvort um sig tveimur liðum þ.e. annars vegar meistaraflokkum og hins vegar 2. flokks.  Spilað verður í tveimur fjögurra liða riðlum og fara allir leikir mótsins fram í Boganum. Á laugardag verða svo spilaðir tveir leikir sá fyrri verður leikur KA og Magna og hefst sá leikur kl. 14:15 og sá síðari leikur KA 2 og Dalvík/Reynis og hefst sá leikur kl. 16:15.
Á sunnudaginn 8. Janúar hefja strákarnir í Þór 2 (2. flokkur) leik þegar þeir mæta liði KF og hefst leikur liðanna kl. 15:15.
Hægt verður að fylgjast með  úrslitum leikja  á vef ksí.is.  Enginn aðgangseyrir á leikina.


Sala í Arsenal skólann hefst í dag

Skrifað 03. desember 2011 klukkan 07:15 | | Fótbolti, Íþróttir |

Sala í knattspyrnuskóla Arsenal hefst í dag kl. 10.  Sala verður í Hamri, KA heimilinu og á netinu.  Knattspyrnuskóli enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal verður starfræktur dagana 20. – 24. júní 2012 á KA-svæðinu á Akureyri fyrir stráka og stelpur á aldrinum 10 til 16 ára (3., 4. og 5. aldursflokkur).
Kennsla og fyrirlestrar verða frá kl. 10 til 15 frá miðvikudegi til sunnudags. Boðið verður upp á heitan mat í hádegishléi.
Knattspyrnuskólinn verður opinn krökkum af öllu landinu á meðan pláss leyfir.
Sex þjálfarar frá Arsenal Soccer School munu koma og stjórna æfingum.  Þeim til aðstoðar verða fjölmargir reyndir þjálfarar frá ýmsum félögum.

Nánar »


Íslandsmeistaramót 2011 í listhlaupi á skautum á Akureyri um helgina

Skrifað 03. desember 2011 klukkan 07:00 | | Fótbolti, Íþróttir |

Núna um helgina fer fram Íslandsmeistaramót 2011 í listhlaupi á skautum í Skautahöllinni.  Búast má við hörkukeppni í öllum flokkum.  Sterkustu keppnisflokkarnir eru að keppa til úrslita milli 10:40-12:10 á sunnudaginn,  þeir stigahæstu keppa í seinni upphitunarhóp.  Tilvalið er að skreppa í Skautahöllina og fylgjast með.

Nánar »


Sex marka tap gegn þýsku meisturunum.

Skrifað 28. september 2011 klukkan 18:36 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Þýsku meistarnir voru aðeins of stór biti fyrir Þór/KA. Fimm landsliðkonur í liði Potsdam tóku þátt í lokamóti HM í sumar. Þrjár þeirra skoruðu fimm af sex mörkunum og eitt var sjálfsmark og kannski við hæfi að Yuki Nagasato sem varð heimsmeistari með Japan skyldi skora þrennu. Önnur mörk skoruðu Babett Peter og Anonma. Arna Sif varð svo fyrir því óláni að senda boltann í sitt eigið mark. Nánar »


Þórsarar enn í fallbaráttu eftir tap á heimavelli.

Skrifað 25. september 2011 klukkan 18:28 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Lið Þórs og Breiðbliks mættust á Þórsvellinum í seinasta heimaleik Þórs á þessu tímabili. Breiðablik hafði betur með tveimur mörkum frá þeim Guðmundi Kristjánssyni og Kristni Steindórssyni. Ingi Freyr skoraði svo mark Þórs. Lokatölur 2-1 og Blikar sloppnir við fall en Þórsara vita ekki örlög sín fyrr en í síðustu umferðinni. Þór spilar hinsvegar í Evrópudeild á næsta tímabili því KR-ingar urðu Íslandsmeistarar í dag. Nánar »


Þór sigraði Fylkir örugglega.

Skrifað 15. september 2011 klukkan 20:41 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Þór og Fylkir mættust á Þórsvelli og hafði Þór betur með tveimur mörkum gegn engu. Mörkin skoruðu David Diztl og Sveinn Elías Jónsson. Fylkismenn voru um miðja deild fyrir leikinn en allt var í húfi hjá Þórsurunum sem voru komnir skuggalega nálægt fallsæti eftir taphrinu í undanförnum leikjum. Nánar »


Þór/KA endar tímabilið með stæl.

Skrifað 10. september 2011 klukkan 15:54 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Þór/KA vann öruggan sigur á KR á Þórsvellinum en liðin mættust kl 13 í dag. Nánar »


Þór/KA vinnur Breiðablik.

Skrifað 30. ágúst 2011 klukkan 20:41 | | Fótbolti, Fréttir, Íþróttir |

Arna Sif Ásgrímsdóttir

Arna Sif skoraði tvö mörk þegar Breiðablik heimsótti Þór/KA á Þórsvöllinn í kvöld. Lára Einarsdóttir skoraði einnig fyrir Þór/KA en Fanndís Friðriksdóttir skoraði úr vítaspyrnu. Lokatölur 3-1. Nánar »



Fótbolti