Á fundi stjórnar Akureyrarstofu í gær miðvikudaginn 9. nóvember fagnaði stjórnin því að forsendur fyrir Vaðlaheiðargöngum hafa ekki breyst og því væri ljóst að framkvæmdir geta hafist á árinu 2012 eins og áður hafði verið ákveðið. Stjórnin lýsti áfram furðu sinni á ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um að senda málið til úttektar hjá Ríkisendurskoðun. Málið sé nú á lokastigi en það mun óhjákvæmilega fresta málinu um ótiltekinn tíma. Forsendur framkvæmdarinnar eru byggðar á vinnu sem fram fór þegar viðræður við lífeyrissjóðina um samgönguframkvæmdir áttu sér stað og hafa ekkert breyst síðan þá.
Nánar »
Stjórnmál
Stjórn Akureyrarstofu lýsir furðu sinni á ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um Vaðlaheiðargöng
Skrifað 10. nóvember 2011 klukkan 17:48 | Jóhann Jónsson | Fréttir, Stjórnmál |Hátt í 30 fundargestir gengu út af landsþingi
Skrifað 30. september 2010 klukkan 16:58 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Stjórnmál |Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í morgun. Á þinginu verður meðal annars rætt um sameiningarkosti sveitarfélaga og leiðir stjórnmálanna til að öðlast traust almennings í landinu á ný. Ekki er víst að uppákoma sem varð við upphaf ávarps Ögmundar Jónassonar, ráðherra sveitarstjórnarmála, sé til þess fallin að auka traust á stjórnmálunum, en hann byrjaði ávarp sitt á landsþinginu á umræðu um ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. Um 30 fundargestir gengur úr salnum og sagði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálstæðisflokksins í Reykjavík að ummæli Ögmundar hefðu verið óviðeigandi og fólk hefði ekki viljað sitja undir þeim. Um 150 fulltrúar sitja á landsþinginu.
Kjörsókn ágæt á Akureyri
Skrifað 06. mars 2010 klukkan 12:08 | Jón Steinar | Fréttir, Stjórnmál |Klukkan 11 höfðu 941 eða um 7,25% kjósenda á Akureyri skilað inn atkvæði sínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave, en til samanburðar höfðu 8,29% kosið á sama tíma í alþingiskosningunum í fyrra. 12.985 eru á kjörskrá á Akureyri. Enn sem komið er mun betri kjörsókn á Akureyri en í Reykjavík.
Helgi Teitur Helgason, formaður kjörstjórnar, sagði í samtali við Akureyri.net að kjörsókn virðist ætla að verða meiri en búist var við og að kjörstjórnin hefði ekki vitað almennilega við hverju var að búast, miðað við umræðuna síðustu daga og vikur.
Kosið er í Verkmenntaskólanum líkt og í síðustu alþingiskosningum.
Þrettán bjóða sig fram hjá Sjálfstæðisflokki
Skrifað 12. janúar 2010 klukkan 04:58 | Ingimar Björn | Fréttir, Stjórnmál |
Framboðsfrestur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri rann í gær, mánudaginn 11. janúar. Alls gáfu þrettán kost á sér, þar á meðal Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarráðs og Elín Margrét Hallgrímsdóttir, bæjarfulltrúi. Prófkjörið fer fram þann 13. febrúar næstkomandi. Eftirtaldir bjóða sig fram, og eru þeir listaðir í stafrófsröð:
Anna Guðný Guðmundsdóttir iðjuþjálfi og háskólanemi
Björn Ingimarsson hagfræðingur
Elín Margrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri og bæjarfulltrúi
Huld S. Ringsted verslunarrekandi
Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari
Kristinn Frímann Árnason bústjóri
Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur
Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir
Ragnar Sigurðsson laganemi og formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson verslunarmaður
Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi
Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri
Framboð til prófkjöra streyma inn
Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 18:39 | Ingimar Björn | Fréttir, Stjórnmál |
Það styttist í prófkjör stjórnmálaflokkana fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en prófkjör Samfylkingarinnar fer fram 30. janúar næstkomandi. Verður það rafrænt og opið. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, tilkynnti í dag að hann ætli að gefa kost á sér í 1. sæti á lista flokksins. Þá hefur Jón Ingi Cæsarsson, formaður Samfylkingarinnar á Akureyri og varabæjarfulltrúi, gefið kost á sér í 3. til 5. sæti. Aðrir hafa ekki opinberað framboð. Kosið verður um fyrstu fimm sætin, en sérstök uppstillinganefnd mun raða upp í þau sæti sem eftir standa.
Eðlilegt að annar háskólinn sé utan höfuðborgarsvæðisins
Skrifað 05. júní 2009 klukkan 11:47 | Ingimar Björn | Fréttir, Stjórnmál |Á fundi sínum í gær, 4. júní, lýsti Bæjarráð Akureyrar sig mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík. Mikil mótstaða hefur verið við þessar hugmyndir á Akureyri og sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, hugmyndirnar aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni í samtali við Akureyri.net fyrir skemmstu. Bæjarráð telur hugmyndirnar ógna hinu mikilvæga hlutverki og sérstöðu skólans, og telur eðlilegt að ef aðeins yrðu tveir háskólar í landinu yrði annar þeirra staðsettur utan höfuðborgarsvæðisins.
Í bókun bæjarráðs segir: "Bæjarráð Akureyrar fjallaði um málefni Háskólans á Akureyri og lýsir sig mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík. Frá árinu 1987 hefur HA verið leiðandi í uppbyggingu háskólamenntunar á landsbyggðinni og skilað miklum fjölda háskólamenntaðs fólks sem gegnir mikilvægu hlutverki við uppbyggingu atvinnulífs um allt land. Náið samstarf háskólans og samfélagsins hefur verið eitt aðalsmerki HA og sjálfstæði háskólans hefur gert honum kleift að bregðast fljótt við nýjum áskorunum, verkefnum og hugmyndum og tengja rannsóknastarfið þeim málum sem brenna á nærsamfélaginu. Háskólinn á Akureyri er jafnframt leiðandi í uppbyggingu fjarnáms um allt land og hefur veitt miklum fjölda fólks tækifæri til að stunda háskólanám án tillits til búsetu og áform eru um að efla það enn frekar. HA hefur gengið í gengum mikla endurskipulagningu á sínum rekstri og þar hefur náðst að skapa hagkvæma rekstrareiningu sem rekin hefur verið innan ramma fjárlaga síðastliðin ár. Með auknu samstarfi við aðra háskóla geta ýmsir möguleikar skapast á enn frekari hagræðingu í rekstri skólans. Með því að leggja af yfirstjórn Háskólans á Akureyri og stýra skólanum frá miðlægri stofnun í Reykjavík væri hinu mikilvæga hlutverki og sérstöðu háskólans ógnað og á það getur bæjarráð ekki fallist. Ef aðeins á að gera ráð fyrir 2 háskólum í landinu er eðlilegt að annar sé utan höfuðborgarsvæðisins."
Þrjúhundruð strikuðu yfir Kristján Þór
Skrifað 02. maí 2009 klukkan 18:07 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Stjórnmál |Talsvert var um útstrikanir í Norðausturkjördæmi í Alþingiskosningunum um síðustu helgi. All strikaði 301 kjósandi yfir nafn Kristjáns Þórs Júlíussonar sem leiddi lista Sjálfstæðisflokks, 277 strikuðu yfir nafn Birkis Jóns Jónssonar leiðtoga Framsóknar og yfir nafn Kristjáns Möller oddvita Samfylkingarinnar striuðu 233. Þá strikuðu 148 yfir nafn Sigmundar Ernis Rúnarssonar sem skipaði annað sæti á Samfylkingu. Útstrikanir voru þó hvergi það margar að það hefði áhrif á röð framboðslista.






