Stjórnmál

Vaðlaheiðargöng standa ekki undir sér að mati meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar

Skrifað 02. febrúar 2012 klukkan 09:09 | | Fréttir, Stjórnmál |

Að mati Umhverfis- og samgöngunefndar standa Vaðlaheiðargöng ekki undir sér samkvæmt þeim gögnum sem yfir liggja um fyrirhugaða framkvæmd.  Að mati nefndarinnar eru mörg verkefni brýnni og leggur nefndin til að göngin fari á samgönguáætlun og bygging gangnanna séu of áhættusöm fyrir skattgreiðendur og hið opinbera. Nánar »


Ekkert nýtt hefur komið fram í málinu sem gefur tilefni til afturköllun

Skrifað 31. janúar 2012 klukkan 14:38 | | Fréttir, Stjórnmál |

Almennur félagsfundur Samfylkingarinnar á Akureyri, haldinn 30. janúar 2012, leggst gegn þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde.  .  Ekkert nýtt hefur komið fram í málinu sem gefur tilefni til afturkölluna og því hvetur fundurinn þingmenn flokksins til að greiða atkvæði gegn henni. Nánar »


Þingmenn Samfylkingarinnar mæta á fund í kvöld um landsdómsmálið

Skrifað 30. janúar 2012 klukkan 15:54 | | Fréttir, Stjórnmál |

Í kvöld verður haldinn félagsfundur í Samfylkingarfélaginu á Akureyri og þar verður landsdómsmálið til umræðu og má eflaust búast við heitum umræðum. Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að 13 félagar í Akureyrarfélaginu sendu frá sér yfirlýsingu í liðinni viku þar sem þeir hörmuðu vinnubrögð þingmanna flokksins í málinu þar sem þeir bar ekki gæfa til að standa saman. Þingmenni Samfylkingarinnar í norðaustur kjördæminu þeir Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir mæta til fundarins. Sigmundur Ernir Rúnarsson sagði að vissulega mætti búast við einhverjum gæti orðið heitt í hamsi, en ég mun tala fyrir mína afstöðu sem ákærandi í þessu máli. Fundurinn verður haldinn í Lárusarhúsi og hefst kl. 20


Samfylkingin á Akureyri fundar um landsdómsmálið

Skrifað 26. janúar 2012 klukkan 13:21 | | Fréttir, Stjórnmál |

Samfylkingin á Akureyri boðar til almenns félagsfundar mánudaginn 30. janúar kl. 20 í húsnæði félagsins, Lárusarhúsi v/Eiðsvallagötu 18.
Aðalumræðuefnið verður landsdómsmálið og til fundarins koma þingmenn Samfylkingarinnar í kjördæminu; Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir. Sjá nánar á www.xsakureyri.is Nánar »


Félagar úr Samfylkingunni á Akureyri harma vinnubrögð þingmanna flokksins

Skrifað 24. janúar 2012 klukkan 10:44 | | Fréttir, Stjórnmál |

Eftirfarandi félagar Samfylkingarinnar á Akureyri harma að þingmönnum flokksins bar ekki gæfa til að standa saman um að taka tillögu Sjálfstæðisflokksins um hið svonefnda Landsdómsmál af dagskrá þingsins enda Alþingi búið að afgreiða málið til dómstóla. Nánar »


Ályktun frá stjórnarfundi og opnum félagsfundi svæðisfélags VG á Akureyri

Skrifað 20. janúar 2012 klukkan 00:18 | | Fréttir, Stjórnmál |

Stjórn svæðisfélags VG á Akureyri og opinn félagafundur svæðisfélagsins skora á þingmenn VG að vera samkvæmir sjálfum sér og taka ekki þátt í því að misbeita lýðræðinu með því að endurtaka atkvæðagreiðslur þar til breytt niðurstaða fæst. Landsdómur er eina tæki stjórnsýslunnar sem þessi þjóð getur beitt til að gera upp ábyrgð ráðherra gagnvart henni og á meðan aðrar leiðir og betri hafa ekki verið tryggðar þá er það skylda þingmanna VG að standa með þjóðinni og stjórnarskránni.


Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar tilbúin að auka hlutafé sitt í Vaðlaheiðargöngum

Skrifað 18. janúar 2012 klukkan 16:54 | | Fréttir, Stjórnmál |

Í dag er sagt frá því á vef Eyjafjarðarsveitar www.eyjafjardarsveit.is að sveitastjórn Eyjafjarðarsveitar hafi lýst yfir vilja til að auka hlutafé í Vaðlaheiðargöngum allt að tvöföldun frá því sem áður var lofað. Þetta vilja menn gera til að leggja sitt af mörkum við að koma þessari framkvæmd sem fyrst í framkvæmd. Jafnfram skorar sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar á ríkisstjórn Íslands að samþykkja ríkisábyrgð á fjármögnun ganganna svo hægt sé að hefja framkvæmdir sem allra fyrst. Þar er m.a. bent á þá staðreynd að ríkissjóður fái u.þ.b. 3 – 3,5 milljarða í beinar tekjur af framkvæmdinni á byggingartíma ganganna fari svo að í þessa framkvæmd verði ráðist. Ennfremur bendir sveitarstjórn á það að mjög litlu fé sé varið til vegamála á landsbyggðinni þrátt fyrir síauknar álögur á bifreiðaeigendur.


Öll framboð fá fulltrúa í nefndir bæjarins

Skrifað 17. janúar 2012 klukkan 17:54 | | Fréttir, Stjórnmál |

Á fundi bæjarstjórnar í dag munu flest framboð tilnefna áheyrnarfulltrúa í nefndum bæjarins sem þau hafa ekki aðalmann í.  Þetta er gert vegna breytinga á sveitarstjórnarlögum sem tóku gildi 1. janúar s.l.  Vegna þeirrar staðreyndar að fimm framboð fengu einn bæjarfulltrúa hvert þá hafa framboð ekki haft fulltrúa í öllum nefndum.  Með þessum breytingum þá hafa framboð fulltrúa í öllum nefndum.  Samkvæmt ákvörðun bæjarráðs þá skulu áheyrnarfulltrúar fá sömu greiðslu og aðrir áheyrnarfulltrúar sem eiga rétt í nefndum bæjarins.  Samkvæmt heimildum Akureyri.net er kostnaður vegna þessara breytinga áætlaður um þrjár milljónir króna.


Auglýsir eftir atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar

Skrifað 15. desember 2011 klukkan 11:42 | | Fréttir, Stjórnmál |

Magnús Þór Ásgeirsson fráfarandi framkvæmdarstjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar er í viðtali við Akureyri vikublað í dag þar sem hann fer yfir farinn veg og hann vandar ríkisstjórninni ekki tóninn.  Hann tekur fyrir t.d. Grímsstaðamálið þar sem hann segist gáttaður á umræðunni og að umræða einkennist af vanþekkingu, útlendingahræðslu og uppblásnum þjóðernissósíalisma. Nánar »


Stjórn Akureyrarstofu lýsir furðu sinni á ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um Vaðlaheiðargöng

Skrifað 10. nóvember 2011 klukkan 17:48 | | Fréttir, Stjórnmál |

Á fundi stjórnar Akureyrarstofu í gær miðvikudaginn 9. nóvember fagnaði stjórnin því að forsendur fyrir Vaðlaheiðargöngum hafa ekki breyst og því væri ljóst að framkvæmdir geta hafist á árinu 2012 eins og áður hafði verið ákveðið.  Stjórnin lýsti áfram furðu sinni á ákvörðun umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis um að senda málið til úttektar hjá Ríkisendurskoðun.  Málið sé nú á lokastigi en það mun óhjákvæmilega fresta málinu um ótiltekinn tíma. Forsendur framkvæmdarinnar eru byggðar á vinnu sem fram fór þegar viðræður við lífeyrissjóðina um samgönguframkvæmdir áttu sér stað og hafa ekkert breyst síðan þá.
Nánar »


Hátt í 30 fundargestir gengu út af landsþingi

Skrifað 30. september 2010 klukkan 16:58 | | Fréttir, Stjórnmál |

Landsþingið er haldið í nýju menningarhúsi AkureyringaLandsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í morgun. Á þinginu verður meðal annars rætt um sameiningarkosti sveitarfélaga og leiðir stjórnmálanna til að öðlast traust almennings í landinu á ný. Ekki er víst að uppákoma sem varð við upphaf ávarps Ögmundar Jónassonar, ráðherra sveitarstjórnarmála, sé til þess fallin að auka traust á stjórnmálunum, en hann byrjaði ávarp sitt á landsþinginu á umræðu um ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. Um 30 fundargestir gengur úr salnum og sagði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálstæðisflokksins í Reykjavík að ummæli Ögmundar hefðu verið óviðeigandi og fólk hefði ekki viljað sitja undir þeim. Um 150 fulltrúar sitja á landsþinginu.


Kjörsókn ágæt á Akureyri

Skrifað 06. mars 2010 klukkan 12:08 | | Fréttir, Stjórnmál |
Kjörstjórn hafði í nógu að snúast í dag

Kjörstjórn hafði í nógu að snúast í dag

Klukkan 11 höfðu 941 eða um 7,25% kjósenda á Akureyri skilað inn atkvæði sínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave, en til samanburðar höfðu 8,29% kosið á sama tíma í alþingiskosningunum í fyrra. 12.985 eru á kjörskrá á Akureyri. Enn sem komið er mun betri kjörsókn á Akureyri en í Reykjavík.

Helgi Teitur Helgason, formaður kjörstjórnar, sagði í samtali við Akureyri.net að kjörsókn virðist ætla að verða meiri en búist var við og að kjörstjórnin hefði ekki vitað almennilega við hverju var að búast, miðað við umræðuna síðustu daga og vikur.

Kosið er í Verkmenntaskólanum líkt og í síðustu alþingiskosningum.


Þrettán bjóða sig fram hjá Sjálfstæðisflokki

Skrifað 12. janúar 2010 klukkan 04:58 | | Fréttir, Stjórnmál |

Sigrún Björk Jakobsdóttir forseti bæjarstjórnarFramboðsfrestur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri rann í gær, mánudaginn 11. janúar. Alls gáfu þrettán kost á sér, þar á meðal Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarráðs og Elín Margrét Hallgrímsdóttir, bæjarfulltrúi. Prófkjörið fer fram þann 13. febrúar næstkomandi. Eftirtaldir bjóða sig fram, og eru þeir listaðir í stafrófsröð:

Anna Guðný Guðmundsdóttir iðjuþjálfi og háskólanemi

Björn Ingimarsson hagfræðingur

Elín Margrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri og bæjarfulltrúi

Huld S. Ringsted verslunarrekandi

Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari

Kristinn Frímann Árnason bústjóri

Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur

Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir

Ragnar Sigurðsson laganemi og formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri

Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi

Sigurður Guðmundsson verslunarmaður

Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi

Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri


Framboð til prófkjöra streyma inn

Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 18:39 | | Fréttir, Stjórnmál |

Hermann Jón TómassonÞað styttist í prófkjör stjórnmálaflokkana fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en prófkjör Samfylkingarinnar fer fram 30. janúar næstkomandi. Verður það rafrænt og opið. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, tilkynnti í dag að hann ætli að gefa kost á sér í 1. sæti á lista flokksins. Þá hefur Jón Ingi Cæsarsson, formaður Samfylkingarinnar á Akureyri og varabæjarfulltrúi, gefið kost á sér í 3. til 5. sæti. Aðrir hafa ekki opinberað framboð. Kosið verður um fyrstu fimm sætin, en sérstök uppstillinganefnd mun raða upp í þau sæti sem eftir standa.


Eðlilegt að annar háskólinn sé utan höfuðborgarsvæðisins

Skrifað 05. júní 2009 klukkan 11:47 | | Fréttir, Stjórnmál |
Háskólinn á Akureyri. Mynd/Bjarki Sigursveinsson.

Háskólinn á Akureyri. Mynd/Bjarki Sigursveinsson.

Á fundi sínum í gær, 4. júní, lýsti Bæjarráð Akureyrar sig mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík. Mikil mótstaða hefur verið við þessar hugmyndir á Akureyri og sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA, hugmyndirnar aðför að háskólamenntun á landsbyggðinni í samtali við Akureyri.net fyrir skemmstu. Bæjarráð telur hugmyndirnar ógna hinu mikilvæga hlutverki og sérstöðu skólans, og telur eðlilegt að ef aðeins yrðu tveir háskólar í landinu yrði annar þeirra staðsettur utan höfuðborgarsvæðisins.

Í bókun bæjarráðs segir: “Bæjarráð Akureyrar fjallaði um málefni  Háskólans á Akureyri og  lýsir sig  mótfallið hugmyndum um að Háskólinn á Akureyri verði gerður að útibúi frá háskóla með höfuðstöðvar í Reykjavík. Frá árinu 1987 hefur HA  verið leiðandi í uppbyggingu háskólamenntunar á landsbyggðinni og  skilað miklum fjölda háskólamenntaðs fólks  sem gegnir   mikilvægu hlutverki við uppbyggingu atvinnulífs um allt land.  Náið samstarf háskólans og samfélagsins  hefur verið eitt aðalsmerki HA  og sjálfstæði háskólans hefur gert honum kleift að bregðast fljótt við nýjum áskorunum, verkefnum og hugmyndum og tengja rannsóknastarfið þeim málum sem brenna á nærsamfélaginu.  Háskólinn á Akureyri er jafnframt leiðandi í uppbyggingu fjarnáms um allt land og hefur veitt miklum fjölda fólks tækifæri til að stunda háskólanám án tillits til búsetu og áform eru um að efla það enn frekar. HA hefur gengið í gengum mikla endurskipulagningu á sínum rekstri og þar hefur náðst að skapa hagkvæma rekstrareiningu sem rekin hefur verið innan ramma fjárlaga síðastliðin ár. Með auknu samstarfi við aðra háskóla geta ýmsir möguleikar skapast á enn frekari hagræðingu í rekstri skólans. Með því að leggja af yfirstjórn Háskólans á Akureyri og stýra skólanum frá miðlægri stofnun í Reykjavík væri  hinu  mikilvæga hlutverki og sérstöðu háskólans ógnað og á það getur bæjarráð ekki fallist. Ef aðeins á að gera ráð fyrir 2 háskólum í landinu er eðlilegt að annar sé utan höfuðborgarsvæðisins.”



Stjórnmál