Fréttir

Ekkert nýtt hefur komið fram í málinu sem gefur tilefni til afturköllun

Skrifað 31. janúar 2012 klukkan 14:38 | | Fréttir, Stjórnmál |

Almennur félagsfundur Samfylkingarinnar á Akureyri, haldinn 30. janúar 2012, leggst gegn þingsályktunartillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde.  .  Ekkert nýtt hefur komið fram í málinu sem gefur tilefni til afturkölluna og því hvetur fundurinn þingmenn flokksins til að greiða atkvæði gegn henni. Nánar »


Þingmenn Samfylkingarinnar mæta á fund í kvöld um landsdómsmálið

Skrifað 30. janúar 2012 klukkan 15:54 | | Fréttir, Stjórnmál |

Í kvöld verður haldinn félagsfundur í Samfylkingarfélaginu á Akureyri og þar verður landsdómsmálið til umræðu og má eflaust búast við heitum umræðum. Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að 13 félagar í Akureyrarfélaginu sendu frá sér yfirlýsingu í liðinni viku þar sem þeir hörmuðu vinnubrögð þingmanna flokksins í málinu þar sem þeir bar ekki gæfa til að standa saman. Þingmenni Samfylkingarinnar í norðaustur kjördæminu þeir Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir mæta til fundarins. Sigmundur Ernir Rúnarsson sagði að vissulega mætti búast við einhverjum gæti orðið heitt í hamsi, en ég mun tala fyrir mína afstöðu sem ákærandi í þessu máli. Fundurinn verður haldinn í Lárusarhúsi og hefst kl. 20


Opið í Hlíðarfjalli i dag frá kl. 10-16

Skrifað 29. janúar 2012 klukkan 11:16 | | Fréttir |

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er opið í dag og eru 5 lyftur opnar og skíðafærið troðinn blautur snjór og hiti um sex stig. Þá eru skíðasvæðin við Dalvík og á Siglufirði opin í dag en lokað í Tindastóli skíðasvæði Skagfirðinga.


Gulleyjan frábær skemmtun

Skrifað 28. janúar 2012 klukkan 11:00 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Leikfélag Akureyrar í samstarfi við Borgarleikhúsið frumsýndi í gærkvöld Gulleyjuna eftir Robert Louis Stevenson í leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar sem jafnframt leikstýrir verkinu. Í kynningu um verkið segir m.a. ,,Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndinni leikgerð….” óhætt er að segja það orð að sönnu. Sýningin er svo skreytt með skemmtilegri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem fyrir  löngu hefur sannað snilli sína þegar tónlistin er annars vegar. Nánar »


Andri Snær Stefánsson til liðs við Akureyri á ný

Skrifað 27. janúar 2012 klukkan 12:38 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Andri Snær Stefánsson handboltamaðurinn snjalli sem hefur leikið síðasta eitt og hálft árið með danska liðinu Odde Håndbold er nú á heimleið og mun leika með Akureyri  það sem eftir lifir tímabilsins. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hversu mikill styrkur þetta er fyrir Akureyri að fá Andra heim í þeim átökum sem framundan eru í handboltanum.  Andri Snær kemur heim um mánaðarmótin. Þetta kemur fram á vef Akureyri handboltafélags.


Hin síbreytilega Akureyri 2. hluti

Skrifað 27. janúar 2012 klukkan 09:00 | | Bæjarmál, Fréttir, Pistlar |

Jón Ingi Cæsarsson heldur áfram að skrifa um síbreytileika Akureyrar.

Miðbær Akureyrar var í Innbænum, þar var apótekið, verslanir, pósthús og fleira það sem prýða þarf miðbæi kaupstaða. Um aldamótin 1900 orðið mjög þröngt um frekari uppbyggingu á því svæði og því fóru bæjarbúar að horfa annað og eftir auknu landrými. Það var horft til svæðisins við Barðsnefið þar sem Leikhúsið okkar stendur en þar var þröngt og sjórinn kreppti að. Þá fóru bæjarbúar að renna hýru auga til Torfunefsins en þar hafði Grófargilslækurinn skapað nokkuð undirlendi niður af gilinu. Fyrsta íbúarhús sem þar reis var íbúðarhús Dúa Benediktssonar lögreglumanns og stóð það þar sem Kea reisti síðar höfðuðstöðvar sínar og kallað var Hafnarstræti 91. Nánar »


LA frumsýnir Gulleyjuna í kvöld

Skrifað 26. janúar 2012 klukkan 21:54 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Frægasta sjóræningjasaga allra tíma lifnar á sviðinu í þessari líflegu og bráðfyndnu leikgerð þeirra Karls Ágústs Úlfssonar og Sigurðar Sigurjónssonar.
Gulleyjan er ævintýraleg sýning fyrir alla fjölskylduna, full af galdri, gulli, græðgi, bardögum, blekkingum, talandi páfagaukum, kostulegum persónum og eldfjörugri tónlist eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Nánar »


Samfylkingin á Akureyri fundar um landsdómsmálið

Skrifað 26. janúar 2012 klukkan 13:21 | | Fréttir, Stjórnmál |

Samfylkingin á Akureyri boðar til almenns félagsfundar mánudaginn 30. janúar kl. 20 í húsnæði félagsins, Lárusarhúsi v/Eiðsvallagötu 18.
Aðalumræðuefnið verður landsdómsmálið og til fundarins koma þingmenn Samfylkingarinnar í kjördæminu; Kristján L. Möller, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir. Sjá nánar á www.xsakureyri.is Nánar »


NEI RÁÐHERRA! sýnd í Hofi á Akureyri

Skrifað 26. janúar 2012 klukkan 08:00 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Áhorfendasýning ársins og aðsóknarmestasýning landsins verður sýnd í Menningarhúsinu Hof eftir yfir um 70 uppseldar sýningar í Borgarleikhúsinu. Drepfyndinn farsi í leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Í aðalhlutverkum eru Guðjón Davíð Karlsson, Sigurður Sigurjónsson og Hilmar Guðjónsson. Forsala hefst miðvikudaginn 1.febrúar kl. 10 í Hofi en fyrsta sýning er laugardaginn 3. mars, takmarkaður sýningarfjöldi er á Akureyri. Nánar »


Páll Björnsson dósent hlýtur Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka

Skrifað 25. janúar 2012 klukkan 19:51 | | Fréttir |

Páll Björnsson, dósent við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir árið 2011 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis, fyrir bók sína Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar. Háskólinn á Akureyri óskar Páli hjartanlega til hamingju með verðlaunin og bendir á að bókin fæst í öllum betri bókabúðum. Það er Sögufélagið sem gaf bókina út. Þetta kemur fram á vef háskólans á Akureyri í dag.


Stúkan á Þórsvellinum, hver er staðan?

Skrifað 25. janúar 2012 klukkan 13:35 | | Fréttir |

Strax á haustdögum 2009 þegar haustrigningar fóru að gera vart við sig kom í ljós að nýja stúkan á Þórsvellinum væri hriplek. Vatn lak inn í stúkuna á annarri hæð hússins þar sem m.a. píludeild Þórs er með aðstöðu og alla leið niður í búningsklefa á jarðhæð, sem hafa orðið fyrir talsverðum skemmdum. Vatn hefur lekið inn í raflagnakerfi hússins og ollið talsverðum vandræðum. Nánar »


Samúel Jóhannsson spáir í leik Íslands og Frakklands

Skrifað 25. janúar 2012 klukkan 10:18 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir | 3 athugasemdir |

Samúel Jóhannsson forstöðumaður íþróttamiðstöðva Gilja- og Glerárskóla spáir í leik Íslands og Frakklands sem fram fer í dag og hefst kl. 15:10.  Samúel er mikill áhugamaður um handknattleik og hinn siðari ár verið virkur í uppbyggingu Akureyri handboltafélags. Þá var Samúel eins og flestum ætti að vera kunnugt um snjall íþróttamaður á sínum yngri árum en er hvað þekktastur fyrir að hafa verið markvörður  með Þór og ÍBA. Nánar »


Aron Einar Gunnarsson á leið á Wembley

Skrifað 24. janúar 2012 klukkan 23:41 | | Fréttir |

Akureyringurinn Aron Einar Gunnarsson er á leið á Wembley með liði sínu Cardiff.  Hann ásamt liði sínu Cardiff vann undanúrslitaleikinn við Crystal Palace fyrr í kvöld en það þurfi framlengingu og vítaspyrnukeppni til að fá úr því skorið hvort liðið færi áfram.  Aron spilaði allan leikinn en fékk ekki að taka víti í vítaspyrnukeppninni en aðeins þurfti fjórar umferðir til að fá sigurvegara.  Úrslitaleikurinn verður sunnudaginn 26. febrúar og mun Cardiff mæta annaðhvort Liverpool eða Manchester City.


Halldór Helgason kominn í úrslit

Skrifað 24. janúar 2012 klukkan 23:29 | | Fréttir, Íþróttir |

mynd fengin af allisports.comHalldór Helgason er kominn í úrslit með myndbandið sitt í keppni ESPN Real Snow.  Með sigri mun Halldór fá 50.000 dollara vinningsfé eða um 6,2 milljónir íslenskra króna.  Við hvetjum sem flesta til að fara inn á síðuna og gefa okkar manni atkvæði sitt og um leið horfa á þetta stórbrotna myndband.  ESPN Real Snow


Félagar úr Samfylkingunni á Akureyri harma vinnubrögð þingmanna flokksins

Skrifað 24. janúar 2012 klukkan 10:44 | | Fréttir, Stjórnmál |

Eftirfarandi félagar Samfylkingarinnar á Akureyri harma að þingmönnum flokksins bar ekki gæfa til að standa saman um að taka tillögu Sjálfstæðisflokksins um hið svonefnda Landsdómsmál af dagskrá þingsins enda Alþingi búið að afgreiða málið til dómstóla. Nánar »



Fréttir