Fjórir nýir þingmenn taka sæti á Alþingi fyrir Norðausturkjördæmi. Tryggvi Þór Herbertsson prófessor er nýr þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hann ýtti Arnbjörgu Sveinsdóttur niður um sæti í prófkjöri. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir eru ný inni af lista Samfylkingarinnar. Sigmundur á að baki langan feril sem frétta- og blaðamaður og hefur einnig starfað sem rithöfundur, en Jónína Rós kennir við Menntaskólann á Egilstöðum. Þá kemur Björn Valur Gíslason skipstjóri inn sem nýr þingmaður af lista Vinstri grænna.
Fréttir með efnisorðið ‘x09’
Nýir þingmenn Norðausturkjördæmis
Skrifað 26. apríl 2009 klukkan 10:48 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Menning, Pólitík, Skólar |Huld Aðalbjarnar inn og Jónína Rós út
Skrifað 26. apríl 2009 klukkan 02:33 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Þær breytingar urðu nú í þriðju tölum úr Norðausturkjördæmi að þriðji maður Framsóknar, Huld Aðalbjarnardóttir er komin inn, en þriðji maður Samfylkingar, Jónína Rós Guðmundsdóttir er dottin út. Nú hafa verið talin 14000 atkvæði.
Aðeins tvær konur inni samkvæmt öðrum tölum úr Norðausturkjördæmi
Skrifað 26. apríl 2009 klukkan 00:14 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Samkvæmt fyrstu og öðrum tölum ná aðeins tvær konur kjöri úr Norðausturkjördæmi. Það eru Þuríður Backman sem skipar annað sæti á lista Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Jónína Rós Guðmundsdóttir sem skipar þriðja sæti hjá Samfylkingunni.
Fjórir nýir þingmenn samkvæmt fyrstu tölum
Skrifað 25. apríl 2009 klukkan 23:37 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Samkvæmt fyrstu tölum taka fjórir nýir þingmenn sæti á Alþingi fyrir Norðausturkjördæmi. Tryggvi Þór Herbertsson prófessor er samkvæmt tölunum nýr þingmaður Sjálfstæðisflokks, en hann ýtti Arnbjörgu Sveinsdóttur niður um sæti í prófkjöri. Sigmundur Ernir Rúnarsson og Jónína Rós Guðmundsdóttir eru ný inni af lista Samfylkingarinnar. Sigmundur er þekktur úr fjölmiðlum og hefur starfað sem rithöfundur, en Jónína kennir við Menntaskólann á Egilstöðum. Þá kemur Björn Valur Gíslason skipstjóri nýr inn af lista Vinstri grænna.
Kosningavaka á Akureyri.net
Skrifað 25. apríl 2009 klukkan 10:01 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Fylgst verður með nýjustu tölum úr Alþingiskosningunum í Norðausturkjördæmi hér á Akureyri.net í kvöld. Notast verður við nýtt kosningakerfi sem Ingólfur Sigfússon hefur hannað og munu þeir Atli Þór Fanndal og Örlygur Hnefill Örlygsson uppfæra tölur fram eftir nóttu, eða þar til lokatölur liggja fyrir. Þá verða uppfærðar fréttir af gangi mála og rætt við nýja þingmenn kjördæmisins. Gert er ráð fyrir fyrstu tölum upp úr klukkan 10 í kvöld, en talningarstaður kjördæmisins er í KA heimilinu á Akureyri.
Ólík sjónarmið standa ekki í vegi fyrir vinstristjórn
Skrifað 24. apríl 2009 klukkan 15:56 | Jón Steinar | Fréttir, VefTV |Björn Valur Gíslason skipar þriðja sæti á lista Vinstri-Grænna í Norðausturkjördæmi. Hann segir helstu stefnumál flokksins í kjördæminu vera að standa vörð um atvinnu fólks sem og fyrirtæki sem eiga erfitt uppdráttar í atvinnulífinu. Hann segir ennfremur að ef svo fer að VG og Samfylking myndi stjórn muni tvö stærstu ágreiningsmál flokkanna, stóriðjuframkvæmdir og ESB aðild, ekki standa í vegi fyrir að stjórnin geti starfað eðlilega. Til að sporna við atvinnuleysi í landinu ætla VG að leggja áherslu á byggðatengd málefni, svo sem landgræðslu, fiskvinnslu, vegagerð og ferðamannaiðnað.
Auðlindin á að vera sameign þjóðarinnar
Skrifað 24. apríl 2009 klukkan 13:23 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV |“Fólkið í landinu vill fá auðlindina til baka, úr höndunum á þeim örfáu sem ráða henni núna,” segir Hallgrímur Guðmundsson fisksali, sem skipar 11. sæti á lista Frjálslynda flokksins. Hann segir mikinn meðbyr með skoðunum flokksins, um breytt fiskveiðistjórnarkerfi. “Náttúran á að segja okkur hvað við eigum að taka úr henni. Líffræðiþátturinn er því miður ekkert notaður, það eru bara stærðfræðiformúlur sem eru notaðar, og það er það vitlausasta sem við getum gert.”
Fulltrúar ÖSE fylgjast með kosningum á Akureyri
Skrifað 23. apríl 2009 klukkan 18:07 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Tíu fulltrúar Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu fylgjast með framkvæmd Alþingiskosninganna hér á landi, sem fara fram á laugardag. Þeir hafa meðal annars átt fundi með stjórnvöldum, kjörstjórnum, framboðum og fulltrúum dómsmálaráðuneytisins. Tveir þeirra eru í Norðausturkjördæmi og voru á ferð um Akureyri í morgun. Þeir hafa rætt við kosningastjóra framboðanna og fylgst með utankjörfundarkosningu. Á laugardag munu þeir fara á kjörstaði og fylgjast með talningu atkvæða um kvöldið. Þetta er í fyrsta skipti sem fulltrúar ÖSE hafa eftirlit með kosningum hérlendis.
Spáir stjórnarflokkunum sex þingsætum í Norðausturkjördæmi
Skrifað 22. apríl 2009 klukkan 22:39 | Örlygur Hnefill | VefTV |
Grétar spáir því að tvö þingsæti færist frá Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki til Samfylkingar og VG
Kosið verður til Alþingis á laugardag og er útlit fyrir góða kosningaþátttöku. Akureyri.net fékk Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, til að rýna í kannanir og spá fyrir um úrslit kosninganna í Norðausturkjördæmi. Grétar segir að skýrt hafi verið kallað eftir þessum kosningum, en þær hafi ef til vill komið of snemma til að verulegar breytingar gætu átt sér stað.
“Það virðist vera að fjórflokkurinn ætli að standa þessar kosningar af sér, eins og svo oft áður. Lengi vel hélt maður að hann stæði einn eftir, þar sem Frjálslyndi flokkurinn virðist nú vera að hverfa, en allra síðustu kannanir benda eindregið til þess að Borgarahreyfingin muni fá menn kjörna á þing.” Grétar segir að það séu auðvitað ákveðin tíðindi ef svo verði. Hann spáir Samfylkingu og Vinstri-Grænum hvorum um sig þrem mönnum á þing í Norðausturkjördæmi og að sama skapi tapi Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur því hvor sínu þingsætinu nú á laugardag.
Um helmings stuðningur við minnihlutastjórn í Norðaustri
Skrifað 22. apríl 2009 klukkan 19:48 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup styðja 49 prósent kjósenda í Norðausturkjördæmi minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri-Grænna. Er stuðningur við stjórnina næst lægstur hér ef horft er til alls landsins, en einu prósenti færri styðja stjórnina í Suðurkjördæmi. Mestur er stuðningurinn við ríkisstjórnina í Reykjavík Norður þar sem 65 prósent styðja hana. Samkvæmt könnuninni mælist Samfylkingin stærst flokka á landsvísu með rúmlega 30 prósent stuðning. Borgarahreyfingarinnar fær 7 prósent stuðning og nær samkvæmt því inn á þing. Könnunin var gerð dagana 15.-19. apríl og var svarhlutfallið 60 prósent.
Rýnt í kannanir og kosningaúrslit í Háskólanum
Skrifað 22. apríl 2009 klukkan 08:01 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Nú í hádeginu mun Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði og aðferðafræði við Háskólann á Akureyri, flytja erindi í Háskólanum undir yfirskriftinni: Hvert stefnir í kosningunum 25. apríl? Hversu vel segja skoðanakannanir til um úrslit? Þar mun Grétar kynna nýja spá um skiptingu þingsæta, bæði á landsvísu og hér í kjördæminu. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu L201 á Sólborg við Norðurslóð og er öllum opinn.
Verðum að nýta auðlindir í sátt við þjóð og náttúru
Skrifað 22. apríl 2009 klukkan 00:16 | Örlygur Hnefill | VefTV |Anna Guðný Guðmundsdóttir, sem skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins, segir helsta stefnumál flokksins í Norðausturkjördæmi vera að standa vörð um atvinnulífið. Til þess þurfi að nýta þær auðlindir sem við eigum í sátt við fólkið í landinu og náttúruna. Örlygur Hnefill Örlygsson hitti Önnu og spurði út í atvinnusköpun og stjórnarþáttöku eftir kosningar.
Hlutfall kvenna á framboðslistum lægst í Norðausturkjördæmi
Skrifað 21. apríl 2009 klukkan 16:52 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Þuríður Backman er ein kvenna í öruggu þingsæti
Konur eru hvergi færri á framboðslistum en í Norðausturkjördæmi. Af 140 frambjóðendum í kjördæminu eru aðeins 56 konur í kjöri nú á laugardag. Aðeins ein kona leiðir lista í kjördæminu, en það er Ásta Hafberg Sigmundsdóttir, sem fer fyrir Frjálslynda flokknum. Frjálslyndir hafa þó aldrei fengið mann kjörinn í kjördæminu og verður því að telja þetta mjög ólíklegt þingsæti. Huld Aðalbjarnardóttir á Húsavík skipar þriðja sæti á lista Framsóknar, en flokkurinn fékk þrjá menn kjörna í síðustu kosningum. Hún á því nokkra möguleika á þingsæti. Jónína Rós Guðmundsdóttir frá Egilstöðum á einnig raunhæfa möguleika á þingsæti sem þriðji maður á lista Samfylkingarinnar. Hins vegar er ljóst að Arnbjörg Sveinsdóttir, sem skipar þriðja sæti hjá Sjálfstæðisflokki, þarf að berjast mikið til að halda þingsæti sínu, enda hefur flokkurinn tapað miklu fylgi og hún færst niður um sæti frá síðustu kosningum. Þuríður Backman er eina konan sem segja má að sé í öruggu þingsæti, en hún skipar annað sæti á lista Vinstri-Grænna.
Orkuna þarf að beisla í þágu atvinnulífsins
Skrifað 21. apríl 2009 klukkan 03:20 | Örlygur Hnefill | VefTV |Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem skipar annað sæti á lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, segir mannaflsfrekar framkvæmdir nauðsynlegar til halda atvinnulífinu gangandi. Hann er þeirrar skoðunar að orku á Norðausturhorninu eigi að nýta til að byggja upp störf og skoða verði alla kosti til nýtingar hennar vel. Fréttamenn Akureyri.net hittu Sigmund og spurðu út í Evrópumál, samgöngumál og enduruppbyggingu efnahagskerfisins.
Hrunið á Íslandi var ekki síður siðferðislegt en efnahagslegt
Skrifað 21. apríl 2009 klukkan 03:05 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Herbert Sveinbjörnsson kvikmyndagerðarmaður, sem skipar fyrsta sæti á lista Borgarahreyfingarinnar í Norðausturkjördæmi, segir hrunið sem átti sér stað í lok síðasta árs ekki aðeins hafa verið efnahagslegt, heldur einnig pólitískt og siðferðislegt. Hann er þeirrar skoðunar að þjóðin eigi ekki að bera skuldir bankamanna um langa framtíð. Fréttamaður Akureyri.net hitti Herbert og spurði út í þörfina sem er á nýju framboði og stefnu framboðsins í efnahagsmálum.




