Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra tilkynnti stjórnendum Alcoa á Íslandi í morgun að viljayfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna álvers á Bakka yrði ekki framlengd. Núverandi viljayfirlýsing sem ríkisstjórnin gerði við sveitarstjórn Norðurþings og Alcoa um álver á Bakka við Húsavík rennur úr gildi á fimmtudag.
Iðnaðarráðherra segir að stofna eigi sérstakt félag um orkuöflun vegna álvers á Bakka við Húsavík. Félaginu sé ætlað að afla nýs fjár svo hægt verði að hefja rannsóknarboranir strax á næsta ári. Gert er ráð fyrir að félagið semji síðan við þá sem hafa áhuga á að nýta orkuna, hvort sem það verði Alcoa eða einhver annar. Ráðherra leggur þó áherslu á að ekki sé verið að útiloka samstarf með Alcoa, heldur sé ætlunin að koma málinu í fastari skorðu.








