Íslandsmót Skákfélaga er haldið í Brekkuskóla á Akureyri í dag föstudag og laugardag Mótið haldið norðan heiða í tilefni af 90 ára afmæli Skákfélags Akureyrar, sem var fyrir skömmu. Um er að ræða sveitakeppni og er teflt í fjórum deildum. Í fyrstu deild tefla 8 sveitir og fer hver viðureign fram á 8 borðum.
Keppendur á mótinu eru tæplega 400 og er það er hið fjölmennasta sem háð hefur verið á Akureyri.
Meðal keppenda verða allir sterkustu skákmenn landsins, s.s. Jóhann Hjartarson, núverandi Íslandsmeistari, Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson.
Auk þess sem sveitirnar hafa erlenda meistara í sínum röðum. Gera má ráð fyrir að a.m.k. 15 stórmeistarar sitji að tafli í Brekkuskóla meðan mótið fer fram, þ.m.t. skákmenn frá Grikklandi, Frakklandi, Búlgaríu,Tékklandi, Hollandi, Litháen, Úkraínu Svíþjóð og Danmörku.
Mótið hefst klukkan 20.00 í Brekkuskóla á morgun og mun Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri setja mótið með því að leika fyrsta leiknum í viðureign heimamanna í Skákfélagi Akureyrar og Taflfélags Bolungarvíkur, sem teflir fram sterkustu sveitinni á mótinu.
Nánari upplýsingar um mótið veita þeir Gylfi Þórhallsson (862 3820) og Áskell Örn Kárason (897 8055) frá Skákfélagi Akureyrar.
Einnig er upplýsingar að finna á á vefsíðunum www.skaksamband.is og heimasíðu Skákfélags Akureyrar www.skakfelag.muna.is



