Fréttir eftir þennnan höfund

Þórsarar áfram í bikarnum eftir sigur á Víking Ólafsvík.

Skrifað 17. júní 2009 klukkan 13:12 | | Fréttir |

Þórsarar etja kappi við Víking Ólafsvík í 32. liða úrslitum bikarsins.knattspyrna

1-0  6. mínúta :Þórsarar skora úr fyrstu hornspyrnu sinni sem þeir fengu eftir að gott skot Ottós Hólm Reynissonar var varið í horn. Atli Sigurjónsson tók hornspyrnuna inn í þéttan pakka beint fyrir framan magn Víkingsmanna, þar náði enginn að koma hausnum í boltann og hrökk hann af brjóstkassa Ármanns Péturs Ævarssonar og í markið.

12. mínúta: Ottó Hólm fékk frábæra sendingu inn fyrir vörn gestanna, hann náði að senda boltann á stikkfrían Einar Sigþórsson sem átti að gera betur úr þessu færi sínu. Þórsarar hafa verið beittari fyrsta korterið.

Þórsarar virðast finna sína menn mun betur þegar þeir eru með boltann. Ólafsvíkingar eru ekki að ná að keyra upp spil hjá sér og eru því aðgerðir þeirra hálf losaralegar. Nú þegar um 20 mínútur eru liðnar af leiknum virðast Þórsarar vera að ná tökum á leiknum.

1-1 23. mínúta: Víkingsmenn frá Ólafsvík uppskera jöfnunarmark. Þetta mark kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Eitthvað klafs var fyrir utan teig Þórsara sem endaði á því að boltinn barst inn í teiginn á óvaldaðan Fannar Hilmarsson, rúmlega tvítugan framherja sem átti ekki í erfiðleikum með að klára þetta frábæra færi fram hjá Atla Má Rúnarssyni í marki heimamanna

2-1 33. mínúta. Ármann Pétur Ævarsson á sendingu inn í teig gestanna, boltinn náði þó ekki inn í teiginn og barst boltinn út úr teignum. Þar kom Sveinn Elías Jónsson á góðri siglingu og setti boltann niðri með jörðinni út við stöng. Gott mark Þórsara. Þeir komu vel til baka eftir markið greinilega!

43. mínúta. Ólafsvíkingar fengu aukaspyrnu á vítateigshorninu. Góð sending fyrir frá þeim og geistirnir  áttu skalla að marki. þeir náðu að koma boltanum inn fyrir en markið dæmt af. Atli Már hafði náð að halda boltanum. Alfreð Jóhannsson, sóknarmaður gestanna bratu á Atla og sparkaði boltanum úr höndunum á Atla.

Við þetta flautaði Kristinn Jakobsson til hálfleiks í þessum bráðskemmtilega leik. 2-1 í hálfleik!

50. mínúta: Þórsarar hafa fengið 2 góð færi á upphafsmínútum síðari hálflleiks til að auka forystu sína. Þeir hafa ekki slegið slöku við og vilja greinilega klára þennan leik og komast í 16. liða úrslitin. Þórsarar hafa fengið fjórar hornspyrnur það sem af er hálfleiknum .

Arngrímur flugkappi hefur ákveðið að kíkja á leikinn úr lofti og sveimar hann yfir vellinum á Flugbátnum sínum!!

65. mínúta: Víkingar fengu aukaspyrnu á ákjósanlegum stað, rétt utan vítateigs. Tryggvi Hafsteinsson átti bylmingsskot að marki heimamanna en náði ekki að stýra knettinum að marki.

67. mínúta: Ottó Hólm komst upp að endamörkum vinstra megin og sendi fína sendingu inn í teig gestanna. Bakvörður þeirr náði að setja hausinn í boltann  og í átt að marki. Markvörður Víkinga, Snæbjörn Aðalsteinsson þurfti svo sannarlega að taka á honum stóra sínum til að koma í veg fyrir sjálfsmark.

73. mínúta: Einar Sigþórsson komst einn í gegnum vörn Víkinga og átti aðeins eftir að plata markvörðinn. Einar tók á það ráð að vippa boltanum yfir markmanninn og tókst það ágætlega. Hins vegar, til allrar lukku fyrir gestina rann boltinn hægt og rólega fram hjá markinu.

79. mínúta. 3-1 Sveinn Elías Jónsson skorar eftir að Einar Sigþórsson splundraði gjörsamlega vörn gestanna. Hann tók eina þrjá varnarmenn á, plataði þá alla upp úr skónum og þegar Snæbjörn markmaður Víkinga var einn eftir sýndi Einar hversu óeigingjarn hann er, renndi boltanum á Svein Elías sem skorar sitt annað mark í leiknum

86. mínúta: Nú átti Hreinn Hringsson að gera betur. Hreinn var nýkominn inn á sem varamaður og fékk góða sendingu inn fyrir miðja vörn gestanna. Hann ákvað að skjóta fyrir utan vítateig í stað þess að rekja boltann aðeins lengra og komast í betra færi eða renna boltanum út til hægri þar sem Sveinn Elías var mættur til hjálpar. Skot Hreins var auðveldlega varið.

93 mínútur LEIK LOKIÐ: Þórsarar sigra þennan leik næsta auðveldlega. Gestirnir fengu aðeins eitt ákjósanlegt marktækifæri og nýttu það. Þórsararnir voru mun beittari í öllum sínum aðgerðum og stjórnuðu leiknun nánast frá fyrstu mínútu. Akureyri.net þakkar fyrir sig og óskar lesendum sínum gleðilegrar hátíðar á þessum merka degi, 17. júní.


Fyrirliði Hauka: “Áttum að kála þeim í fyrri hálfleik”

Skrifað 11. júní 2009 klukkan 23:20 | | Fótbolti, Íþróttir |
thorhallurdan

Þórhallur Dan Jóhannson (haukar.is)

Þórhallur Dan Jóhannsson, fyrirliði Hauka, var að vonum ósáttur eftir að liðið beið lægri hlut gegn KA-mönnum í kvöld á Akureyrarvelli. Þrátt fyrir að gestirnir hafi byrjað vel og verið sprækari aðilinn lengi framan af fyrri hálfleik náðu þeir ekki að setja mark sitt á leikinn.

“Við yfirspiluðum þá í fyrri hálfleik og áttum náttúrulega að klára leikinn. Við vorum klaufar þegar við vorum komnir upp við mark KA-manna, vorum að skjóta úr vondum færum og af löngu færi á köflum. Leikurinn jafnast svo í seinni hálfleik þar sem þeir fá eitt færi en við ekki neitt og þeir skoruðu. Við nýttum ekki færin og áttum að kála þeim í fyrri hálfleik. Þeir spiluðu leikinn bara vel og við áttum ekki svör við þeim. KA liðið á bara hrós skilið fyrir vel skipulagðan leik og góða spilamennsku”

Seinni hálfleikurinn var mun rólegri en sá fyrri. Í raun var aðeins eitt hættulegt færi í seinni hálfleik þegar Haukur Heiðar Hauksson og Dean Martin léku vel saman, Haukur komst inn fyrir vinstri bakvörð Haukamanna og átti frábæra sendingu inn í vítateiginn þar sem David Disztl kom í vel tímasett hlaup og átti ekki í vændræðum með að setja boltann í netið, óverjandi fyrir Kristinn Þór Garðarsson í marki Hauka. Dean Martin kom inn á í hálfleik í lið heimamanna. Aðspurður út í áhrif innkomu Dean Martin sagði fyrirliði Hauka:

“Já, vissulega. Dean Martin er auðvitað gríðarlega góður leikmaður sem tekur mikið til sín. Það var kannski það sem þá vantaði í fyrri hálfleiknum að hann kom inn á og stjórni leiknum. Hann er hjartað og lunga í þessu liði og við innkomu hans í leikinn eykst sjálfstraustið gríðarlega í leik KA-manna. Hann gerir einmitt vel í þessu marki, góður þríhyrningur sem hann býr til. KA á bara bara hrós skilið fyrir sinn leik og þessi þrjú stig eru þeirra. Hvort sem það er svo sanngjarnt eða ekki er annað mál en það er ekkert spurt að því.”

Nánar »


KA hafði betur gegn Haukum

Skrifað 11. júní 2009 klukkan 20:00 | | Fótbolti, Íþróttir |
Markalaust er á Akureyrarvelli eftir fyrri hálfleik. Mynd/ÖHÖ

David Disxtl skoraði sigurmark KA á 72. mínútu . Mynd/ÖHÖ

KA etur kappi við topplið Hauka á Akureyrarvelli nú í kvöld. Fyrir leikinn höfðu Haukamenn skorað flest mörk í deildinni, alls 13 mörk. Hins vegar höfðu KA menn fengið á sig langfæst mörk í deildinni, eða aðeins eitt mark. Því má með sanni segja að besta varnarlið 1. deildarinnar hafi fengið besta sóknarliðið í heimsókn.

Leikurinn byrjaði rólega þar sem Haukamenn voru ívið meira með boltann. Hafnfirðingar fengu gott tækifæri strax á 6. mínútu þegar Hilmar Geir Eiðsson fékk góða sendingu inn fyrir vörn heimamanna, komst upp að endamörkum og renndi boltanum út í teiginn. Þar var Úlfar Hrafn Pálsson mættur eins og hrægammur og skaut að marki, en KA menn náðu að bjarga í horn.

Fyrsta alvöru marktækifæri KA manna kom á 15. mínutu þegar þeir fengu dæmda aukaspyrnu á ákjósanlegum stað rétt utan vítateigs. Húsvíkingurinn Guðmundur Óli Jónsson átti þrumuskot úr aukaspyrnunni en blessunarlega fyrir Haukamenn fór spyrnan rétt yfir markið.

Nánar »


Athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson gjaldþrota

Skrifað 04. maí 2009 klukkan 15:25 | | Fréttir, Viðskipti | 1 athugasemd |
Magnús Þorsteinsson

Magnús Þorsteinsson

Athafnamaðurinn Magnús Þorsteinsson, sem átti áður heimili að Hafnarstræti 20 á Akureyri, hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Úrskurðurinn var kveðinn upp í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Magnús hefur ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart láni sem fyrirtæki í hans eigu fékk frá Straumi Burðarás.

Verjandi Magnúsar heldur því fram að um svonefndan málamyndagerning hafi verið að ræða þegar Magnús hafi gerst ábyrgðarmaður þessara skulda. Hafi hann undir höndum gögn sem gefi það til kynna að stjórnendur Straums hafi gert samkomulag við Magnús að hann yrði aldrei sóttur fyrir dómstólum sem ábyrgðarmaður.

Magnús Þorsteinsson flutti lögheimili sitt þann 7. apríl síðastliðinn og krafðist verjandi hans að bú hans yrði ekki tekið til gjaldþrotaskipta á þeim grundvelli að hann ætti ekki lögheimili á Íslandi. Þetta féllst dómurinn ekki á og bendir á að þegar krafa um gjaldþrotaskiptin barst dómnum átti Magnús lögheimili á Íslandi, því verði ekki hjá því komist að taka málið fyrir í þessu umdæmi, þó að hann hafi flutt lögheimilið áður en endanlegur dómur liggi fyrir í málinu.

Magnús Þorsteinsson er hvað frægastur fyrir að hafa efnast mjög með Björgúlfsfeðgum með kaupum á bjórverksmiðju, sem síðar var seld Heineken verksmiðjunum. Umsvif hans hafa síðan verið mikil bæði í íslensku viðskiptalífi og í því rússneska og er hann nú ræðismaður Íslands í Rússlandi. Ingvar Þóroddson hdl. hefur verið skipaður skiptastjóri yfir búi Magnúsar.