Fréttir eftir þennnan höfund

Einleikur í Samkomuhúsinu á fimmtudag og lokasýning á Spilaþjófnum í Rýminu á laugardag

Skrifað 09. maí 2012 klukkan 14:40 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Á morgun, fimmtudaginn 10.maí  kl. 20:00  mun Sigurður Skúlason sýna einleikinn Hvílíkt snilldarverk er maðurinn, í Samkomuhúsinu. Verkið er unnið upp úr verkum Shakespears og hefur fengið afburða góða gagnrýni.  Verkið hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu í vetur og er einnig nýkomið úr leikferð um Austurland þar sem það var sýnt 6 sinnum fyrir fullu húsi.  Aðeins er um þessa einu sýningu að ræða. Nánar »


Umhverfi og úrgangur á Akureyri í eina og hálfa öld. Fyrri hluti.

Skrifað 09. maí 2012 klukkan 09:46 | | Bæjarmál, Fréttir, Pistlar |

Jón Ingi Cæsarsson skrifar:

Lengi hefur sú ímynd fylgt Akureyri að bærinn sé fallegur, íbúarnir metnaðarfullir fyrir hönd umhverfisins og bærinn sé í fremstu röð og hafi verið lengi.   Einhvernvegin hafa úrgangsmál og áhugi á lausnum þeim tengdum fylgt mér sem áhugamál nokkuð lengi. Ég kom inn í stjórn Sorpeyðingar Eyjafjarðar í lok síðustu aldar og hafði ekki verið lengi á þeim vettvangi til að gera mér enn frekari grein fyrir ófremdarástandi í þessum málaflokki á Akureyri og Eyjafirði öllum. Það varð mér aftur tilefni til að skoða þessi mál með óformlegum hætti aftur áratugina.  Þetta er nokkuð mikið efni og því ætla ég að skipta þessum pistli í tvo hluta, aðeins fjalla um það sem sjá mátti í fjölmiðlum á fyrri hluta síðust aldar og svo drepa aðeins á þær ótrúlegu hugmyndir sem sjá mátti á flugi seinni hluta tuttugustu aldarinnar í umhverfis og úrgangumræðunni á Akureyri. Nánar »


Uppskeruhátíð leik- og grunnskóla Akureyrar í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrar

Skrifað 08. maí 2012 klukkan 19:49 | | Fréttir |

Mynd: Ragnar Hólm

Það verður mikið um dýrðir hjá afmælisbarninu og skólabænum Akureyri 7. – 21. maí þegar nemendur í leik- og grunnskólum bæjarins sýna afrakstur vetursins á Uppskeruhátíð leik- og grunnskólanna.  Verkin verður að finna víðs vegar um bæinn eða á hátt í tuttugu stöðum og má sem dæmi nefna að Leikskólinn Tröllaborgir sýnir á Bláu könnunni, Oddeyrarskóli í Flugstöðinni, Leikskólinn Sunnuból sýnir í Glerárkirkju og Glerárskóli sýnir í Lystigarðinum og á Icelandair Hotel. Nánar »


Royal sýning: Mjólkurbúðin, Listagil Akureyri

Skrifað 08. maí 2012 klukkan 19:44 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Gréta Gísladóttir listamaður sýnir verk sín land & þjóð í spilum í Mjólkurbúðinni í maí. Opnun er laugardaginn 12. maí klukkan 14 – 17.

Húmor og pólitík í spilastokknum.  Nánar »


27 sóttu um starf verkefnisstjóra atvinnumála á Akureyri.

Skrifað 08. maí 2012 klukkan 19:35 | | Fréttir |

Alls sóttu 27 um starf verkefnastjóra atvinnumála hjá Akureyrarstofu en starfið var auglýst laust til umsóknar eftir að Sævar Pétursson sem gengt hafði því starfi sagði starfi sínu lausu. Sævar lét af störfum þann 1. mars sl.  Um starfið sóttu 11 konur og 16 karlar og rann umsóknarfresturinn út 25. apríl. Nánar »


Nýtt gistiheimili opnar í miðbænum á næstu dögum

Skrifað 07. maí 2012 klukkan 23:45 | | Fréttir |

Á næstu dögum mun nýtt gistiheimili opna í miðbænum þ.e. Akureyri Backpackers sem verður til húsa í Hafnarstræti 98.  Húsið sem um árabil hafði verið í mikilli niðurníðslu en var friðað árið 1997 en mun nú öðlast nýtt líf. Umfangs miklar breytingar hafa staðið yfir á húsinu og nú sér fyrir endan á þeim framkvæmdum. Gistiheimilið mun rúma um 100 gesti og veita fjölþætta þjónustu fyrir ferðalanga.

Nánar »


Barokktríó í Hofi

Skrifað 07. maí 2012 klukkan 09:49 | | Fréttir, Menning, Tónlist |

Fimmtudagskvöldið 10 maí kl. 20 verða Barokktónleikar í Hömrum (Hofi).  Á tónleikunum verður flutt tónlist eftir tónskáld á borð við Buxtehude, Marcello, Frescobaldi og Corelli.
Fram koma Ásdís Arnardóttr, selló, Eyþór Ingi Jónsson, semball og Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla. Pétur Halldórsson útvarpsmaður kynnir.


Evrópustofu opnar útibú á Akureyri í dag

Skrifað 07. maí 2012 klukkan 09:06 | | Fréttir |

Evrópustofa opnar útibú á Akureyri í dag og er opnunin liður í viðleitni miðstöðvarinnar að auka almenna þekkingu á Evrópusambandinu meðal íslensks almennings. Þar munu gestir hafa aðgang að upplýsingaefni, bæði almennu kynningarefni sem og fræðilegum bókakosti um ESB, ásamt því sem fólki stendur til boða að setjast niður við tölvu og sækja sér upplýsingar um ESB og starfsemi þess á veraldarvefnum. Evrópustofa verður til húsa í Deiglunni að  Kaupvangsstræti 23,  samhliða Norrænu upplýsingaskrifstofunni .


Akureyri Íslandsmeistari 2. flokks karla í handbolta (Myndasyrpa)

Skrifað 05. maí 2012 klukkan 19:01 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Strákarnir í öðrum flokki urðu Íslandsmeistarar í handbolta í dag þegar þeir lögðu Fram í  framlengdum úrslitaleik sem fram fór í Schenkerhöllin í dag. Akureyri var sterkari aðilinn lengst af leiknum en góður kafli Fram undir lok leiksins náðu þeir að jafna leikinn og því þurfti að framlengja leikinn. Akureyri reyndist svo sterkari aðilinn í framlengingunni og hafði að lokum eins marks sigur 28-29 og Íslandsmeistaratitilinn staðreynd. Nánar »


Fulltrúar S-lista ósáttir við nýjan samning bæjarins og Leikfélags Akureyrar

Skrifað 05. maí 2012 klukkan 14:07 | | Fréttir |

Á fundi bæjarráðs frá 3. maí voru lögð fram drög að nýjum samningi við Leikfélag Akureyrar en leikfélagið hefur átt í gríðarlegum fjárhagsvanda undanfarið. Meirihluti stjórnar Akureyrarstofu hafði fyrir sitt leyti samþykkt samninginn. Nánar »


Íslandspóstur: Ný frímerki

Skrifað 03. maí 2012 klukkan 09:15 | | Fréttir |

Akureyri 150 ára kaupstaðarafmæli, Skrúðgarðar IV, Skátahreyfingin á Íslandi 100 ára, Ólympíuleikarnir í London 2012 og Evrópufrímerkin 2012–Heimsækið Ísland

Akureyri 150 ára

Akureyrarbær er fjórða fjölmennasta sveitarfélag landsins en í árslok 2011 bjuggu þar um 18.000 manns. Eyjarnar Grímsey og Hrísey eru innan vébanda sveitarfélagsins.

Landnámabók greinir frá því að fyrsti landneminn á svæðinu var Helgi „magri“ Eyvindarson sem kom þangað á 9. öld. Árið 1778 var fyrsta íbúðarhúsið reist á staðnum og varanleg búseta hófst. Átta árum síðar fékk bærinn kaupstaðarréttindi ásamt fimm öðrum bæjum á Íslandi. Þetta var að undirlagi Danakonungs en hann vildi reyna að efla hag Íslands með því að hvetja til þéttbýlismyndunar þar en slíkt var þá nánast óþekkt á landinu. Akureyri missti kaupstaðarréttindin 1836 en fékk þau aftur 1862. Bændur í Eyjafirði bundust samtökum til að styrkja stöðu sína gagnvart dönskum kaupmönnum og stofnuðu Kaupfélag Eyfirðinga á Akureyri (KEA). Kaupfélagið átti mikinn þátt í vexti bæjarins og á vegum þess voru rekin mörg iðnfyrirtæki í bænum sem mörg sérhæfðu sig í úrvinnslu landbúnaðarafurða. Meiri umsvif í verslun og þjónustu, ferðaþjónustu, sjávarútvegi og Háskólinn á Akureyri hafa nú komið í stað iðnaðarins að miklu leyti. Akureyri er mjög blómlegt sveitarfélag á 150 ára afmælisárinu.

Oscar Bjarnason hannaði frímerkið. Ljósmyndina tók Árni Geirsson. Verðgildi frímerkisins er 50g innanlands (ígildi 97 kr.).

Skrúðgarðar IV.

Þetta er í fjórða sinn á fjórum árum sem út koma frímerki tileinkuð skrúðgörðum. Árið 2008 kom út frímerki með Skrúði, árið 2010 kom út frímerkjaröð með Jónsgarði, Hellisgerði og Skallagrímsgarði og árið 2011 komu út frímerki með Alþingisgarðinum og Austurvelli. Þessi útgáfa er hins vegar tileinkuð Lystigarðinum á Akureyri 100 ára og Hallargarðinum við Fríkirkjuveg í Reykjavík.

Lystigarðurinn á Akureyri.

Lystigarðurinn er rekinn af Akureyrarbæ sem grasagarður og skrúðgarður. Almenningsgarðurinn var opnaður formlega 1912 en grasagarðurinn 1957. Lystigarðsfélagið var stofnað 1909 og var Sigríður Sæmundsson fyrsti formaður þess. Margrethe Schiöth starfaði að vexti og viðgangi garðsins í rúmlega þrjátíu ár. Fegrunarfélag Akureyrar beitti sér fyrir kaupum á merkilegu og sérstæðu grasasafni Jóns Rögnvaldssonar, sem var brautryðjandi í ræktun íslenskra jurta. Nú eru tæplega 7000 erlendar tegundir í garðinum og meginþorri íslensku flórunnar. Rúmlega 100.000 manns koma í garðinn á hverju sumri og sífellt fleiri koma á öðrum árstímum.

Hallargarðurinn í Reykjavík.

Hallargarðurinn er skrúðgarður við Fríkirkjuveg í Reykjavík Hann var gerður á árunum 1953 1954 og skipulagður af Jóni H. Björnssyni, fyrsta menntaða landslagsarkitekt á Íslandi. Hallargarðurinn ber svip af görðum amerískra módernista, með ávölum línum og sífellt nýjum sjónarhornum. Honum var lokið sumarið 1954. Garðinum var breytt árið 1986. Tjörnin og gosbrunnurinn hurfu og runnar og blómabeð komu í staðinn. Í garðinum er minnismerki um athafnamanninn Thor Jensen og eiginkonu hans, Þorbjörgu Jensen. Efst í garðinum er höggmyndin Piltur og stúlka eftir Ásmund Sveinsson.

Hany Hadaya hannaði frímerkin. Verðgildi frímerkjanna eru 500g innanlands (ígildi 225 kr.) og 100g til Evrópu (ígildi 300 kr.).

Skátahreyfingin á Íslandi 100 ára

Sumarið 1911 stofnaði Ingvar Ólafsson fyrsta skátaflokkinn á Íslandi og fyrsti skátafundurinn mun hafa verið haldinn 16. júlí sama ár. Ingvar hafði dvalið í Danmörku og kynnst þar starfsemi skáta. Nokkrir skátar í flokknum stofnuðu ásamt fleirum Skátafélag Íslands, síðar nefnt Skátafélag Reykjavíkur, 2. nóvember 1912. Störfuðu þeir fyrst í einni sveit undir forystu Sigurjóns Péturssonar frá Álafossi. Tveimur árum seinna voru þrjár sveitir í Skátafélagi Reykjavíkur, alls 57 skátar. Sveitarforingjar voru allir kunnir forystumenn úr íþróttahreyfingunni, þeir Benedikt G. Waage og Helgi Jónasson auk Sigurjóns. Fyrsta skátafélag stúlkna, Kvenskátafélag Reykjavíkur var stofnað innan vébanda KFUK 7. júlí árið 1922 og varð Jakobína Magnúsdóttir fyrsti félagsforingi þess, en Gertrud Friðriksson, fyrsti félagsforingi kvenskáta á Húsavík, átti mestan þátt í stofnun félagsins. Kvenskátasamband Íslands var stofnað 23. mars árið 1939, voru félagar þess þá 459. Árið 1944 sameinuðust tvö landssambönd skáta í núverandi Bandalag íslenskra skáta.

Hörður Lárusson hannaði frímerkið. Verðgildi frímerkisins er 50g innanlands (ígildi 97 kr.).

Ólympíuleikarnir í London 2012

Sumarólympíuleikarnir 2012 verða haldnir í London dagana 27. júlí til 12. ágúst 2012. Þetta eru þrítugustu Ólympíuleikarnir. London verður þar með fyrsta borgin til að halda sumarólympíuleikana þrisvar sinnum. Áður voru leikarnir haldnir þar 1908 og 1948.

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sendir glæsilega fulltrúa landsins á Ólympíuleikana þar

sem þeir keppa m.a. í handbolta, sundi, badminton og frjálsum íþróttum.

Sumarólympíuleikarnir munu eiga sér stað víðs vegar um London. Að hluta verður notast við mannvirki sem eru til og að hluta ný og tímabundin mannvirki. Yfirlýst markmið er að skilja ekki eftir „hvíta fíla“, þ.e. stór mannvirki sem enginn nýtir eftir leikana. Ólympíuleikvangurinn og Ólympíuþorpið verða í Stratford í Austur London þar sem eignarnám eldri bygginga sem til stendur að rífa hefur vakið deilur. Ólympíuleikvangurinn er hannaður þannig að hann rúmi 80.000 gesti fyrir opnunar-og lokahátíðir leikanna en verði síðan breytt í 25.000 sæta íþróttaleikvang. Í ákveðnum greinum, m.a. siglingum, verður keppt utan London. Leikir í undanriðlum í knattspyrnu verða leiknir á frægum knattspyrnuvöllum í Skotlandi og Englandi.

Björgvin Sigurðsson hannaði frímerkið. Verðgildi frímerkisins er 250g til Evrópu (ígildi 580 kr.).

Evrópurfrímerkin 2012 – Heimsækið Ísland

Þema Evrópufrímerkjanna 2012 er heimsókn til viðkomandi lands, í okkar tilviki Íslands. Þegar farið var að skoða hvernig best væri að koma myndrænum skilaboðum á framfæri í þessu knappa formi sem frímerkið er og auglýsa Ísland sem ferðamannaland um leið, var ákveðið að blanda saman myndefni og QR kóðum. Íslensku Evrópufrímerkin eru þau fyrstu þar sem myndefnið er byggt inn í sjálfan kóðann. Myndefnin eru goshver og norðurljós. Notkun á QR kóðum í ýmsu margmiðlunar- efni hefur stóraukist upp á síðkastið. QR kóðar eru svokallaðir tvívíddar kóðar þar sem hefðbundin strikamerki eru í einni vídd. Því er hægt að koma mun meiri upplýsingum fyrir í QR kóðum, allt frá vefslóðum upp í nafnspjöld og jafnvel textaskrár. QR kóðar komu fyrst fram um miðjan tíunda áratuginn og á rætur sínar að rekja til aðferða sem voru þróaðar í Japan um miðjan níunda áratuginn. Þeir hafa breiðst mjög hratt úr með tilkomu svokallaðra „snjallsíma“ og viðeigandi hugbúnaðar. Þegar kóðinn er skannaður í snjallsímann þinn opnast vefsíðan BeIceland.is þar sem hægt er að finna nytsamlegar upplýsingar um alla þjónustu fyrir ferðamenn á Íslandi, s.s gistingu, veitingastaði, afþreyingu og margt fleira sem getur nýst þeim sem heimsækja landið.

 

Elsa Nielsen hannaði frímerkin. Verðgildi frímerkjanna eru 50g til Evrópu (ígildi175 kr.) og 50g utan Evrópu (ígildi 230 kr.).


List án landamæra á Norðurlandi sett í Hofi fimmtudaginn 3. maí.

Skrifað 02. maí 2012 klukkan 16:10 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Hátíðin List án landamæra er einstök í sinni röð þar sem fatlaðir og ófatlaði mætast í list sinni.  Hátíðin á Norðurlandi er búin að festa sig í sessi og á hverju ári færir hún áhugasömum viðburði sem spanna allt litróf listanna.

List án landamæra á Norðurlandi stendur yfir 2. – 19. maí og er sjálf opnunarhátíðin í Hofi fimmtudaginn 3. maí klukkan 14. Nánar »


Lokað verður fyrir heita vatnið í Vestursíðu á morgun

Skrifað 02. maí 2012 klukkan 14:43 | | Fréttir |

Vegna framkvæmda við hitaveitu í Vestursíðu þarf að loka fyrir vatnið á morgun, fimmtudaginn 3. maí frá kl. 7.45 og fram eftir degi. Svæðið sem lokunin tekur til má sjá HÉR.  Tilkynningar hafa verið bornar út í pósti til húsráðenda á viðkomandi svæði.

Vakin er athygli á því að loka þarf Vestursíðunni fyrir umferð ökutækja annarra en Strætisvagna Akureyrar vegna framkvæmdanna. Nánar »


Íþróttafélagið Þór með opinn fyrirlestur um skaðsemi munn- og neftóbaks

Skrifað 02. maí 2012 klukkan 12:26 | | Fréttir |

Íþróttafélagið Þór stendur fyrir opnum fyrirlestri um skaðsemi munn- og neftóbaks í Hamri í kvöld kl. 20. Er þetta liður í baráttu félagsins við að útrýma notkun hvers kyns tóbaks á félagssvæði Þórs. Það er Martha Hermannsdóttir tannlæknir og handknattleikskona sem flytur fyrirlesturinn. Martha mun halda annan fyrirlestur þriðjudaginn 15. maí. Fyrirlesturinn er öllum opinn og allir velkomnir.


Sjónlistamiðstöðin hafnar tilboði SUS í plastmál Jóhönnu

Skrifað 30. apríl 2012 klukkan 17:59 | | Fréttir |

Eins og kunnugt er keypti Sjónlistamiðstöðin plastmál, sem Jóhanna Sigurðardóttir drakk úr í útvarpsþættinum Virkir morgnar á Rás2 fyrir skemmstu er nú enn og aftur komið í fréttirnar. Félag ungra Sjálfstæðismanna gerði Sjónlistamiðstöðinni tilboð í málið fræga og vill greiða tvöfalt hærra verð fyrir málið eða 210 þúsund krónur. Nánar »