Fréttir eftir þennnan höfund

Kvennaskíðaganga – Í spor Þórunnar Hyrnu 2012

Skrifað 22. febrúar 2012 klukkan 22:59 | | Fréttir, Skíði |

Laugardaginn 3. mars býðst konum kjörið tækifæri til að hreyfa sig og njóta útivistar með því að skella sér á gönguskíði í Hlíðarfjalli.

Kvennaskíðagangan – Í spor Þórunnar Hyrnu – verður nú haldin í fimmta sinn. Sem fyrr verður hægt að velja um tvær vegalengdir, 3,5 og 7 km. Upphitun hefst klukkan 12.50 en gangan hefst klukkan 13.00 og gengið er án tímatöku. Þátttökugjald er kr. 1500, frítt er fyrir 14 ára og yngri. Skíðaleiga er á staðnum og einnig er hægt að láta smyrja skíðin gegn vægu gjaldi. Allir eru hvattir til að mæta í búningum.  Skráning fer fram í gönguhúsi norðan Skíðastaða frá klukkan 11.30 Nánar »


Stjórnmál: SAMSTAÐA með kynningarfund á Akureyri

Skrifað 22. febrúar 2012 klukkan 22:52 | | Fréttir, Stjórnmál |

SAMSTAÐA flokkur lýðræðis og velferðar heldur opinn kynningarfund fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20.00 – 22.00 í Deiglunni, Kaupvangsstræti 23, Akureyri.  Á fundinum verður farið yfir skipulag flokksins ásamt því sem áherslur í helstu málaflokkum verða kynntar. Fundargestum gefst einnig færi á því að spyrja fulltrúa SAMSTÖÐU spurninga og einnig verður hægt verður að skrá sig í flokkinn á staðnum. Heitt á könnunni og allir hjartanlega velkomnir segir í tilkynningu frá stjórninni.


Superclásico sýnd í Hofi: Samstarf Bíó Paradís og KvikYndi

Skrifað 22. febrúar 2012 klukkan 09:54 | | Fréttir |

Bíó Paradís í samstarfi við KvikYndi (Kvikmyndaklúbb  Akureyrar) sýna kvikmyndir á breiðtjaldi í bestu mögulegu hljómgæðum og færa þannig andrúmsloft kvikmyndanna í Hof.

Í kvöld, 22. febrúar kl. 20 verður kvikmyndin Superclásico (Erkifjendur) sýnd en þessi eldfjöruga rómantíska kómedía frá leikstjóra Flammen og Citronen sló rækilega í gegn í Danmörku fyrr á árinu og var nýlega valin framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna. Nánar »


Norður í Mjólkurbúðinni Listagili

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 19:00 | | Fréttir, Menning, Sýningar |

Sólveig Thoroddsen opnar sýninguna NORÐUR í Mjólkurbúðinni Listagili, föstudaginn 24. febrúar kl. 17 og eru allir velkomnir.

Sólveig Thoroddsen um sýninguna Norður: Sýning "Norður" byggir á dvöl minni á Svalbarða í nóvember síðastliðnum. Í
verkum mínum túlka ég áhrif náttúru, samfélags og umhverfis. Sérstaklega er mér hugleikið sambandið milli manns og náttúru, aðlögun beggja afla hvort að öðru og spennuna sem ríkir oft milli þessa ólíku en þó náskyldu afla, því
maðurinn er, þegar allt kemur til alls, hluti af náttúrunni. Nánar »


Kattarslagur á leikhúsflötinni á morgun

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 14:38 | | Fréttir |

Leikfélag Akureyrar og Norðurorka munu í tilefni öskudagsins á morgun bjóðum krökkum á Akureyri í kattarslag á leikhúsflötinni kl. 10.30.  Það lið sem slær tunnuna fær 4 miða á Gulleyjuna.  Það lið sem slær köttin fær 4 miða á Gulleyjuna.  Einnig er leikfélagið með búningasamkeppni á öskudaginn það verður því líf og fjör á öskudaginn við leikhúsið. Nánar »


Aðalfundur FVSA sendi frá sér ályktun

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 12:32 | | Fréttir |

Á aðalfundi Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, sem haldinn var mánudaginn 20. febrúar sl., var stjórn félagsins falið að skora á ráðamenn þjóðarinnar að ná pólitískri samstöðu og koma til móts við þá sem tóku verðtryggð lán, með almennum leiðréttingum. Eftir nýlegan dóm Hæstaréttar í gengislánamálinu er orðinn verulegur munur á stöðu þeirra sem tóku gengistryggð lán og þeirra sem tóku verðtryggð lán. Stjórn félagsins minnir á nýleg ummæli formanns efnahags- og skattanefndar þar sem hann sagði að í nýrri greinargerð frá matsfyrirtækinu Fitch væri sérstaklega fjallað um að skuldir heimilanna væru enn of miklar og þær yrðu að lækka. Krafan um leiðréttingu verðtryggðra lána hefur því aldrei verið háværari og réttmætari en einmitt nú.


Aðalfundur FVSA haldinn í gær

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 10:31 | | Fréttir |

Aðalfundur Félags verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni (FVSA) var haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri í gær, mánudaginn 20. febrúar. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, formaður félagsins, kynnti skýrslu stjórnar og breytingar á styrkjum úr sjúkrasjóði.

Um síðustu áramót voru félagsmenn 2.049; 814 karlar og 1.225 konur. Þar af eru 310 lífeyrisþegar. Þegar Úlfhildur kynnti skýrslu stjórnar kom m.a. fram að þó starfsemi félagsins hefði verið með hefðbundnum hætti á síðasta ári þá var þetta mikið framkvæmdaár í sögu félagsins. Nánar »


Safnasafnið á Svalbarðströnd hlaut Eyrarrósina 2012

Skrifað 21. febrúar 2012 klukkan 00:22 | | Fréttir, Menning |

Á laugardaginn 18. febrúar var tilkynnt að Safnasafnið á Svalbarðsströnd hafi fengið Eyrarrósina 2012 og veittu aðstandendur safnsins viðurkenningunni móttöku í athöfn sem fram fór á Bessastöðum. Viðurkenninguna hlýtur safnið fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, en safnið þykir vinna merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar. Verðlaunin sem safnið hlaut auk Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripð eftir Steinunni Þórarinsdóttir og flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Þetta kemur fram á heimasíðu Listahátíðar Reykjavíkur.


Lögfræðitorg: Hugleiðingar um tjáningar- og trúfrelsi

Skrifað 20. febrúar 2012 klukkan 15:04 | | Fréttir, Háskólinn, Skólar |

Þriðjudaginn 21. febrúar mun Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður halda erindi undir yfirskriftinni: Hugleiðingar um tjáningar- og trúfrelsi. Torgið hefst kl. 12.00 og er haldið í stofu M102 á Sólborg.

Undanfarið hefur töluvert verið rætt og ritað um tjáningar- og trúfrelsið og sýnist sitt hverjum. Nánar »


Opna Bautamótið í tölti

Skrifað 20. febrúar 2012 klukkan 01:03 | | Fréttir, Íþróttir |

Opna Bautamótið í tölti fór fram á laugardag í Skautahöllinni á Akureyri. Þórir Tryggvason var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir.    Nánar »


KA/Þór tapaði fyrir Fram í dag

Skrifað 18. febrúar 2012 klukkan 21:40 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Stelpurnar í KA/Þór tóku á móti Fram í N1 deild kvenna í handbolta í leik sem fram fór í KA-heimilinu. Svo fór að gestirnir höfðu öruggan átta marka sigur 20-28 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 11-17. Ásdís Sigurðardóttir var markahæst í liði KA/Þórs með 8 mörk en Martha Hermannsdóttir skoraði 5. Hjá gestunum var Elísabet Gunnarsdóttir markahæst með 10 mörk en Stella Sigurðardóttir skoraði 5. Nánar »


Kerfillinn í Hrísey.

Skrifað 18. febrúar 2012 klukkan 19:10 | | Almennt, Fréttir, Pistlar |

Að þessu sinni skrifar Jón Ingi Cæsarsson um Kerfilinn í Hrísey

Hrísey er gjarnan kölluð perla Eyjafjarðar. Það eru orð að sönnu og fátt er betra en taka ferjuna á fallegum helgarmorgni og nóta dagvistar þar. Möguleikar til gönguferða eru margir og fjölbreytilegir, heimamenn hafa lagt sitt að mörkum með merkingum og skiltum og svo er það kyrrðin og friðurinn sem hægt er að finna nánast hvar sem er á svæðinu. Þarna er örugglega gott að búa. Nánar »


Nefið hans Frosta er fundið, fannst á Dalvík

Skrifað 18. febrúar 2012 klukkan 18:52 | | Fréttir |

Snjókarlinn Frosti á Ráðhústorgi hefur tekið gleði sína á ný því nefið hans, sem hvarf á dögunum, er fundið. Ekki nóg með það því annað nef sem hvarf af honum fyrr í vikunni fannst einnig og hafði því verið dröslað til Dalvíkur. Árvökull íbúi í miðbænum á Akureyri fann nýja nefið á bílaplani fyrir utan íbúð sína, kippti því inn í forstofu og hafði samband við Akureyrarstofu þegar hann sá lýst eftir nefinu á vefmiðlum.

Þeim sem hafa lagt vinnu í að búa til snjókarlinn Frosta finnst afar hvimleitt að hann fái ekki að vera í friði.  Frosti fær nef í andlitið eftir helgina og er fólk vinsamlegast beðið að sýna ofurlítinn þroska og sjá það í framvegis í friði.


Sjáið hvernig varð Frosti til

Skrifað 18. febrúar 2012 klukkan 11:07 | | Fréttir |

Sjáið skemmtilegt myndband sem sýnir hvernig Frosti, snjókarlinn á Ráðhústorginu varð til. ,,Myndataka hófst ca 10:30 þann 8 febrúar 2012 og lauk daginn eftir, um kl. 18. Það vantar 1,5 klst á milli kl. 7:30 og 9 þann 9 feb, þar sem batteríið kláraðist. Smá hreyfing kemur á vélina þegar pakka þurfti henni í plast v/rigningar" segir í texta við myndbandið frá þeim sem það gerðu. Nánar »


Snjókarlinn á Ráðhústorgi vill fá nefið sitt aftur!

Skrifað 17. febrúar 2012 klukkan 11:49 | | Fréttir |

Það er orðið ákveðin hefð fyrir því í febrúarmánuði að feitur og fallegur snjókarl komi sér makindalega fyrir á Ráðhústorgi á Akureyri og gleðji jafnt unga sem aldna, jafn bæjarbúa sem gesti sem sækja bæinn heim.  Snjókarlinn, sem heitir Frosti, vill gjarnan skarta sínu fegursta fyrir þá sem koma að sjá hann en nú ber svo við að nefinu hans hefur verið stolið og er þetta í annað sinn í þessari viku sem einhver eða einhverjir sjá sig knúna til að ræna hann þessum líkamshluta.  Nánar »