Nýlega kom upp dæmi á Akureyri þar sem kona þurfti að ná sambandi við lögreglu, en þegar komið var á lögreglustöðina var hún mannlaus og aðeins miði í glugga móttökunnar þar sem fólki var bent á að hringja í 112 ef það þyrfti á aðstoð að halda. Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Akureyri, segir í samtali við Akureyri.net að hann telji að „stöðin sé vel mönnuð en það getur alveg komið upp að við séum allir úti, það þarf svo lítið til.“
Hann segir að í nútímasamfélagi séu 90% landsmanna með síma á sér öllum stundum og ættu því að geta hringt í 112 ef eitthvað bjátar á. „Auðvitað veit ég að það gæti einhver komið hérna inn símalaus, en ef hann væri nú í miklum vandræðum þá gæti hann labbað hérna í næsta hús og fengið að hringja í lögregluna”, segir Ólafur. Hann telur samt sem áður að þjónustustig Lögreglunnar sé mjög hátt og jafnvel hærra en tíðkast í nágrannalöndum okkar.
Hann segir að uppi hafi verið hugmyndir um að setja síma í anddyri afgreiðslunnar sem væri beintengdur við Lögregluna sem fólk gæti nýtt sér í neyðarástandi, en sagði að slíkt yrði að öllum líkindum eyðilagt fljótlega, líkt og gert var við alla þá almenningssíma sem settir voru upp á Akureyri á sínum tíma.
Nokkur niðurskurður hefur verið hjá Lögreglunni undanfarið og ekki hefur verið hægt að ráða í þær stöður sem losna og hefur lögregluþjónum því fækkað á Akureyri. Sameining lögregluembætta er líkleg á næstunni og munu þá Húsavík, Akureyri, Sauðárkrókur og húnavatnssýsla sameinast í eitt lögregluembætti. Ólafur telur að sameiningin muni hafa í för með sér samlegðaráhrif sem séu öllum til góðs.
Ólafur segist vera ánægður með Lögregluna í dag en auðvitað væri gott að vera með meiri mannskap. Ólafur hefur starfað sem lögregluþjónn í 46 ár en hann mun láta af störfum í næsta mánuði eftir farsælan feril.







