Fréttir eftir þennnan höfund

Fjölmenni og hátíðarstemning á þjóðfundi

Skrifað 14. nóvember 2009 klukkan 11:49 | | Fréttir |

Þórgnýr Dýrfjörð, forstöðumaður Akureyrarstofu, er einn hópstjóra á fundinum.Rétt um 1500 manns sitja nú þjóðfund í Laugardalshöll í Reykjavík, en fundurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Þar er samankominn þverskurður þjóðarinnar, valinn af handahófi úr þjóðskrá, til þess að móta framtíðarsýn, byggða á skýrum sameiginlegum grunngildum. “Nú verðum við að hætta að hugsa í flokkum og bæjarfélögum. Þetta eru gildin okkar sem við erum að velja og fólkið kemur allsstaðar að af landinu. Hér drögum við okkur ekki í dilka, heldur vinnum saman sem ein þjóð, óháð því hvort við komum af höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni.” segir Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, lýðheilsufræðingur, sem er einn af maurunum sem gefa vinnu sína í þágu fundarins.

Akureyringar eiga eins og aðrir sína fulltrúa á þjóðfundinum. Blaðamaður akureyri.net er staddur í fjölmiðlamiðstöð fundarins og hefur rekist á fjölmarga norðanmenn, bæði almenna fundarmenn, hópstjóra og sjálfboðaliða. Sunna Valgerðardóttir er ein þeirra. Hún segir jákvæðni og samstöðu einkenna fundinn. “Það er líka ekki sjálfgefið að fólk nenni að vakna klukkan níu á morgnana og jafnvel fara yfir hálft landið, en hér virðast það ekki skipta máli.”

Blaðamaður mun fylgjast með framvindu fundarins í dag, en niðurstöður í rauntíma ásamt beinni útsendingu af fundinum má nálgast á vefslóðinni thjodfundur.is. Einnig má nálgast myndir á Flickr síðu fundarins og myndskeið á Youtube.


Stúlkan fundin

Skrifað 14. nóvember 2009 klukkan 01:32 | | Fréttir |

Stúlkan sem lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýstu eftir fyrr í kvöld, er komin fram á Akureyri, heil á húfi. Lögreglan þakkar liðsinnið.


Lögreglan lýsir eftir stúlku

Skrifað 13. nóvember 2009 klukkan 21:09 | | Fréttir |

Þeir sem geta gefið upplýsingar um þessa stúlku eru beðnir um að hafa samband við Lögregluna á Akureyri.

Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa eftir Emilíönu Andrésardóttur, sem fór að heiman frá sér í gærkvöldi, 12. nóvember. Eftir það hefur ekkert til hennar spurst.

Emilíana er 13 ára. Hún er um 160 cm há og dökkhærð. Síðast þegar vitað var, var hún klædd í svartar Puma buxur, svarta hettupeysu, í svarta skó með bleikum reimum og bleikum röndum.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Emilíönu eða vita hvar hún er stödd eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7705.


Fimm milljónir til menningarverkefna

Skrifað 12. október 2009 klukkan 12:00 | | Fréttir |

Menningarráð EyþingsMenningarráð Eyþings úthlutaði á mánudaginn 12. október fimm milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í Grenivíkurskóla. Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga í Eyþing um menningarmál.

Ávörp fluttu Björn Ingimarsson formaður Menningarráðs Eyþings og Karítas H. Gunnarsdóttir skrifstofustjóri menningarmála í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Auk þeirra voru viðstaddir styrkþegar menningarráðs, sveitarstjórnarmenn og gestir.

Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhver hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningaleg sérkenni svæðisins. Áherslur við úthlutun þessa árs eru meðal annars verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna, verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga, verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista og verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista.


Leikfélagið frumsýnir Lilju

Skrifað 07. október 2009 klukkan 20:54 | | Fréttir, Menning |

Þráinn Karlsson og Jana María Guðmundsdóttir í hlutverkum sínum í Lilju.Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Rýminu á föstudagskvöld leikritið Lilju eftir Jón Gunnar Þórðarson, sem er lauslega byggt á myndinni Lilya 4ever eftir sænska leikstjórann Lukas Moodyson. Sagan af Lilju er byggð á sönnum atburðum.

Lilja er 16 ára stúlka sem býr í gömlu Sovétríkjunum. Móðir hennar yfirgefur hana og flytur til Bandaríkjanna. Lilja býr til sitt eigið heimili með vinkonu sinni Natösju og 12 ára gömlum dreng, Volodja. Öll dreymir þau um betra líf í ”Vestrinu”. Er draumalífið fegurðin ein, eða er draumurinn helvíti á jörð?

Jón Gunnar vann leikritið meðan hann var við nám í Drama Centre í London. Lilja var frumsýnd í The Contact Theatre í Manchester 2008 í leikstjórn Jóns Gunnars. Sýningin fékk mjög góða gagnrýni og m.a. 5 stjörnur í Manchester Evening News.

Jón Gunnar leikstýrir jafnframt uppsetningu leikfélagsins að þessu sinni, en leikarar eru Jana María Guðmundsdóttir, María Þórðardóttir, Þráinn Karlsson, Atli Þór Albertsson, Ólafur Ingi Sigurðsson og Hjalti Rúnar Jónsson.


Aðalheiður S. Eysteinsdóttir opnar í Kunstraum Wohnraum

Skrifað 29. september 2009 klukkan 14:41 | | Viðburðir |

Sunnudaginn 4. október 2009 klukkan 11-13 opnar Aðalheiður S. Eysteinsdóttir sýninguna “Réttardagur 50 sýninga röð” í Kunstraum Wohnraum á Akureyri.

Sýningin er svipmynd af fjölskyldu, sláturgerð og vangaveltur um líðandi stund.

Fyrir rúmu ári lagði Aðalheiður af stað með verkefni sem nefnist “Réttardagur 50 sýninga röð”. Settar verða upp 50 ólíkar sýningar víða um heim, á tímabilinu júní 2008 til júní 2013. Sýningarnar fjalla allar á einn eða annan hátt um þá menningu sem skapast um og frá sauðkindinni.

Næstu sýningar verða í Stuttgart, London, Aðventa í Freyjulundi og Berlín.

Myndir af verkum Aðalheiðar og upplýsingar eru á síðunni www.freyjulundur.is

Nánari upplýsingar veitir Aðalheiður í síma 865 5091 og í adalheidur@freyjulundur.is

Kunstraum Wohnraum hefur verið starfrækt frá árinu 1994, fyrst í Hannover og nú á Akureyri. Það er til húsa á heimili Hlyns Hallssonar og Kristínar Kjartansdóttur í Ásabyggð 2. Sýning Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur stendur til 6. desember 2009 og er opin eftir samkomulagi og hægt er að hringja í síma 462 3744.

Nánari upplýsingar um Kunstraum Wohnraum er að finna á: http://www.hallsson.de/projects/kunstraum_wohnraum/kunstraum_wohnraum.html


Málstofa í viðskiptafræði

Skrifað 29. september 2009 klukkan 14:39 | | Viðburðir |

Föstudaginn 2. október flytur Dr. Hans Kristján Guðmundsson erindi á málstofu í viðskiptafræði undir heitinu: Fjárfestingar í rannsóknum og þróunarstarfi – hverju skila þær? Fyrirlesturinn hefst kl. 12:10 í stofu R311 á Borgum.


Bryndís Kondrup opnar á Karólínu

Skrifað 29. september 2009 klukkan 14:38 | | Viðburðir |

Bryndís Kondrup opnar sýninguna “Staðsetningar” á Café Karólínu laugardaginn 3. október klukkan 15.

Sýningin Staðsetningar samanstendur af málverkum, landakortum og trjágreinum.
Þetta eru hugleiðingar um staði og staðsetningar, hvar erum við stödd í tíma og rúmi eða hvar vildum við vera stödd?

Bryndís Kondrup er menntuð við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Skolen for Brugskunst og myndlistadeild Dansk Lærerhöjskole í Kaupmannahöfn, listfræði við Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
Bryndís hefur haldið hátt á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis.


Leikmannasýning og aðalfundur handboltafélagsins á miðvikudag

Skrifað 28. september 2009 klukkan 16:48 | | Fréttir, Íþróttir |

Frá leikmannakynningu Handboltafélagsins í fyrra.Næstkomandi miðvikudagskvöld verður haldinn aðalfundur Handboltafélags Akureyrar og strax í kjölfarið hefst árleg leikmannakynning.

Aðalfundurinn hefst klukkan 20:00 og fer fram í sal veitingahússins Greifans á efri hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Klukkan 21:00 hefst síðan á sama stað hin árlega leikmannakynning. Allir stuðningsmenn Akureyrar Handboltafélags hjartanlega velkomnir. Í boði verða léttar veitingar.


96.000 áhorfendur hjá LA í fyrra

Skrifað 02. september 2009 klukkan 14:38 | | Fréttir, Menning |
Úr sýningunni "Við borgum ekki, við borgum ekki" sem tekin verður til sýninga hjá LA í haust.

Mikil eftirvænting ríkir nú hjá starfsmönnum Leikfélags Akureyrar, enda leikárið í þann mund að hefjast. Í fréttatilkynningu frá leikfélaginu kemur fram að 96.000 gestir sáu sýningar félagsins í fyrra, sem er meira en helmingi fleiri gestir en árin á undan. Þetta góða gengi gefur okkur byr undir báða vængi og á morgun, fimmtudaginn 3. september hefst sala áskriftakorta. Miðaverð hefur haldist óbreytt síðustu þrjú ár.

Fyrsta frumsýning ársins er verkið Lilja, í leikstjórn Jóns Gunnars Þórðarsonar, en Lilja verður frumsýnd þann 9. október. Hinn sígildi farsi Dario Fo, Við borgum ekki, við borgum ekki, verður sýndur á Akureyri 18. sept, og viku síður einleikur Jóns Atla Jónassonar, Djúpið. Dagskrá leikársins og nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu LA, leikfelag.is. Einnig bendum við á viðtal sem Akureyri.net átti við Maríu Sigurðardóttur, leikhússtjóra í sumar, þar sem hún skýrir frá viðfangsefnum leikársins.


Aflþynnur teknar að streyma frá Akureyri

Skrifað 02. september 2009 klukkan 11:19 | | Fréttir |

Aflþynnuverksmiðja Becromal á Krossanes.Aflþynnuverksmiðja Becromal hóf starfsemi sína föstudaginn 21. ágúst, á Krossanesi. Undirbúningur hefur gengið vel, en rétt tvö ár eru liðin frá því að raforkusamningur var undirritaður. Nú hafa tvær vélar verið gangsettar og fyrstu vörurnar runnið út, en alls verða 64 vélasamstæður í gangi þegar framleiðslan kemst á flug. Um 20 vélasamstæður verða komnar í gang um áramót, en líklega mun taka um ár að koma framleiðslu á fullt á öllum vélasamstæðum.

Verksmiðjan er sú lang stærsta sinnar tegundar í Evrópu, og er fyrsta græna stóriðjan á Íslandi. Engin mengun fylgir verksmiðjunni og engin spilliefni. Eina losunin frá verksmiðjunni er sjór sem er endurnýttur til að kæla vélarnar.

Heildarfjöldi starfsmanna í verksmiðjunni er um 90 en þegar hafa 30 manns tekið til starfa. Mikill meirihluti þeirra verða Íslendingar. Heildarfjöldi starfa þegar allt verður komið í fullan gang – ásamt afleiddum störfum – er talinn verða nærri þrjú hundruð.


Akureyrarvaka sett í kvöld

Skrifað 28. ágúst 2009 klukkan 16:35 | | Fréttir, Menning |
Anna Richard á flugi á Akureyrarvöku í fyrra.

Hin árlega Akureyrarvaka verður sett í Lystigarðinum klukkan 20.00 í kvöld og nær hámarki annað kvöld, með glæsilegu lokaatriði. Dagskráin á morgun hefst á skógargöngu um Eyrina með Skógræktarfélagi Eyfirðinga sem lýkur með ketilkaffi á Eiðsvöllum. Fleiri göngur verða á Akureyrarvöku því gengið verður á milli verka á sýningunni Freyjumyndir sem er samsýning fjölmargra listamanna og sýningin á víð og dreif um Akureyri. Einnig er verið að vígja nýjan göngustíg í Naustaborgum og hver veit nema ketilkaffi verði þar á boðstólum.

Það verður nóg um að vera á Akureyrarvökunni. Í fjósinu í Galtalæk verður söngur og súkkulaði, í Samkomuhúsinu verða frumfluttar drama og grínóperur, í Húsinu við Rósenborg verða tónleikar með hljómsveitinni Nursing á Semi, í portinu á bak við ljósmyndastofu Páls verða Buxnaskjónar, Gruesome Glory og Völva. Á Græna hattinum mun hljómsveit Ingu Eydal spila öll akureysku lögin, í Sjallanum Bravóbítlar og Comet, í Akureyrarkirkju verður Orkustöðin, miðnætur tónleikar í Populus Tremula, Kristján Edelstein á Strikinu og að lokum verða í Gilinu Úti-Stórtónleikar Veitingastaðarins RUB 23 um kvöldið með þeim Sick bird, Manhattan, Hundi í óskilum og Hvanndalsbræðrum.

Nánar »


Pósturinn flytur í dag

Skrifað 28. ágúst 2009 klukkan 09:12 | | Fréttir |
Nýja pósthúsið í Strandgötu.

Pósthúsið sem hefur verið til húsa að Skipagötu 10 flytur föstudaginn 28.ágúst í nýtt húsnæði, í Strandgötu 3, Akureyri. Á nýjum stað er aukið til muna aðgengi og þjónusta við viðskiptavini sem og aðstaða starfsfólks.

Í Skipagötunni og í Hafnarstrætinu hafa verið póstafgreiðslur allt frá árinu 1944. Eftir um 65 ár á sama staðnum flyst pósthúsið í nýtt og glæsilegt húsnæði í Strandgötu 3, Akureyri og er fyrsti starfsdagur á nýjum stað föstudagurinn 28.ágúst.

Ný afgreiðsla þjónar viðskiptavinum mun betur m.t.t. aðgengis og er aðstaða starfsfólks betri, sem og að móttaka og afhending stærri sendinga er mun aðgengilegri.

Í tilefni opnunar er gestum og gangandi boðið í kaffi og kökur á föstudag og laugardag um leið og tilvalið er að kíkja á úrvalið í nýja pósthúsinu. Opið er á laugardaginn frá kl. 10-14, annars er opið alla virka daga frá kl. 9-18.


Stórtónleikar í Gilinu í boði RUB23

Skrifað 27. ágúst 2009 klukkan 19:32 | | Viðburðir |

Stórtónleikar í Listagilinu fyrir framan RUB23 á Akureyrarvöku laugardagskvöldið 29. ágúst, tónleikarnir hefjast klukkan 20.
Fram koma Manhattan ásamt Rúnari Eff, Hundur í Óskilum, Sickbird og síðast en ekki síst Hvanndalsbræður :)
Aðgangur er ókeypis.
Öl á 500 kall


Vel mannaðir grunnskólar á Akureyri

Skrifað 27. ágúst 2009 klukkan 18:10 | | Fréttir, Grunnskólar |
Naustaskóli á Akureyri. Mynd/Hörður Geirsson.

Vel hefur gengið að manna grunnskólana á Akureyri fyrir veturinn. Í fréttablaðinu Skóla akur sem kom út í dag segir að ekki hafi verið óalgengt að sex umsóknir bærust um hverja stöðu, og er hlutfall fagmenntaðra starfsmanna nálægt 100 prósentum.

Nú á mánudaginn hófu 2.586 nemendur skólastarf í grunnskólum bæjarins. Þar af eru 264 nemendur í fyrsta bekk að stíga sín fyrstu skref á skólabekk.

Ekki hefur þurft að fækka starfsmönnum í skólum bæjarins, þrátt fyrir efnahagsástandið. Stöðugildafjöldi starfsmanna helst óbreyttur, en um 400 starfsmenn í 378 stöðugildum starfa í grunnskólunum. Þó hefur þurft að grípa til margvíslegra aðgerða til að lækka rekstrarkostnað skólanna. Þrengra er um aðföng en áður og einnig hefur þurft að hætta ýmsum hliðarverkefnum. Sem dæmi má nefna að frístundir skólanna munu loka klukkan 16.15 í vetur, en ekki 17.15 eins og áður var.

Mynd:
Naustaskóli á Akureyri (Hörður Geirsson)