Skrifað 12. janúar 2010 klukkan 04:58 | Ingimar Björn | Fréttir, Stjórnmál |
Framboðsfrestur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri rann í gær, mánudaginn 11. janúar. Alls gáfu þrettán kost á sér, þar á meðal Sigrún Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarráðs og Elín Margrét Hallgrímsdóttir, bæjarfulltrúi. Prófkjörið fer fram þann 13. febrúar næstkomandi. Eftirtaldir bjóða sig fram, og eru þeir listaðir í stafrófsröð:
Anna Guðný Guðmundsdóttir iðjuþjálfi og háskólanemi
Björn Ingimarsson hagfræðingur
Elín Margrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri og bæjarfulltrúi
Huld S. Ringsted verslunarrekandi
Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari
Kristinn Frímann Árnason bústjóri
Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur
Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir
Ragnar Sigurðsson laganemi og formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson verslunarmaður
Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi
Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri
Skrifað 08. janúar 2010 klukkan 15:59 | Ingimar Björn | Fréttir |
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í kvöld gamanleikinn 39 þrep, eftir Patrick Barlow, sem byggður er á hinni þekktu kvikmynd Alfred Hitchcock, eftir samnefndri skáldsögu John Buchan. Þar takast fjórir leikarar á við 139 hlutverk, í hraðri og spennandi atburðarrás.
Leikararnir eru þau Atli Þór Albertsson, Björn Ingi Hilmarsson, Jóhann G. Jóhannson og Þrúður Vilhjálmsdóttir, en það er leikhússtýran María Sigurðardóttir sem leikstýrir. Hún segist spennt fyrir kvöldinu. “Það var fullt hús á prufunni í gær og það var þvílík gleði. Ég er bara mjög sátt og hlakka til að frumsýna í kvöld.”
Í verkinu segir frá hinum dekraða glaumgosa Richard Hannay, sem er vanur ljúfu lífi bresku yfirstéttarinnar. Hann sogast skyndilega inn í æsispennandi atburðarás þar sem við sögu koma morð, svikulir leyniþjónustumenn, brjálaðir prófessorar, Skotar og vitaskuld íðilfagrar konur.”
Sýningin er flókin, og skiptingar margar, en eftir þrotlausar æfingar er allt orðið klárt fyrir kvöldið. Að sögn Maríu eru fjórir leikarar á sviðinu, en fimmti leikarinn sé ekki síður áberandi, þó ekki sjáist hann mikið. “Fimmti leikarinn í sýningunni er eiginlega Gunnar Sigurbjörnsson, hljóðmaður. Hljóðmyndin í sýningunni er gríðarlega mikil og Gunnar á heiðurinn af henni. Það má því segja að hljóðmyndin sé fimmti leikarinn í sýningunni.”
39 þrep verða frumsýnd í kvöld eins og áður sagði, en næstu sýningar verða 9, 10, 14. og 15. janúar. Miða má nálgast á heimasíðu Leikfélagsins, leikfelag.is, eða í síma 4600-200.
Skrifað 08. janúar 2010 klukkan 15:27 | Ingimar Björn | Fréttir |
Valdís Anna Jónsdóttir hefur gefið kost á sér í 3.- 5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri sem fer fram dagana 29. – 30. janúar næstkomandi.
Valdís Anna hefur verið virkur félagi í Samfylkingunni frá árinu 2005 og hefur þar gegnt mörgum trúnaðarstörfum. Hún var formaður Sölku, félags ungra jafnaðarmanna á Akureyri á árunum 2006 til 2008 auk þess sem hún var varaformaður Ungra Jafnaðarmanna á landsvísu árin 2006 og 2007. Þá hefur hún einnig verið varamaður í íþróttaráði og samfélags- og mannréttindaráði Akureyrarbæjar.
Helstu baráttumál Valdísar snúa að ungu fólki í því árferði sem í dag er; standa vörð um Háskólann á Akureyri, skapa atvinnutækifæri á Akureyri til að halda því efnilega fólki sem hér er, að sveitarfélagið bjóði upp á þjónustu fyrir barnafólk á viðráðanlegu verði og að kjör þeirra sem minna mega sín verði ekki skert frekar.
Valdís Anna er þjónustufulltrúi við Landsbankann á Akureyri. Hún er í sambúð með Ásgeiri Friðrikssyni smiði og eiga þau soninn Jón Friðrik.
Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 18:39 | Ingimar Björn | Fréttir, Stjórnmál |
Það styttist í prófkjör stjórnmálaflokkana fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en prófkjör Samfylkingarinnar fer fram 30. janúar næstkomandi. Verður það rafrænt og opið. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, tilkynnti í dag að hann ætli að gefa kost á sér í 1. sæti á lista flokksins. Þá hefur Jón Ingi Cæsarsson, formaður Samfylkingarinnar á Akureyri og varabæjarfulltrúi, gefið kost á sér í 3. til 5. sæti. Aðrir hafa ekki opinberað framboð. Kosið verður um fyrstu fimm sætin, en sérstök uppstillinganefnd mun raða upp í þau sæti sem eftir standa.
Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 17:01 | Ingimar Björn | Fréttir |
Norðurorka hefur fyrir milligöngu Saga Capital Fjárfestingarbanka gert samning um sölu á 32% hlut sínum í hlutafélaginu Þeistareykjum ehf. til Landsvirkjunar.
Eftir kaupin á Landsvirkjun 64% hlut í félaginu en aðrir hluthafar eru Orkuveita Húsavíkur og Þingeyjarsveit.
Fyrir hlutinn eru greiddar 4,5 milljónir dollara að aflokinni áreiðanleikakönnun og 11 milljónir dollara til viðbótar þegar orkuvinnsla hefst á umráðasvæði Þeistareykja, þó ekki fyrr en að tíu árum liðnum. Það var fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital sem hafði milligöngu um viðskiptin sem ráðgjafi og fulltrúi Norðurorku.
Þeistareykir hafa frá árinu 2001 staðið að rannsóknum á möguleikum jarðhitasvæðisins að Þeistareykjum til jarðhitanýtingar. Hefur félagið fjárfest verulega í því skyni. Boraðar hafa verið 6 djúpar rannsóknarholur frá þremur borteigum á austanverðu svæðinu með góðum árangri, en samtals afkasta holurnar gufu sem jafngildir um 45 MW raforkuframleiðslu. Vísbendingar eru um að þar sé veruleg framleiðslugeta til viðbótar enda er jarðhitasvæðið á Þeistareykjum talið vera eitt af stærri jarðhitakerfum Íslands.
Skrifað 14. desember 2009 klukkan 11:17 | Ingimar Björn | Fréttir |
Helgin var annasöm hjá Slökkviliði Akureyrar, en alls var liðið kallað fimmtán sinnum til starfa um helgina.
Þrettán sinnum voru sjúkrabílar kallaðir til, þar af í sjö almenna flutninga en inn á milli komu upp sex neyðarflutningar. F-1 sjúkraflug kom upp á laugardagsmorgun og var sá aðili fluttur til Reykjavíkur. Dælubíll liðsins var kallaður út um klukkan hálf tvö aðfararnótt sunnudags vegna mikils vatnsleka í sumarbústað, en á meðan því var sinnt komu upp tveir neyðarflutningar. Loks var Slökkvilið Akureyrar kallað út vegna umferðarslyss í Fnjóskadal á sjötta tímannum í gær. Dælubíll með björgunarklippur ásamt þremur sjúkrabílum voru sendir á staðinn. Þaðan voru þrír fluttir á slysadeild FSA.
Skrifað 18. nóvember 2009 klukkan 18:51 | Ingimar Björn | Fréttir |
Ákveðið hefur verið að sameina útsendingar svæðisstöðva Ríkisútvarpsins á Norðurlandi og Austurlandi. Nýr frétta- og dægurmálaþáttur hefur göngu sína þriðjudaginn 24. nóvember, sendur út á svæðinu frá Hrútafirði til Hornafjarðar. Útsendingin lengist frá því sem nú er og verður frá klukkan 17.20 til 18.00, mánudaga til föstudaga. Það þýðir að nú bætast mánudagar við svæðisútsendingar á Austurlandi.
“Á Akureyri og Egilsstöðum starfar öflugur hópur af reyndu fólki, fimm fréttamenn, auk tæknimanna og svæðisstjóra. Með sameiningu eru lagðir saman þessir kraftar og um leið næst fram betri nýting á mannskap og meiri yfirferð á svæðinu öllu. Þetta gefur um leið meira svigrúm til ítarlegri fréttaumfjöllunar, auk þess sem sameining eykur möguleikann á að þau svæði sem liggja fjærst svæðisstöðvunum tveimur fái aukna athygli.” segir í fréttatilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Minnstu mátti muna að svæðisbundnar fréttaútsendingar leggðust af seint á síðasta ári vegna niðurskurðar. Eftir kröftug mótmæli var fallið frá þeirri ákvörðun.
Jafnhliða sameiningu svæðisútsendinga á Norður- og Austurlandi hefur göngu sína nýr fréttatími klukkan 11 á morgnana á Rás 2. Fréttirnar verða sagðar frá Akureyri og lögð áhersla á fréttir frá öllum svæðisstöðvum Ríkisútvarpsins og fréttariturum um land allt. Þessum nýja fréttatíma er ætlað að undirstrika mikilvægi fréttaöflunar á landsbyggðinni, en er um leið skref í þá átt að sérvinna fréttir fyrir Rás 2.
Skrifað 16. nóvember 2009 klukkan 16:06 | Ingimar Björn | Fréttir |
Í morgun hófst snjóframleiðsla á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar og verður hún keyrð áfram af fullum krafti næstu daga og vikur. Eftir fádæma milt veðurfar fram eftir hausti eru nú loksins komnar aðstæður sem henta til framleiðslunnar en frost þarf að vera að lágmarki 4 gráður.
Veðurspáin framundan lofar góðu og segist Guðmundur Karl Jónsson, forstöðumaður skíðasvæðisins, þess fullviss að nú loksins sé kominn vetur. Stefnt er að því að opna skíðasvæðið um næstu mánaðamót og standa vonir til að aðsókn verði engu minni núna en hún var í fyrra. Þá komu 74.000 gestir í Hlíðarfjall og var opið í 163 daga frá því í byrjun nóvember fram í maí.
Skrifað 15. nóvember 2009 klukkan 00:19 | Ingimar Björn | Fréttir |
Lögreglan á Akureyri leitar að vitnum að árekstri sem varð þann 11. nóvember síðastliðinn. Áreksturinn varð á Þórunnarstræti við Gléráreyrar (sunnan Glerártorgs) um klukkan 17.40. en um var að ræða hvíta Kia Sportage bifreið og bláaToyota Hiace sendibifreið.
Þeir sem kynnu að hafa verið vitni að árekstrinum eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7700.
Skrifað 14. nóvember 2009 klukkan 11:49 | Ingimar Björn | Fréttir |
Rétt um 1500 manns sitja nú þjóðfund í Laugardalshöll í Reykjavík, en fundurinn er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum. Þar er samankominn þverskurður þjóðarinnar, valinn af handahófi úr þjóðskrá, til þess að móta framtíðarsýn, byggða á skýrum sameiginlegum grunngildum. “Nú verðum við að hætta að hugsa í flokkum og bæjarfélögum. Þetta eru gildin okkar sem við erum að velja og fólkið kemur allsstaðar að af landinu. Hér drögum við okkur ekki í dilka, heldur vinnum saman sem ein þjóð, óháð því hvort við komum af höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni.” segir Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, lýðheilsufræðingur, sem er einn af maurunum sem gefa vinnu sína í þágu fundarins.
Akureyringar eiga eins og aðrir sína fulltrúa á þjóðfundinum. Blaðamaður akureyri.net er staddur í fjölmiðlamiðstöð fundarins og hefur rekist á fjölmarga norðanmenn, bæði almenna fundarmenn, hópstjóra og sjálfboðaliða. Sunna Valgerðardóttir er ein þeirra. Hún segir jákvæðni og samstöðu einkenna fundinn. “Það er líka ekki sjálfgefið að fólk nenni að vakna klukkan níu á morgnana og jafnvel fara yfir hálft landið, en hér virðast það ekki skipta máli.”
Blaðamaður mun fylgjast með framvindu fundarins í dag, en niðurstöður í rauntíma ásamt beinni útsendingu af fundinum má nálgast á vefslóðinni thjodfundur.is. Einnig má nálgast myndir á Flickr síðu fundarins og myndskeið á Youtube.
Skrifað 14. nóvember 2009 klukkan 01:32 | Ingimar Björn | Fréttir | Stúlkan sem lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýstu eftir fyrr í kvöld, er komin fram á Akureyri, heil á húfi. Lögreglan þakkar liðsinnið.
Skrifað 13. nóvember 2009 klukkan 21:09 | Ingimar Björn | Fréttir | 
Lögreglan á Akureyri og Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar lýsa eftir Emilíönu Andrésardóttur, sem fór að heiman frá sér í gærkvöldi, 12. nóvember. Eftir það hefur ekkert til hennar spurst.
Emilíana er 13 ára. Hún er um 160 cm há og dökkhærð. Síðast þegar vitað var, var hún klædd í svartar Puma buxur, svarta hettupeysu, í svarta skó með bleikum reimum og bleikum röndum.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Emilíönu eða vita hvar hún er stödd eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akureyri í síma 464 7705.
Skrifað 12. október 2009 klukkan 12:00 | Ingimar Björn | Fréttir |
Menningarráð Eyþings úthlutaði á mánudaginn 12. október fimm milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í Grenivíkurskóla. Þetta er í fimmta sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga í Eyþing um menningarmál.
Ávörp fluttu Björn Ingimarsson formaður Menningarráðs Eyþings og Karítas H. Gunnarsdóttir skrifstofustjóri menningarmála í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Auk þeirra voru viðstaddir styrkþegar menningarráðs, sveitarstjórnarmenn og gestir.
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhver hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningaleg sérkenni svæðisins. Áherslur við úthlutun þessa árs eru meðal annars verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna, verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga, verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista og verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista.
Skrifað 07. október 2009 klukkan 20:54 | Ingimar Björn | Fréttir, Menning |
Leikfélag Akureyrar frumsýnir í Rýminu á föstudagskvöld leikritið Lilju eftir Jón Gunnar Þórðarson, sem er lauslega byggt á myndinni Lilya 4ever eftir sænska leikstjórann Lukas Moodyson. Sagan af Lilju er byggð á sönnum atburðum.
Lilja er 16 ára stúlka sem býr í gömlu Sovétríkjunum. Móðir hennar yfirgefur hana og flytur til Bandaríkjanna. Lilja býr til sitt eigið heimili með vinkonu sinni Natösju og 12 ára gömlum dreng, Volodja. Öll dreymir þau um betra líf í ”Vestrinu”. Er draumalífið fegurðin ein, eða er draumurinn helvíti á jörð?
Jón Gunnar vann leikritið meðan hann var við nám í Drama Centre í London. Lilja var frumsýnd í The Contact Theatre í Manchester 2008 í leikstjórn Jóns Gunnars. Sýningin fékk mjög góða gagnrýni og m.a. 5 stjörnur í Manchester Evening News.
Jón Gunnar leikstýrir jafnframt uppsetningu leikfélagsins að þessu sinni, en leikarar eru Jana María Guðmundsdóttir, María Þórðardóttir, Þráinn Karlsson, Atli Þór Albertsson, Ólafur Ingi Sigurðsson og Hjalti Rúnar Jónsson.
Skrifað 28. september 2009 klukkan 16:48 | Ingimar Björn | Fréttir, Íþróttir |
Næstkomandi miðvikudagskvöld verður haldinn aðalfundur Handboltafélags Akureyrar og strax í kjölfarið hefst árleg leikmannakynning.
Aðalfundurinn hefst klukkan 20:00 og fer fram í sal veitingahússins Greifans á efri hæð. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Klukkan 21:00 hefst síðan á sama stað hin árlega leikmannakynning. Allir stuðningsmenn Akureyrar Handboltafélags hjartanlega velkomnir. Í boði verða léttar veitingar.