Fréttir eftir þennnan höfund

128 íslandsmeistaratitlar til Akureyrar á árinu

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:48 | | Fréttir |

ÍslandsmeistararHin árlega úthlutun úr Afreks- og styrktarsjóði Akureyrar fer fram í hófi sem haldið verður í Íþróttahöllinni á Akureyri á morgun, þriðjudaginn 29. desember, klukkan 16.15. Þar verða afhent viðurkenningarskjöl Íþróttaráðs Akureyrar til hvers félags fyrir sig.

Árangur akureyskra íþróttamanna var góður á árinu. Samkvæmt upplýsingum sem borist hafa til stjórnar sjóðsins hafa 128 íslandsmeistaratitlar unnist á árinu og einnig voru margir Akureyringar valdir til leiks með landsliðum í hinum ýmsu íþróttagreinum. Það er von Íþróttaráðs að þessir glæsilegu afreksmenn, þjálfarar þeirra og forystumenn íþróttahreyfinga á Akureyri sjái sér fært að koma til athafnarinnar. Góðar veitingar verða fram bornar í boði Akureyrarbæjar.


Joris Rademaker í Listasafninu á Akureyri

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:41 | | Viðburðir |

Laugardaginn 16. janúar verður opnuð yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker (f. 1958) og mun Listasafnið á Akureyri af því tilefni gefa út tæplega 90 síðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril hans og list eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing.

Joris hefur verið búsettur á Akureyri síðan 1991 og verið ein helsta sprautan í menningarlífi bæjarins, rekið þar grasrótarsalinn Gallerí+ í yfir áratug ásamt konu sinni, Guðrúnu Pálínu, og sinnt myndlistarkennslu um langt árabil. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan, gjarnan lífrænan, efnivið eins og tré, pappír, tau, blek og þrykk. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni.

Sýningin stendur til 7. mars 2010.


Sjálfsmyndir í sal Myndlistarfélagsins

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:37 | | Viðburðir |

Súpan sýnir afrakstur samstarfs síns við unga sem aldna allt frá nyrstu ströndum til nafla alheimsins á fjórum farandsýningum og þar á meðal í Box-inu, sal Myndlistarfélagsins á Akureyri.

Sýningarnar eru: 1. Bragganum í Öxarfirði,Frumsýning laugard.14. nóvember kl. 13-17

2. SÍM-húsinu Hafnarstræti 16, Reykjavík, 5.-18. desember Opnun laugard. 5. desember kl. 16-18

3. Kaffistofunni Nemendagallerí Listaháskólans Hverfisgötu 42, Reykjavík 5.-6. des. Opnun laugard. 5. Desember kl.14-16

4. Box–inu, Sal myndlistarfélagsins í Listagilinu á Akureyri 16. janúar – 6. febrúar 2010Opnun laugardaginn 16. janúar kl.14

Björg Eiríksdóttir myndlistakona/myndlistakennari VMA
Edda Þórey Kristfinnsdóttir myndlistakona Korpúlfsstöðum
Jóna Bergdal Jakobsdóttir myndlistakona/málari Eskifirði
Unnur G. Óttarsdóttir listmeðferðarfræðingur/myndlistakona
Yst Ingunn St. Svavarsdóttir sálfræðingur/fagurlista-verkakona


Helgi og Hljóðfæraleikararnir á Græna hattinum

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:31 | | Viðburðir |

Miðvikudaginn 30. desember ætla Helgi og Hljóðfæraleikararnir að telja í sína árlegu áramótatónleika sem hefjast kl. 21.00. Húsið opnað kl. 20.00 og forsala er í Eymundsson og hefst hún mánudaginn 28. desember. Miðaverð er kr.1500.


Vel á þriðja tug snjóruðningstækja að störfum

Skrifað 28. desember 2009 klukkan 11:21 | | Fréttir |

Snjóruðningstæki að störfumVel á þriðja tug snjóruðningstækja hafa verið að störfum á götum Akureyrar undanfarna daga en sjó hefur kyngt niður hér í bænum síðan á þorláksmessu og mældist sjötíu og sex sentimetra nýfallinn snjór í gærmorgun. Mikill fjöldi fólks hefur verið í bænum yfir hátíðirnar og hefur verið nokkuð erilsamt hjá lögreglu. Lögregla þurfti að loka Leiruveginum rétt austan Akureyrar á aðfangadagskvöld vegna slæmrar færðar og ofankomu, en um 10 ökumenn festu bifreiðar sínar við Leirubrúna og tók um hálftíma að losa þær af staðnum.


Jólatréskógur sprettur upp inni í Minjasafninu

Skrifað 03. desember 2009 klukkan 13:09 | | Fréttir |

JólatréJólatréskógur mun spretta upp nú um helgina í Minjasafninu á Akureyri. Íslendingar byrjuðu að skreyta heimili sín með jólatrjám á seinni hluta 19. aldar. Jólatré hafa í gegnum tíðina verið útfærð á margan hátt en yfirleitt var leitast við að hafa heimagerðu trén sem líkust grenitrjám. Bernskujólatrén, sem félagar úr Laufáshópnum hafa grafið uppúr pússi sínu eða gert eftirlíkingar af, setja jólalegan blæ á sýninguna fram til 20. desember.

Í aðventunni á safninu má sjá leikföng sem sjálfsagt hafa glatt margt barnshjartað einhver jólin fyrr á tíðum og þau bera með sér anda liðinna tíma í sýningunni Allir krakkar, allir krakkar – líf og leikir barna. Í henni má einnig sjá jólaskreytta skólastofu frá því í kringum 1950 og unglingaherbergi frá 7. áratug síðustu aldar eða kannski mætti segja herbergi krakka sem eru rétt að fylla fjórða tuginn og þeirra sem eru rétt kominn yfir á fimmtugsaldurinn. Jólaljós, jólalegar ljósmyndir og gömul jólakort ásamt fróðleik um drauma barna má auk þess sjá á Minjasafninu í aðventunni.

Nánar »


Samfylkingin boðar til opins rafræns prófkjörs

Skrifað 02. desember 2009 klukkan 22:55 | | Fréttir |

Samfylkingin á AkureyriSamfylkingin á Akureyri stillir upp lista sínum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor með opnu rafrænu prófkjöri. Þetta var ákveðið á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gærkvöldi.

Í prófkjörinu verður kosið um efstu fimm sætin á lista flokksins í kosningunum. Auk þess var á fundinum kosin uppstillingarnefnd sem ætlað er að stilla upp í sæti 6 til 22 á framboðslistanum að loknu prófkjöri.


Siggi Gunnars stefnir með Jólastjörnuna á toppinn

Skrifað 02. desember 2009 klukkan 00:39 | | Fréttir, Menning |

Siggi GunnarsÞeir sem eru ekki komnir í jólaskap ættu að heimsækja vefsíðuna Jólastjarnan.net hið snarasta, en þar sendir útvarpsmaður Akureyrar, Sigurður Þorri Gunnarsson nú út jólalög allan sólarhringinn. Siggi Gunnars hefur verið ein aðalsprautan í útvarpsstöðinni Voice á Akureyri undanfarin ár og auk þess stýrt sjónvarpsþætti á N4 undanfarna mánuði. Nú er Siggi Gunnars hins vegar búinn að draga fram jólaplöturnar og spilar allt það besta af innlendum og erlendum jólalögum jafnt dag sem nótt.

“Þetta er þriðja árið sem stöðin er í loftinu á jólastjarnan.net en hún byggir á gömlum grunni,” segir Siggi en hann er á því að þetta ár sé það stærsta í sögu stöðvarinnar. Hann hefur fengið í lið með sér fjölda fólks allstaðar að af landinu og í áhöfninni á Jólastjörnunni eru nokkrir Akureyringar, meðal annars Pétur Guðjónsson sem starfaði á árum fyrr á Hljóðbylgjunni á Akureyri og síðar á Frostrásinni og Ljósvakanum. Siggi segir Jólastjörnuna vera sér mjög kæra. “Þetta er einungis gert til að gleðja aðra og mig sjálfan og ég get hiklaust sagt að þetta er það skemmtilegasta af öllum þeim fjölmörgu verkefnum sem ég hef tekið að mér”.


Skytturnar sigruðu á Gimli Cup mót Skautafélagsins

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 14:18 | | Fréttir, Íþróttir |

SkytturnarÍ gærkvöld lauk þriðja krullumóti vetrarins hjá Krulludeild Skautafélags Akureyrar. Mótið sem nú var að ljúka heitir Gimli Cup og er þar keppt um veglegan bikar sem gefinn var af Vestur-Íslendingunum Alma og Ray Sigurdsson í Gimli í Manitóba í tilefni af opnun Skautahallarinnar árið 2000. Fyrst var keppt um bikarinn 2001 og er mótið nú því það níunda í röðinni.

Átta lið úr röðum Krulludeildar SA tóku þátt í mótinu nú og voru það Skytturnar sem stóðu uppi sem sigurvegarar, unnu sex leiki af sjö. Í öðru sæti urðu Mammútar, unnu fimm leiki, og í þriðja sæti Garpar með fjóra vinninga. Þetta er annað mótið sem Skytturnar vinna á þessu keppnistímabili en fyrr í haust varð liðið Akureyrarmeistari í krullu.

Nánar »


Stúdentar við Háskólann á Akureyri fagna fullveldi

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 12:19 | | Fréttir |

Háskólinn á AkureyriÍ dag verður venju samkvæmt haldið upp á fullveldisdaginn 1. desember í Háskólanum á Akureyri. Dagurinn hefur jafnan verið tileinkaður stúdentum enda taka þeir virkan þátt í dagskránni. Að þessu sinni hefst dagskráin á málþingi sem tileinkað er fullveldinu og ber yfirskriftina Fullveldi ríkis: jafnrétti, stjórnlög og framtíð. Að málþinginu loknu hefst hátíðardagskrá við Íslandsklukkuna þar sem Stefán B. Sigurðsson, rektor flytur ávarp og fyrrum rektor HA, Þorsteinn Gunnarsson hringir Íslandsklukkunni. Þá mun kór Glerárkirkju syngja fyrir viðstadda og svo er öllum boðið inn í matsal HA í heitt kakó og smákökur. Á bókasafninu opnar myndlistamaðurinn Brynhildur Kristinsdóttir sýninguna Minningar breytast í myndir og ljóð.

Nánar »


Trúnaðarmenn Einingar-Iðju skora á stjórnvöld að auka kvóta

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 11:51 | | Fréttir |

fiskvinnslaFélagslegir trúnaðarmenn Einingar-Iðju sem starfa í fiskvinnslu á Eyjafjarðarsvæðinu skora á stjórnvöld að auka kvóta nú þegar. Þetta kemur fram í ályktun sem fundur þeirra sendi frá sér í gær. Í ályktuninni segir að ljóst sé að mörg fyrirtæki munu loka í lengri tíma ef ekkert verður að gert og setur það störf fiskvinnslufólks í hættu.

“Óöryggi starfsfólks í undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar er ekki forsvaranleg í því ástandi sem nú er. Fundurinn hvetur til þess að sú umræða sem er í þjóðfélaginu um sjávarútvegsmál verði á faglegum nótum, ekki handahófskennd, því á bakvið útveginn er starfsfólk og þeirra lífsafkoma,” segir jafnframt í ályktuninni.


Ungir Akureyringar styðja Mæðrastyrksnefnd og Rauða krossinn

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 11:31 | | Fréttir |

Félagsmiðstöðvar á AkureyriGóðgerðavika félagsmiðstöðvanna á Akureyri hófst í gær og stendur til 5. desember. Í þessari viku láta fulltrúar félagsmiðstöðvanna gott af sér leiða á marga vegu, til dæmis munu ungmennin safna matvælum fyrir Mæðrastyrksnefndi, fötum fyrir Rauða krossinn og syngja fyrir vistmenn á Dvalarheimilinu Hlíð. Góðgerðavikan nær síðan hámarki á laugardag en þá verður jólamarkaður í Rósenborg. Þar munu krakkarnir vera með ýmsan varning til sölu og einnig selja kakó og vöfflur. Allur ágóði jólamarkaðarins rennur óskiptur til Mæðrastyrksnefndarinnar á Akureyri.


Stórleikur í Höllinni á fimmtudaginn

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 11:27 | | Fréttir, Handbolti, Íþróttir |

Dyggir stuðningsmenn AkureyrarliðsinsÁ fimmtudaginn verður einn af stórleikjum N1 deildar karla í handknattleik þegar lið Akureyrar tekur á móti Val í toppbaráttu deildarinnar. Í dag er Valur tveim stigum ofar en Akureyri og situr á toppi deildarinnar þannig að með sigri á fimmtudaginn nær Akureyri Valsmönnum í stigum.

Liðin mættust í fyrstu umferð N1 deildarinnar á heimavelli Valsmanna. Sá leikur var jafn og spennandi allt til loka. Akureyri saknaði þó Jónatans Magnússonar í leiknum en hann var meiddur og sömuleiðis missti Guðmundur Hólmar Helgason af leiknum vegna veikinda og munar um minna. Eins og áður segir var leikurinn í járnum allan tímann en á lokamínútunum gekk lukkan í lið með Valsmönnum og þeir skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins á meðan Akureyri átti nokkur skot í stangirnar.


Sveinka á Café Karólínu

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 11:21 | | Viðburðir |

Sveinka (Sveinbjörg Ásgeirsdóttir) opnar sýninguna “Á meðan ég svaf“ á Café Karólínu laugardaginn 5. desember klukkan 15. Sýningin samanstendur af draumkenndum fígúratífum vatnslita-blek myndum sem málaðar eru á ríspappír sem spilar sitt hlutverk með litunum.


Erla Hrönn setur Akureyrarmet í Færeyjum

Skrifað 01. desember 2009 klukkan 00:41 | | Fréttir |

Hildur og ErlaTvær sundkonur úr Óðni, Erla Hrönn Unnsteinsdóttir og Hildur Þórbjörg Ármannsdóttir, kepptu um helgina með landsliði Íslands í tveggja þjóða keppni Íslendinga og Færeyinga í sundi. Keppnin fór fram ytra og höfðu gestgjafarnir betur með 101 stigi gegn 79. Erla Hrönn og Hildur stóðu sig með miklum sóma eins og við var að búast og setti Erla Hrönn Akureyrarmet i 50 m baksundi, 31,51.

Þær kepptu báðar í 50 m baksundi, Erla fór á 31,51 sem fyrr segir og Hildur á 31,80. Þá keppti Hildur einnig í 50 m skriðsundi (28,71) og 100 m baksundi 1;12,94. Þá voru þær báðar í boðsundunum. Sextán keppendur voru valdir til þátttöku að afloknu Íslandsmótinu í 25 metra laug fyrir rúmri viku. Samkvæmt fréttum hefur ferðin verið afar skemmtileg í alla staði og gestrisni Færeyinga einstök, nema kannski í lauginni. Liðið er væntanlegt heim í dag, mánudag.