Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í morgun. Á þinginu verður meðal annars rætt um sameiningarkosti sveitarfélaga og leiðir stjórnmálanna til að öðlast traust almennings í landinu á ný. Ekki er víst að uppákoma sem varð við upphaf ávarps Ögmundar Jónassonar, ráðherra sveitarstjórnarmála, sé til þess fallin að auka traust á stjórnmálunum, en hann byrjaði ávarp sitt á landsþinginu á umræðu um ákæru á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. Um 30 fundargestir gengur úr salnum og sagði Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, borgarfulltrúi Sjálstæðisflokksins í Reykjavík að ummæli Ögmundar hefðu verið óviðeigandi og fólk hefði ekki viljað sitja undir þeim. Um 150 fulltrúar sitja á landsþinginu.
Fréttir eftir þennnan höfund
Hátt í 30 fundargestir gengu út af landsþingi
Skrifað 30. september 2010 klukkan 16:58 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Stjórnmál |Rannveig Kramer og Gauti Már íslandsmeistarar í fitness
Skrifað 06. apríl 2010 klukkan 15:16 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Íslandsmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna fór fram um helgina í Íþróttahöllinni á Akureyri. Fjölmennt var meðal áhorfenda og keppenda á Íslandsmótinu sem haldið var í fimmtánda skipti um Páskana í töluverðum snjóþunga. Snjókoma aðfararnótt laugardagsins, snjóflóð og ófærð settu strik í reikninginn fyrir nokkra keppendur. Allir nema tveir náðu þó að mæta til keppni þegar upp var staðið. Þetta Íslandsmót var um margt sérstakt þar sem öll þekktustu nöfnin í líkamsræktargeiranum mættust á sviði. Það stefndi því fyrirfram í spennandi úrslit.
Rannveig Kramer stóð uppi sem Íslandsmeistari í fitness kvenna, Gauti Már Rúnarsson varð Íslandsmeistari í fitness karla, Margrét Hulda Karlsdóttir varð Íslandsmeistari í módelfitness og Magnús Bess Júlíusson í vaxtarrækt. Nánar er fjallað um mótið á www.fitness.is
Skriðjöklarnir á Græna hattinum
Skrifað 01. apríl 2010 klukkan 15:19 | Örlygur Hnefill | Viðburðir |Hljómsveitin Skriðjöklarnir verður með hljómleika á Græna hattinum þann 3. apríl n.k.
Andrésar Andar leikarnir
Skrifað 01. apríl 2010 klukkan 15:18 | Örlygur Hnefill | Viðburðir |Um 800 krakkar á aldrinum 6-12 ára koma saman til þess að taka þátt í skíðmóti sem haldið hefur verið í 34 ár. Með börnunum koma gríðalega margir foreldrar.
Aprílgabb: Slökkvilið kallað að Hofi vegna vatnsleka í kjallara
Skrifað 01. apríl 2010 klukkan 14:51 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Menning |Slökkvilið Akureyrar var kallað að menningarhúsinu Hofi á Akureyri rétt fyrir klukkan 9 í morgun, vegna leka í kjallara hússins. Ekki er ljóst hvað olli lekanum, en hann átti sér stað við suðurhluta kjallarans þar sem unnið hefur verið að jarðvegsskiptum vegna raka undanfarnar vikur. Að sögn slökkviliðs varð tjón minna en við hefði mátt búast, en slökkvilið var komið á vettvang um 10 mínútum eftir að lekinn varð.
Er erfitt að meta tjónið að svo stöddu en það gæti hlaupið á fimm til tíu milljónum króna. Búið var að stöðva allan leka rétt upp úr hádegi en búist er við að dæling úr kjallaranum standi fram eftir degi. Ljóst er að tjón hefði getað orðið miklu meira ef menningarverðmæti hefðu verið komin í kjallaran og má því telja það lán í óláni að svo var ekki. Ekki er búist við að lekinn valdi töfum á opnun hússins.
Uppfærsla: Hér var að sjálfsögðu um aprílgabb að ræða. Nokkrir lögðu leið sína að húsinu til að kanna hvort þar hefði myndast síki og þökkum við þeim fyrir forvitnina. Gleðilega páska.
Lára Stefánsdóttir skipuð skólameistari við utanverðan Eyjafjörð
Skrifað 02. mars 2010 klukkan 17:30 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Menntamálaráðherra hefur skipað Láru Stefánsdóttur menntunarfræðing á Akureyri sem skólameistara nýs framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð. Stefnt er að opnun skólans í haust og hefur Lára þegar hafið störf. “Þetta er spennandi tækifæri til að búa til nýjan og skapandi skóla sem þjónar samfélaginu við Eyjafjörð,” sagði Lára í samtali við Akureyri.net í dag. Hún segir mörg verkefni framundan, enda þurfi að manna skólann af kennurum og nemendum fyrir haustið og móta námsáætlun. Lára var ráðin úr hópi níu umsækjenda.
Þriggja ára fangelsi fyrir hnífstungu í Hafnarstræti
Skrifað 02. mars 2010 klukkan 16:56 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Fimmtugur karlmaður, Hans Alfreð Kristjánsson, var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann stakk annan mann með hnífi ofarlega á brjóstkassann með þeim afleiðingum að hann hlaut þriggja sentimetra langan skurð. Árásin átti sér stað á Hafnarstræti á Akureyri í júní í fyrra. Auk fangelsisdómsins þarf maðurinn að greiða fórnarlambinu 400 þúsund krónur í miskabætur.
Hans Alfreð játaði brot sitt við yfirheyrslur en dró játninguna til baka fyrir dómi. Þá neitaði hann sakargiftum og sagði að um slysaverknað hefði verið að ræða. Dómarinn tók hins vegar undir með ákæruvaldinu og sakfelldi manninn.
Þegar Hans Alfreð framdi glæpinn var hann á reynslulaus eftir að hafa apflánað dóm fyrir morðtilraun árið 2006.
Guðmundur Baldvin leiðir lista Framsóknar
Skrifað 24. janúar 2010 klukkan 11:06 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Guðmundur Baldvin Guðmundsson hlaut 66 prósent gildra atkvæða í fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í prófkjöri flokksins í gær. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara þann 29. maí næstkomandi. Gild atkvæði voru 1.064 en auð og ógild 42.
Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju
Skrifað 22. janúar 2010 klukkan 15:56 | Örlygur Hnefill | Viðburðir |Guðsþjónusta kl. 11.00. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11.00. Umsjón Halla og Heimir. Guðsþjónusta á Kjarnalundi kl. 14.00. Guðsþjónusta á Hlíð kl. 15.00.
Þjónn í súpunni
Skrifað 22. janúar 2010 klukkan 15:40 | Örlygur Hnefill | Viðburðir |Leikfélag Akureyrar og Veitingastaðurinn Friðrik V hafa tekið upp þráðinn frá síðasta leikári og bjóða upp á 3ja rétta máltíð og “óhefðbundna þjónustu” á Friðrik V. Þjónar leika, leikarar þjóna, allir leika á gesti og gestirnir leika á als oddi. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikhússtjóri LA. Nú eru nýir ”þjónar” með í för og forvitnilegt að vita hvernig þeir reynast! Þetta er uppákoma sem byggir á spuna og stemmningu og aldrei að vita hvað gerist, því engar tvær sýningar eru eins. Matseðillinn er saminn af Friðriki V sjálfum, er hann þekktur fyrir dýrindis mat. Síðastliðinn vetur var uppselt öll kvöldin og oft var biðlisti eftir borðum. Það borgar sig því að vera snemma í því og panta borð í tíma. Verð kr. 5.900. Innifalið er leiksýning og þriggja rétta kvöldverður með víni. Miða er hægt að panta á: fridrikv@fridrikv.is og í síma 461 5775. Þjónn í súpunni kl. 18.30 á Friðriki V.
Ögrandi list og tilraunir til ritskoðunar
Skrifað 22. janúar 2010 klukkan 13:50 | Örlygur Hnefill | Fréttir, Menning |
Bandaríski fræðimaðurinn Steven C. Dubin heldur fyrirlestur um ritskoðun í list á Akureyri næstkomandi þriðjudag. Fyrirlesturinn á Akureyri er á vegum Listasafnsins á Akureyri en Dubin er hér á landi á vegum Fulbright stofnunar og námsbrautar í safnafræðum við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Dubin er prófessor í menningarstjórnun við Columbia Háskóla í New York og hefur einnig skrifað fjölda blaðagreina og bóka um umdeilda list. Hann hefur sérhæft sig í rannsóknum á sviði menningar, lista og safnafræða. Hann hefur beint sjónum sínum að ritskoðun og tjáningarfrelsi og bók hans um pólitíska list, Arresting Images: Impolitic Art and Uncivil Actions, vakti mikla athygli þegar hún kom út árið 1992.
Dubin mun í fyrirlestrinum fjalla um myndlistarmenn og sýningar sem hafa verið mjög umdeildar og leitt til kröftugra átaka á síðari hluta 20. aldar og í upphafi 21. aldar. Söfn gegna mikilvægu hlutverki í þeim átökum sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum og annars staðar í heiminum gagnvart menningu og ritskoðun sem líkt hefur við stríðsástand um yfirráð menningar. Upprunalega voru söfn álitin eins konar hof eða helgistaðir en hafa þróast í þá átt að vera lýðræðislegur og spennandi vettvangur ætlaður almenningi þar sem tekist er á um ólík sjónarmið.
Þrettándagleði Þórs við Réttarhvamm í kvöld
Skrifað 06. janúar 2010 klukkan 10:14 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Þrettándagleði Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri fer fram í kvöld klukkan 19:00 við Réttarhvamm og er hún haldin í samstarfi við Bónus og Akureyrarstofu. Það er ætíð mikið um dýrðir á Þrettándagleði Þórs sem á sér langa sögu. Álfakóngur og drottning, jólasveinar, tröll, púkar og alls kyns kynjaverur heilsa upp á gesti og kveðja jólin. Dagskráin hefst á slaginu sjö þegar kveikt verður í brennunni og stendur dagskráin í um klukkustund. Auk púka, trölla og ýmissa kynjavera mun söngvarinn Heimir Bjarni Ingimarsson mæta með gítarinn og Einar “einstaki” töframaður sýnir listir sínar. Líkt og í fyrra þá er Akureyringum og nærsveitarmönnum boðið frítt á þennan viðburð. Fólk er hvatt til þess að fjölmenna, eiga notalega stund og kveðja árið með viðeigandi hætti. Er þetta allra síðasta tækifærið til þess að hitta jólasveinanna áður en þeir halda aftur til fjalla.
Mikill mannfjöldi í bænum í nótt
Skrifað 01. janúar 2010 klukkan 14:21 | Örlygur Hnefill | Fréttir |
Mikill fjöldi fólks fagnaði nýju ári og kvaddi hið gamla í miðbæ Akureyrar og í heimahúsum víðsvegar um bæinn í nótt. Að sögn lögreglu gekk nóttin vel og var með rólegra móti. Einhver lítilsháttar slagsmál áttu sér stað en ekki komu upp alvarleg mál.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli opnaði svo í morgun og gripu ýmsir tækifærið og skelltu sér á skíði til að fagna nýju ári. Kalt er í fjallinu og logn, en skíðasvæðið er opið til klukkan 16 í dag.
Steingrímur valinn Norðlendingur ársins
Skrifað 31. desember 2009 klukkan 19:12 | Örlygur Hnefill | Fréttir |Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, var kjörinn Norðlendingur ársins 2009 í sérstakri áramótaútsendingu Ríkisútvarpsins í gær. Það voru hlustendur Útvarps Norður- og Austurlands sem kusu ráðherrann. Þrettán voru tilnefndir en Steingrímur hlaut nokkuð afgerandi kosningu.
Í öðru sæti í kjörinu var Þuríður Harpa Sigurðardóttir á Sauðárkróki, sem fór á árinu fyrst Norðurlandabúa í stofnfrumumeðferð á Indlandi vegna mænuskaða.





