Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA, afhenti í gær Sjúkrahúsinu á Akureyri (FSA) 10 milljónir króna að gjöf til kaupa á ómskoðunartæki til notkunar á myndgreiningardeild.
Tækið er af gerðinni Siemens S-2000 og er í hópi fullkomnustu og bestu ómskoðunartækja sem fáanleg eru í heiminum. Það leysir af hólmi eldra tæki sem ekki fullnægði kröfum sem gerðar eru til slíkra tækja í dag. Tækið er notað til allra almennra ómrannsókna ásamt æða- og inngripsrannsóknum.
Að sögn forstöðulæknis myndgreiningardeildar, Arnar Orra Einarssonar, gera myndgæði tækisins ásamt einfaldari og hraðari myndvinnslu, það að verkum að allar æðarannsóknir verða einfaldari og mun auðveldara er að framkvæma ástungur og önnur inngrip, sem hraða greiningu sjúkdóma og veita sjúklingum meira öryggi.
Halldór Jóhannsson segir að það sé von KEA að gjöfin komi að góðum notum því það sé mikilvægt að sjúkrahúsið sé öflugt og vel tækjum búið, en þetta sé ekki í fyrsta skipti sem félagið færi sjúkrahúsinu gjafir til kaupa á tækjabúnaði og að öllum líkindum ekki það síðasta.
Halldór Jónsson, forstjóri FSA þakkaði forsvarsmönnum KEA þann hlýhug sem félagið hefur sýnt sjúkrahúsinu með góðum gjöfum sem nýst hafa til tækjakaupa.
Mynd: Arnar Orri Einarsson kynnir nýja ómskoðunartækið. Talið lengst frá vinstri: Hannes Karlsson formaður KEA, Þorvaldur Ingvarsson framkvæmdastjóri lækninga, Halldór Jóhannsson framkvæmdastjóri KEA, Halldór Jónsson forstjóri FSA, Vignir Sveinsson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, og Ólína Torfadóttir framkvæmdastjóri lækninga.