Fréttir eftir þennnan höfund

Þungatakmarkanir víða í gildi

Skrifað 21. mars 2009 klukkan 12:11 | | Fréttir |

Vegir eru víðast hvar orðnir auðir, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Þó eru hálkublettir á nokkrum leiðum.
Vegna hættu á slitlagsskemmdum eru þungatakmarkanir víða um land, en nánari upplýsingar eru veittar í síma 1777.

 


Ritstjóri kveður

Skrifað 21. mars 2009 klukkan 11:59 | | Pistlar |

eftir Helga Má Barðason.

Lífið gengur sinn gang og allt er breytingum háð. Þar eð ég hef nú látið af störfum sem ritstjóri frétta- og upplýsingavefjarins Akureyri.net vil ég þakka samferðafólki mínu, lesendum og samstarfsmönnum, ánægjulega samvinnu á þessum frumbernskuárum vefjarins. Það er von mín að Akureyri.net lifi og dafni lengi enn – með dyggri aðstoð lesenda og þeirra sem láta sig málefni Akureyrar og nágrannabyggðanna varða.

Höfundur er þýðandi og uppgjafaritstjóri.


Sameiningarviðræðum slegið á frest

Skrifað 07. október 2008 klukkan 08:21 | | Fréttir |

Stjórnir Saga Capital fjárfestingarbanka og VBS fjárfestingarbanka hafa ákveðið að fresta formlegum viðræðum sínum um sameiningu bankanna tveggja. Þetta er gert í ljósi þess mikla óvissuástands sem nú ríkir á mörkuðum, segir í tilkynningu frá fyrrnefnda fyrirtækinu.


Akureyri í 16-liða úrslit

Skrifað 06. október 2008 klukkan 08:48 | | Íþróttir |

Akureyri vann stórsigur á Handknattleiksfélagi Reykjanesbæjar í gær og varð þar með fyrst liða til að tryggja sér  áframhaldandi þátttöku í Eimskipsbikar karla. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í Reykjanesbæ en þar sem illa gekk að fá sal til að leika í varð að samkomulagi að leikið yrði hér fyrir norðan. Þar eð Íþróttahöllin var upptekin fór leikurinn fram í KA-heimilinu. Akureyringar skoruðu 51 mark en Suðurnesjamenn 15.

HKR-menn eru að vinna frábært starf við að rífa upp handknattleikinn á Suðurnesjum og hafa einbeitt sér að yngri flokkunum og eru komnir í gang með alla flokka stráka og a.m.k. þrjá flokka kvenna, segir í frétt á heimasíðu Akureyrar handboltafélags. Meistaraflokkur þeirra tekur þátt í utandeildinni og í spjalli við forsvarsmenn liðsins kom fram að þeir líta á tímabilið í vetur sem undirbúning fyrir þátttöku í deildarkeppni næsta vetur.

Það kom fljótt í ljós að getumunur liðanna var gríðarlegur og einungis spurning um hversu stór sigur Akureyrar yrði. Reyndar má segja að leikurinn hafi þróast upp í hraðaupphlaupsæfingu þar sem eldfljótir horna- og línumenn fengu úr nógu að moða, segir ennfremur.

Sjá www.akureyri-hand.is


Nýr formaður UVG

Skrifað 06. október 2008 klukkan 08:44 | | Fréttir |

Landsfundur Ungra vinstri grænna fór fram á Akureyri um helgina. Fundinn sátu 40 ungliðar frá öllum landshornum sem tóku þátt líflegum og frjóum umræðum sem skiluðu sér í fjölda ályktanna, endurbættri stefnuyfirlýsingu og hugmyndum fyrir komandi starfsár.

Á fundinum var Steinunn Rögnvaldsdóttir kjörinn formaður nýrrar stjórnar í stað Auðar Lilju Erlingsdóttur sem gengt hefur því embætti undanfarin tvö starfsár en gaf ekki kost á sér áfram.

Fundurinn fór fram í skugga þeirrar óvissu og umbrota sem ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar og einkenndust umræður á fundinum mjög af þeirri staðreynd, sem og ályktanir fundarins. Meðal annars var ályktað um hrun heimskapítalismans og stöðuna í efnahagsmálum. Einnig samþykkti fundurinn að leggja fram sparnaðaráætlun sem felur í sér fyrir nokkurra tugmiljarða sparnað í óþörfum verkefnum ríkissjóðs. Áætlunin verður kynnt á næstu dögum, segir í fréttatilkynningu.


4 milljónum úthlutað til menningarverkefna

Skrifað 06. október 2008 klukkan 08:42 | | Fréttir |

Menningarráð Eyþings úthlutaði um helgina rúmlega 4 milljónum króna til menningarstarfs á starfssvæði Eyþings við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri. Þetta var í annað sinn sem úthlutað er styrkjum samkvæmt samstarfssamningi menntamálaráðuneytis, iðnaðarráðuneytis og sveitarfélaga í Eyþing um menningarmál.

Ávörp fluttu Sigrún Björk Jakobsdóttir, formaður menningarráðs Eyþings, og Guðný Helgadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu. Auk þeirra voru viðstaddir styrkþegar menningarráðs, sveitarstjórnarmenn og gestir.

Áherslur við úthlutun þessa árs eru meðal annars verkefni sem vekja athygli á sögustöðum og menningartengdum viðburðum. Verkefni sem tengjast aðventunni, verkefni sem auka þátttöku ungs fólks í menningarstarfi og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað. Einnig leggur menningarráðið áherslu á samstarf milli aðila, byggðarlaga eða listgreina sem og verkefni sem fela í sér nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.

Samstarf ríkis og sveitarfélaga
Hinn 27. apríl 2007 undirrituðu öll sveitarfélögin í Eyþing samstarfssamning um  menningarmál. Tilgangur samningsins er að efla menningarstarf í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga í Eyþing við slíkt starf í einn farveg.

Menningarráð Eyþings
Menningarráð Eyþings er sjálfstætt ráð kosið af fulltrúum sveitarfélaga á samstarfssvæðinu. Hlutverk ráðsins er að standa fyrir öflugu þróunarstarfi í menningarmálum, hvetja til samstarfs og faglegra vinnubragða og stuðla að almennri vitund og þekkingu um málaflokkinn. Menningarráð Eyþings úthlutar fjármagni til menningarverkefna á starfssvæðinu samkvæmt samningi ríkis og sveitarfélaga í Eyþing um menningarmál og hefur eftirlit með framkvæmd þess samnings.


Áheyrnarprufur hjá LA

Skrifað 06. október 2008 klukkan 08:38 | | Atburðir |

Leikfélag Akureyrar auglýsir eftir 9-12 ára stúlku til að leika og syngja í jólaleikriti félagsins. Mánudaginn 6. október nk. verður skráning í Rýminu kl. 15:00-17:00.

Seinni hluta október mun LA hefja æfingar á íslensku jólaleikriti, Lápur, Skrápur og jólaskapið sem ætlunin er að sýna á aðventunni. Þetta er bráðskemmtilegt leikrit með söngvum eftir Snæbjörn Ragnarsson sem einnig semur tónlistina. Lápur og Skrápur eru einu tröllabörnin í Grýluhelli sem hafa ekki enn komist í jólaskap. Grýla mamma þeirra rekur þá því af stað úr hellinum og bannar þeim að koma til baka fyrr en þeir eru búnir að finna jólaskapið. Lápur og Skrápur leita um allt og leitin ber þá inn í herbergi Sunnu litlu. Hún ákveður að hjálpa bræðrunum og saman rata þau í alls kyns ævintýri.

Það sannaðist svo sannarlega í Óvitum og Óliver á sínum tíma að hér á svæðinu búa mörg mjög hæfileikarík börn og unglingar og LA vonast til að sem flestar stúlkur láti sjá sig á mánudaginn og taki þátt í áheyrnarprufum fyrir stórt og skemmtilegt hlutverk í Lápi, Skrápi og jólaskapinu. Nánari upplýsingar fást hjá Maríu Sigurðardóttur leikhússtjóra í síma 897-4820.


Fíkniefni og kylfa gerð upptæk

Skrifað 06. október 2008 klukkan 01:47 | | Fréttir |

Föstudagskvöldið 3. október og aðfararnótt laugardagsins framkvæmdi lögreglan á Akureyri húsleitir í tveimur íbúðum á Akureyri. Í annarri íbúðinni fundust tæki og tól til fíkniefnaneyslu auk fíkniefnaleifa. Í hinni íbúðinni var lagt hald á 6 grömm af kannabisefnum og 3 grömm af ætluðu amfetamíni. Nokkrir voru yfirheyrðir vegna þessara mála en látnir lausir að því loknu.

Auk þessa voru tveir karlmenn handteknir við venjubundið eftirlit og fannst smáræði af kannabisefnum á báðum þeirra. Auk þess hafði annar þeirra kylfu í fórum sínum sem hald var lagt á. Síðan var einn ökumaður handtekinn vegna gruns um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005 þar sem koma má á framfæri upplýsingum um meint fíkniefnamisferli.


Góður árangur á haustmóti ÍSS

Skrifað 06. október 2008 klukkan 01:44 | | Íþróttir |

Haustmót ÍSS var haldið á Akureyri um helgina. 77 keppendur tóku þátt í mótinu frá Skautafélagi Reykjavíkur, Birninum og Skautafélagi Akureyrar. Mótið gekk vonum framar og stóðu norðlensku keppendurnir sig að vanda með stakri prýði, segir í frétt frá listhlaupadeild SA. Félagið krækti í nokkur verðlaun á mótinu og eru hér úrslit í þeim flokkum:

Stúlknaflokkur A (Novice):
1. Helga Jóhannsdóttir, SA.
2. Íris Lóa Eskin, B.
3. Sunna Hrund Sverrisdóttir, B.

12 ára og yngri B:

1. Andrea Dögg Jóhannsdóttir, SA.
2. Hrafnhildur Lára Hildudóttir, SA.
3. Hólmfríður Karen Karlsdóttir, SR.

10 ára og yngri A:

1. Agnes Dís Brynjarsdóttir, B.
2. Þuríður Björg Björgvinsdóttir B.
3. Hrafnhildur Ósk Birgisdóttir, SA.


Árni og Gísli Kristinn heiðraðir

Skrifað 06. október 2008 klukkan 01:42 | | Íþróttir |

Nú um helgina gerðu knattspyrnumenn og -konur í Þór upp árið í hófi sem haldið var á skemmtistaðnum Marina. Meistaraflokkur og 2. flokkur karla og kvenna halda árlega sameiginlegt lokahóf.

Auk þess að verðlauna knattspyrnufólk fyrir frammistöðu sína hefur knattspyrnustjórnin veitt einstaklingum heiðursverðlaun fyrir vel unnin störf. Í ár veitti knattspyrnustjórnin þeim Árna Óðinssyni og Gísla Kristni Lórenzsyni þessi verðlaun. Þeir Árni og Gísli Kristinn sitja í verkefnanefnd fyrir félagið vegna þeirrar uppbyggingar sem á sér stað á félagssvæðinu. Þeir hafa sinnt þessu verkefni með slíkum glæsibrag að það á sér án efa fá eða engin dæmi, segir í tilkynningu frá Þór.
 
Atli Jens Albertsson og Rakel Hönnudóttir voru valin bestu leikmenn meistaraflokka í ár. Rakel var einnig valin best, þ.e.a.s. leikmaður leikmannanna í vali leikmanna hjá konunum. Hjá körlunum var það Alexandar Linta sem hlaut þá viðurkenningu.

Efnilegustu leikmenn meistaraflokka voru Silvía Rán Sigurðardóttir og Gísli Páll Helgason.


Akureyri vann Stjörnuna í spennandi leik

Skrifað 03. október 2008 klukkan 02:02 | | Íþróttir |

Það var rafmögnuð stemning í Íþróttahöllinni í gærkvöldi þegar Stjarnan kom í heimsókn, segir í umfjöllun um leik Akureyrar handboltafélags og Stjörnunnar úr Garðabæ, sem háður var í gærkvöldi. “Hinir frábæru stuðningsmenn Akureyrar létu ekki sitt eftir liggja, fylltu stúkuna og hvöttu sína menn dyggilega áfram. Leikmenn Akureyrar þökkuðu fyrir stuðninginn með flottri frammistöðu og með sameiginlegu átaki áhorfenda og leikmanna lyktaði háspennuleik með sanngjörnum sigri heimamanna 22-19,” segir ennfremur.

Myndina tók Þórir Ó. Tryggvason. Sjá www.akureyri-hand.is

 


Tónlistin blómstrar

Skrifað 02. október 2008 klukkan 10:55 | | Skólar |

Tónlistarskólinn á Akureyri hóf sextugasta og annað starfsár sirr nú í lok ágúst. Nemendur í heilu eða hálfu námi eru um 450 og kennarar við skólann eru 36. Auk þess þjónustar skólinn 5-600 nemendur í grunn- og leikskólunum í ár. Við skólann eru 5 deildir og 16 hljómsveitir eru byrjaðar að æfa af kappi fjölbreytta tónlist sem spannar tónlistarlitrófið frá klassískri tónlist yfir í hiphop og jass.

Nýr skólastjóri tónlistarskólans, Hjörleifur Örn Jónsson, hefur undanfarin ár stjórnað tónlistarskóla í Berlín, “Neue Musikschule Berlin” og hefur unnið að öflugri uppbyggingu tónlistarstarfs í samstarfi við grunnskóla þar í borg. Hjörleifur segist hlakka til vetrarins með tilliti til flutnings Tónak í nýtt og glæsilegt menningarhús við Akureyrarhöfn haustið 2009 og lofar afar skemmtilegu skólastarfi á komandi ári.

Fjölmargt er framundan í starfinu í vetur og meðal nýjunga má nefna barnakór Tónlistarskólans á Akureyri sem er ætlaður börnum frá 5-7 ára aldri eða fyrir elsta árgang í leikskóla og 1. og 2. bekk í grunnskóla. Æfingar fara fram í sal Brekkuskóla á mánudögum milli 16:00-16:40 en aðgangur er ókeypis og opinn öllum krökkum milli 5 og 7 ára. Stjórnandi Barnakórs Tónlistarskólans á Akureyri er Heimir Bjarni Ingimarsson. Meðal annara nýjunga má nefna að verið er að áætla stofnun sinfóníuhljómsveitar innan tónlistarskólans eftir áramót og boðið verður upp á hiphop og rapp sveit auk argentínskar tangohljómsveitar undir stjórn Alberto Porro Carmona. Einnig verða þemadagar í október þar sem hefðbundin kennsla verður brotin upp og lögð áhersla á spuna, hreyfingu og tilraunastarfsemi.

Að sjálfsögðu koma nemendur svo fram á hinum fjölmörgu tónleikum í vetur á vegum Tónlistarskólans. Framundan
eru t.d. sólótónleikar blásaradeildar sem verða 7. október, hinir vikulegu Fimmtudagstónleikar sem byrja 2. október, söngdeildarkynningartónleikar 14. október og margt fleira sem sagt verður frá nánar síðar. Heimasíða Tónlistarskólans er www.tonak.is og verður hún uppfærð og endurnýjuð á næstu vikum og mánuðum, að því er fram kemur í vefriti Skóladeildar Akureyrar, Skóla-akri.


Týr á Græna hattinum

Skrifað 02. október 2008 klukkan 10:52 | | Næturlíf |

Eftir frábærar viðtökur rokkunnenda um síðustu helgi, þegar Brant Bjork og Brain Police sýndu stórleik, teflir Græni hatturinn fram næsta trompi, sem er færeyska þjóðlagarokkhljómsveitin Týr. Hún heldur tónleika á föstudagskvöld ásamt hljómsveitunum Shogun, Disturbing Boner, Finngálkn og Provoke. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00 og opnar húsið kl. 21.00. Miðaverð er kr. 1500 og forsala hafin í verslunum Pennans í Hafnarstræti og á Glerártorgi.


Ræsagerð á Moldhaugnahálsi

Skrifað 02. október 2008 klukkan 10:49 | | Fréttir |

Vegna ræsagerðar verður hringvegurinn, þjóðvegur 1, um Moldhaugnaháls í Eyjafirði lokaður frá kl. 18 föstudaginn 3. október og fram eftir degi á laugardag. Hjáleið er um veg 816, Dagverðareyrarveg. Þetta kemur fram í tilkynningu frá vegagerðinni.

 


Hugmyndir að breyttu skipulagi miðbæjarins kynntar

Skrifað 02. október 2008 klukkan 03:35 | | Fréttir |

Nýjar hugmyndir að breyttu skipulagi miðbæjarins á Akureyri voru kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsinu í dag. Unnið er áfram eftir verðlaunatillögu Graeme Massie, þó með nokkuð breyttum áherslum. Tillögurnar voru kynntar í bæjarráði í morgun en allt kynningarferli er eftir og er áætlað að því ljúki snemma á næsta ári. Meðal helstu breytinga eru að gert er ráð fyrir að Glerárgata verði þrengd úr fjórum akreinum í tvær, umtalsverðri uppbyggingu atvinnu- og íbúðarhúsnæðis, nýtingu bílastæða í miðbænum verður breytt og síki/vatnasvæði mun ná frá Torfunefsbryggju inn að bakhlið gamla Apóteksins við Hafnarstræti. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um útfærslur á endanlegu dýpi á síki/vatnasvæði.

Nýjar áherslur
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa á síðustu misserum unnið að fjölbreyttum verkefnum til að styrkja miðbæ Akureyrar. Markmiðið er að miðbærinn hafi sterkt aðdráttarafl fyrir íbúa, ferðamenn og fyrirtæki. Fleira fólk geti búið í og við miðbæinn og þar verði fjölbreyttari þjónusta og atvinnustarfsemi. 

Hinar nýju áherslur byggja m.a. á íbúaþingi þar sem landsmet var slegið og um 1650 manns komu í íþróttahöllina á Akureyri til að ræða um miðbæinn og tækifæri þar. Frekari úrvinnsla byggðist á tillögu frá Graeme Massie Architects (GMA) sem hlutskörpust var í hugmyndasamkeppni um skipulag miðbæjarins sem sjálfseignarstofnunin, „Akureyri í öndvegi“ stóð fyrir. GMA brugðust í sinni tillögu við óskum bæjarbúa um „meira skjól og sól“ með því að leggja til að sjávarsíki næði frá Bótinni að Hafnarstræti. Þannig snúa þeir miðbænum í raun austur-vestur og mynda skjólsæl sólrík rými meðfram síkinu. Með þessu eru einnig áréttuð einstök einkenni Akureyrar, þar sem sjórinn og ströndin eru dregin inn í miðbæinn en sjórinn hefur tengst bæjarlífinu í gegnum tíðina. Þannig myndast sterk tengsl á milli landslags og menningar.

Nú liggur fyrir deiliskipulagstillaga sem byggir á ofangreindum tillögum, sem þverpólitískur stýrihópur bæjarins hefur unnið að með Graeme Massie Architects sem skipulagshönnuðum, ásamt ráðgjafarfyrirtækinu Alta, umferðarskipulagssérfræðingum frá Alan Baxters Associates og Línuhönnun.

Helstu breytingar í miðbænum
Áhersla er lögð á að skapa aðlaðandi og eftirsótt rými, sem byggja á menningu Akureyrar, sögu, náttúrulegu umhverfi, landslagi og strandlengju. Þannig eru áréttuð einstök einkenni í miðbænum.

Gert er ráð fyrir nýjum 3 – 5 hæða byggingum með yfir 150 nýjum íbúðum og allt að 16.000 fermetrum af atvinnuhúsnæði auk bílastæðakjallara undir húsum.

Tengsl miðbæjar við Pollinn og menningarhúsið verða styrkt og síki/vatnasvæði lagt frá Bótinni að Skipagötu með tjörn þaðan að gamla Apótekinu, þar sem sólrík og skjólsæl rými munu verða beggja vegna. Braunshús verður flutt og
þannig myndast göngutenging að Hafnarstræti og Skátagilinu.

Götum verður breytt, þ.e. bílastæði verða meðfram þeim og göturýmin um leið gerð meira aðlaðandi með nýju yfirborði og meiri gróðri.

Áhersla er lögð á góðar göngu- og hjólaleiðir og meðal annars yfirbyggð hjólastæði í miðbænum.

Glerárgatan verður öruggari og henni breytt í aðlaðandi borgarstræti frá Kaupvangsstræti að gatnamótum við Strandgötu. Á þessu svæði verður hún þrengd úr fjórum akreinum í tvær, en um leið tryggt að hægt verði að snúa til baka ef þörf krefur. Með þessu verða Pollurinn og menningarhúsið Hof órjúfanlegur hluti miðbæjarins.

Bílastæðum fyrir almenning mun ekki fækka, þeim verður fjölgað meðfram götum og síðan liggja fyrir tillögur að bílastæðahúsi eða bílastæðakjallara sem munu fullnægja þörfinni.

Uppbygging að hefjast
Ráðgert er að fyrir liggi samþykkt deiliskipulagstillaga á fyrri hluta næsta árs. Þá verður þegar hafist handa um framkvæmdir, þar sem nú þegar liggja fyrir áform um byggingu hótels og íbúða á svæðinu norðan við síki/vatnasvæði. 

Áætlaðar tekjur bæjarins af gatnagerðargjöldum verða yfir einn milljarður króna og verða þær að hluta til nýttar til að fjármagna nauðsynlegar lykil framkvæmdir. Með þessum hugmyndum vilja bæjaryfirvöld tryggja að miðbærinn verði til framtíðar uppspretta hugmynda og tækifæra á sviði menningar, lista og viðskipta, með það fyrir augum að styrkja mannlíf og um leið atvinnulíf á Akureyrarsvæðinu öllu.